Skessuhorn - 21.09.2016, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2016 13
ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA
BLIKKSMIÐJA
Loftræstingar – Reykrör
Klæðningar – Nýsmíði
Viðhald – Efnissala
JÁRNSMIÐJA
Gjafagrindur – Nýsmíði
Viðhald – Þjónusta
Hesthúsinnréttingar
RAFMAGNS-
VERKSTÆÐI
Nýlagnir – Viðhald
Viðgerðaþjónusta
Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is
Vinnumálastofnun áætlar að skráð
atvinnuleysi í september verði um
1,8 – 2,1% á landsvísu. Atvinnu-
leysi á Suðurnesjum mælist nú
lægra en á höfuðborgarsvæðinu
í fyrsta sinn frá árinu 2004 sem
rekja má til uppsveiflu í ferða-
þjónustu. Hlutfall erlendra ríkis-
borgara af vinnuaflinu fer vaxandi.
Þetta og fleira kemur fram í minn-
isblaði sem félags- og húsnæðis-
málaráðherra kynnti á fundi ríkis-
stjórnar í gær.
Fjöldi starfa í ferðaþjónustu
stefnir í að fara úr um 19.400 árið
2015 í 22.900 störf árið 2016.
Körlum á innlendum vinnumark-
aði hefur fjölgað hlutfallslega
meira en konum sem skýrist eink-
um af uppgangi í byggingariðnaði
þar sem karlar starfa í mun meira
mæli en konur.
Tölur um búferlaflutninga
benda til þess að yfir 8.000 erlend-
ir ríkisborgara muni flytja ti lands-
ins á þessu ári. Eru þá ótaldir svo-
kallaðir útsendir starfsmenn, þ.e.
þeir sem koma hingað til skemmri
tíma. Vinnumálastofnun áætl-
ar að hlutfall erlendra ríkisborg-
ara á vinnumarkaði fari yfir 10%
að jafnaði árið 2016 sem er hærra
en nokkru sinni áður. Gert er ráð
fyrir að þessi þróun haldi áfram og
að hlutfallið fari í 11 – 12% árið
2017.
Búferlaflutningar Íslendinga til
og frá landinu tengjast að stórum
hluta námi erlendis en endurspegla
einnig að einhverju leyti efnahags-
ástandið þannig að fleiri flytjast á
brott í atvinnuleit þegar illa árar og
færri flytjast til landsins. Tölur um
búferlaflutninga á fyrri hluta þessa
árs benda til að íslenskum ríkis-
borgurum sem flytjast til landsins
fari fjölgandi og þeim sem flytjist á
brott fari fækkandi.
mm
Erlendir starfsmenn fara
yfir tíu prósent vinnuafls
Byggingastarfsemi og ferðaþjónusta eru meðal atvinnugreina sem taka til sín
fleiri starfsmenn en eru til á innlendum vinnumarkaði. Ljósm. úr safni.
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
1240. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþing-
salnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 27. september kl. 17:00.
Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta
og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að
hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0.
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
Sjálfstæðisflokkurinn í Stúkuhúsinu, laugardaginn •
24. september kl. 10.30.
Björt• framtíð að Smáraflöt 1, Stillholti 16-18, mánudaginn
26. september kl. 20.00.
Bæjarstjórnarfundur
Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir
Hótel Hafnarfjall, Hvalfjarðarsveit
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti þann 13. september
2016 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Hótel Hafnar-
fjall. Deiliskipulagssvæðið er staðsett vestan Vesturlandsvegar
og nær yfir lóðina Hafnarfjall 2. Deiliskipulagstillagan felur
í sér skilgreiningu byggingarreita og byggingarskilmála fyrir
stækkun hótels, starfsmannaíbúðir og smáhýsi á lóðinni.
Tillagan er sett fram á uppdrætti með greinargerð og
mati á umhverfisáhrifum dags. 26. ágúst 2016.
Tillagan er auglýst samkvæmt 41. gr. skipulagslaga
nr. 123/2010.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar.
Tillöguna má einnig sjá á heimasíðu sveitarfélagsins
www.hvalfjardarsveit.is frá 22. september til og með
2. nóvember 2016.
Kynningarfundur verður á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar
þriðjudaginn 4. óktóber 2016 kl. 17:00 til 18:00.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast skipulagsfull-
trúa í síðasta lagi 2. nóvember 2016 fyrir kl. 12.00 á skrifstofu
Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes eða á netfangið
skipulag@hvalfjarðarsveit.is.
Skipulags og umhverfisfulltrúi
Hvalfjarðarsveitar
www.smaprent.is - s: 823-5827
Vinnupeysa
3.990
kr,-
Eiríkur