Skessuhorn - 14.09.2016, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2016 11
Útboð
Faxaflóahafnir sf. óska eftir tilboðum í verkið:
Grundartangahöfn,
Tangabakki, 2. áfangi
Hækkun hafnarbakka 2016
Verkið felst m.a. í að steypa ofan á núverandi
kantbita, frágangur kants, fjarlægja malbik, hækka
yfirborð bakkasvæðis, leggja fráveitulagnir, og
malbika bakka.
Helstu magntölur eru :
Fyllingar 2.800 m³
Regnvatnslagnir 270 m
Steypa 230 m³
Malbik 5.000 m²
Verklok eru í tveim áföngum:
Steypa, kantfrágangur, lagnir
og jarðvinna: 15. desember 2016.
Malbikun og renna : 15. maí 2017.
Útboðsgögn verða afhent án gjalds á stafrænu formi
með að senda beiðni með nafni bjóðanda,
símanúmer og nafni tengiliðs á netfangið
utbod.akranes@mannvit.is.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Faxaflóahafna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík,
27. september 2016 kl. 11:00.
Sorg er eðlileg í kjölfar ástvinamissis en oft gerist það að sá sem
syrgir á ertt með að vinna sig til sáttar í sorgarferlinu. Sorgin
hefur ólíkar birtingarmyndir en einkenni geta verið líkamleg,
tilnningaleg, hugræn og félagsleg.
Markmið námskeiðsins er að hjálpa þátttakendum að draga úr vanlíðan sem fylgir
sorginni og nna leiðir til að auka jákvæð bjargráð í erðum aðstæðum. Lögð verður
áhersla á fræðslu og leiðir til að vinna með sorgina, heildræna nálgun, slökun og
hugleiðslu. Að auki verður boðið upp á hælega hreyngu og útivist í fallegu umhver.
Innifalið er gisting, hollur og góður matur, aðgangur að líkamsrækt, sundlaugum og
baðhúsinu Kjarnalundi.
Umsjón er í höndum Bryndísar Einarsdóttur sálfræðings ásamt hópi fagfólks
Heilsustofnunar.
Verð á mann: 145.000 kr. (137.500 í tvíbýli)
Sorgin og líð
Vikudvöl fyrir þá sem hafa orðið fyrir ástvinamissi
og eru að vinna úr sorg sinni 2.-9. október
Grænumörk 10 - Hveragerði - heilsustofnun.is
Nánari upplýsingar í síma 483 0300 eða heilsa@heilsustofnun.is
Heilsustofnun
Náttúrulækningafélags Íslands
Breiðfirskir eyjabændur sóttu um
helgina fé í Elliðaey og Bíldsey og
fluttu á land í Stykkishólmi. Féð
gengur sjálfala úti í eyjunum og er
rígvænt eftir veruna þar í sumar.
Meðfylgjandi myndir tók Sumar-
liði Ásgeirsson þegar komið var að
landi. mm
Eyjabændur
sóttu féð
Grunnskóli Snæfellsbæjar tók að
venju þátt í Norræna skólahlaupinu
á dögunum. Markmið með hlaupi
þessu er að hvetja nemendur til að
hreyfa sig reglulega til að stuðla að
betri líðan og heilsu. Hlaupið er
haldið í 33. skipti á þessu ári en á
síðasta ári hlupu um 15.000 grunn-
skólanemendur frá um 63 skólum
hér á landi. Nemendur í 1. til 4. bekk
Grunnskóla Snæfellsbæjar gengu
saman upp á íþróttavöll á Hellissandi
þar sem þeir hlupu. Allir nemendur
tóku þátt og stóðu sig vel. Að hlaupi
loknu gengu krakkarnir aftur í skól-
ann þar sem eftir þeim biðu ávaxta-
spjót sem útbúin höfðu verið handa
þeim á meðan á hlaupinu stóð.
þa
Norræna skólahlaupið
stuðlar að betri líðan
Haustþing Kennarafélags Vest-
urlands var haldið í Grunnskóla
Grundarfjarðar síðastliðinn föstu-
dag. Alls voru um tvöhundruð kenn-
arar skráðir á þingið, auk stjórn-
enda margra skóla á öllu Vestur-
landi, allt frá Akranesi til Reykhóla.
Þingið byggðist upp á ýmiss kon-
ar fræðslu fyrir kennara. Haldnir
voru fyrirlestrar og kynningar fyr-
ir hádegi og eftir hádegi voru hald-
in fjölbreytt námskeið, málstofur
og fyrirlestur. Gátu kennarar meðal
annars kynnt sér bókagerð, hvern-
ig nýta má spjaldtölvur og Lego til
kennslu í stærðfræði, forritun, Art
þjálfun og margt fleira. Deginum
lauk með kvöldverði og skemmtun,
þar sem Samúel Þorsteinsson var
veislustjóri. grþ
Kennaraþing Vesturlands haldið í Grundarfirði
Fjölmenni var á haustþingi Kennarafélags Vesturlands í Grundarfirði.
Ljósm. Bergmann Guðmundsson.
Kennarar gátu kynnt sér ýmislegt á þinginu, þar á meðal sögugerð með Lego.
Ljósm. Nanna María Elfarsdóttir.
Fjölmargar kynningar voru á þinginu.
Ljósm. Sigurður Gísli Guðjónsson.