Skessuhorn


Skessuhorn - 14.09.2016, Side 15

Skessuhorn - 14.09.2016, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2016 15 SPEGLAR FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ www.frumherji. is Ólafsvík 2016 Bifreiðaskoðun verður við Fiskiðjuna Bylgjuna, Bankastræti 1 Miðvikudaginn 21. september Fimmtudaginn 22. september Föstudaginn 23. september Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00 ATH. Allar stærðir ökutækja skoðaðar Upplýsingar í síma 863-0710 SK ES SU H O R N 2 01 6 Opnuð verður ylströnd í fjörunni við Englendingavík, ef hugmyndir Ein- ars Valdimarssonar, veitingamanns í Englendingavík og Margrétar Rósu Einarsdóttur eiganda ganga eft- ir. Leyfisumsókn fyrir ylströndinni liggur nú á borði byggðaráðs Borg- arbyggðar en málið var tekið fyrir á fundi 1. september síðastliðinn. Yl- ströndin er bara ein af mörgum hug- myndum Einars og Margrétar Rósu til að laða að fleiri ferðamenn og fá þá til að dvelja lengur á svæðinu. Hugmyndina að ylströndinni seg- ir Einar hafa kviknað með borðum sem sett voru í fjöruna. „Þetta byrj- aði þannig að við tókum okkur til og settum borð í fjöruna fyrir fólk að tylla sér við, fjölskyldur að setj- ast og snæða eða bara njóta þess að vera á staðnum, sem er akkúrat það sem við viljum,“ segir hann. „Það er svo gaman þegar fólk getur not- ið þessarar náttúruperlu með okkur. Englendingavík er einstakur staður og mér er farið að líða þannig, þó það hljómi kannski skringilega, að mér sé treyst fyrir henni; þessari vík, náttúru og umhverfi,“ segir Einar. Ferðafólk þarf afþreyingu Hvort verði af hugmyndum um yl- strönd í Englendingavík kveðst hann auðvitað ekki geta sagt til um, en fyrsta skrefið sé að sækja um leyfi. Fáist það verði hægt að fá arkitekta og hönnuði til að útfæra hugmynd- ina. Hann segir að ylströndina einn- ig hugsaða sem afþreyingarmögu- leika fyrir ferðafólk. „Túrismi er auðvitað þannig að það þarf afþrey- ingu, fólk þarf að hafa eitthvað að gera. Hér í Borgarnesi höfum við til dæmis Landnámssetrið og Sam- göngusafnið og fleiri söfn, sem og einnig strandlengjuna þar sem fólk getur gengið um og fleira. En við þurfum að hugsa málin lengra,“ seg- ir hann og bætir við að það sama eigi við víðast hvar á landinu. „Fólk kem- ur, gistir og borðar og ef það hefur eitthvað að gera þá kemur fleira fólk og dvelur lengur. Almennt vantar fleiri afþreyingarmöguleika og við þurfum að huga að fleiru hér á landi en náttúru og veitinga- og gististöð- um,“ segir hann. „Við þekkjum þetta sjálf þegar við förum til útlanda. Við viljum slaka á og skoða okkur um. Þar hefur náttúran mikið að segja en við þurfum líka annars konar af- þreyingu,“ bætir hann við. Draga fram andlit í klettunum Einar segir vert að kanna hvort ekki megi bjóða fólki upp á fuglaskoð- un og vísar til hugmyndar sem send var stjórnendum sveitarfélagsins um uppsetningu vefmyndavélar í Litlu- Brákarey. „Ef til vill mætti líka setja upp spjöld með upplýsingum um og myndum af þeim fuglum sem gest- ir gætu átt von á að sjá með berum augum.“ Einnig kynntu Einar og Mar- grét Rósa hugmyndir um að fá lista- mann eða listamenn til að ýkja nátt- úrulegar mannamyndir í klettunum við neðra pakkhúsið, sem og að lýsa upp klettana og hluta göngustígsins við Englendingavík. „Hugmyndin um að draga fram andlit í klettunum finnst mér eiginlega skemmtileg- ust,“ segir hann og bætir því við að ljósin sem lýsa myndu upp klettana yrðu þannig að ekki hlytist neinn ami af. „Þau yrðu þannig að hægt væri að slökkva á þeim með einum rofa, til dæmis ef fólk vill sjá norð- urljósin,“ segir Einar. Þá er enn ótalið að þau hafa ósk- að leyfis til að koma fyrir gömlum báti á steinbryggjuna til minning- ar um gamla verslunarhætti. „Við brúna í Stóru-Brákarey liggur fal- legur gamall bátur, hvítur og rauður með siglutré. Bátinn á Pétur Geirs- son og konan mín spurði hann ein- hvern tímann af hverju báturinn lægi þarna. „Til að útlendingarn- ir hafi eitthvað til að taka mynd af,“ svaraði hann og mér þykir hann hafa nokkuð til síns máls því það verður að vera afþreying á staðnum,“ seg- ir Einar. „Útlendingar eru nefni- lega hrifnir af Borgarnesi. Hér sjá þeir miðpunkt til að dvelja á með- an þeir fara í dagsferðir á Þingvelli, út á Snæfellsnes eða upp í Húsafell áður en þeir halda norður í land eða á Vestfirðina. Borgarnes er miklu meiri miðstöð en við áttum okkur á,“ segir hann. En þrátt fyrir ýmsar hugmyndir um uppbyggingu í Borgarnesi tekur Einar fram að margt gott hafi ver- ið gert undanfarið. „Nú er til dæm- is kominn æðislegur göngustíg- ur í Englendingavík, sem Borgar- byggð lét gera með styrk úr Fram- kvæmdasjóði ferðamannastaða og á heiður skilinn fyrir það. Nú er bara að halda áfram,“ segir Einar Valdi- marsson. kgk Ylströnd í Englendingavík og andlit í klettum Einar Valdimarsson, veitingamaður í Englendingavík. Ljósm. úr safni. Horft í átt að Englendingavík í Borgarnesi. Ljósm. fengin af facebook-síðu Englendingavíkur. Svunta www.smaprent.is Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.