Skessuhorn - 21.09.2016, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2016 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Víkingur Ó. lék tvisvar í Pepsi
deild karla í knattspyrnu vikunni
sem leið. Fyrst gerði liðið 1-1
jafntefli við Víking R. á fimmtu-
dag þar sem rigning og blautur
völlur setti verulegan svip á leik-
inn. Á mánudag heimsóttu Ólafs-
víkingar síðan botnlið Þróttar og
aftur var niðurstaðan jafntefli þar
sem hvort lið skoraði eitt mark.
Leikmenn Víkings voru frískari
á upphafsmínútum leiksins en
Þróttarar voru smá tíma að taka
við sér. Eftir það var jafnræði með
liðunum en heimamenn sköpuðu
sér þó hættulegri færi og hefðu vel
getað komist yfir snemma leiks.
Víkingar vildu fá víti á 20. mínútu
þegar Tokic virtist togaður niður í
teignum en ekkert dæmt og Þrótt-
arar blússuðu fram í sókn og voru
við það að sleppa í gegn en Tom-
asz Luba bjargaði með frábærri
tæklingu.
Fyrsta mark leiksins kom á 27.
mínútu og var af dýrari gerðinni.
Vilhjálmur Pálmason vann bolt-
ann í sínum eigin vítateig og hljóp
upp allan vinstri kantinn. Þegar
hann var farinn að nálgast mark
Ólafsvíkinga lét hann einfaldlega
vaða, beint í fjærhornið og kom
Þrótturum yfir.
Markið gaf leikmönnum Þróttar
byr undir báða vængi og voru þeir
mun sterkara liðið það sem eft-
ir lifði fyrri hálfleiks. Þeim tókst
hins vegar ekki að bæta við og
leiddu því með einu marki í leik-
hléinu.
Síðari hálfleikur var fremur
daufur framan af og fátt um fína
drætti á vellinum. Það var ekki
fyrr en á lokamínútunum að fjör
færðist í leikinn að nýju. Pape Ma-
madou Faye jafnaði fyrir Víking á
84. mínútu. Hann sneri með bolt-
ann í teignum en náði á einhvern
ótrúlegan hátt að skora úr þröngu
færi eftir að skot hans hafði við-
komu í varnarmanni.
Á 90. mínútu var Tonny Ma-
wejje vikið af velli þegar hann fékk
sitt annað gula spjald og Þróttar-
ar því manni færri í uppbótartím-
anum. Hvorugu liði tókst að skora
eftir að venjulegum leiktíma lauk
en leiknum lauk með umdeildum
hætti. Christian Liberato tók út-
spark frá marki sínu, beint á Þor-
stein Má Ragnarsson sem var í
þann mund að sleppa í gegnum
vörn Þróttara þegar dómari leiks-
ins flautaði leikinn af við vægast
sagt litla hrifningu leik- og stuðn-
ingsmanna Víkings.
Leiknum lauk því með jafntefli
og fallbaráttan galopin. Víkingur
er í 9. sæti deildarinnar með 21
stig, þremur stigum frá fallsæti,
þegar tveir leikir eru eftir. Næst
leikur Víkingur á Ólafsvíkurvelli
sunnudaginn 25. september næst-
komandi þegar KR kemur í heim-
sókn.
kgk/ Ljósm. af.
Víkingur Ó. enn í fallbaráttu
eftir tvö jafntefli í vikunni
Íslands- og bikarmeistarar Snæ-
fells hafa samið við bandaríska
leikstjórnandann Taylor Brown og
mun hún leika með liðinu í Dom-
ino‘s deild kvenna í körfuknattleik
á vetri komanda. Von er á Taylor til
landsins á næstunni, en hún kemur
til með að fylla skarð Haiden Pal-
mer sem nýverið skrifaði undir hjá
þýska toppliðinu Herner TC.
Í bandaríska háskólaboltanum
skoraði Taylor 15,3 stig að meðal-
tali í leik, gaf 3,3 stoðsendingar og
tók 3,8 fráköst. Hún hóf ferilinn
með Georgetown háskólanum og
lék þar í eitt ár áður en hún skipti
yfir í George Mason háskólann.
Þar hefur hún leikið undanfarin
þrjú ár við góðan orðstír, en hún
er fjórði stigahæsti leikmaðurinn í
sögu skólans.
Gaman er að geta þess að fyrsti
leikur Haiden í þýska körfuboltan-
um verður gegn Freiburg, en þar
leikur Kristen McCarthy sem lék
með Snæfelli fyrir tveimur árum
síðan.
kgk
Bandarískur leikstjórnandi í Snæfell
Taylor Brown í leik með liði George Mason háskólans.
Víkingur Ó. gerði tvö jafntefli í vikunni sem leið. Rigning setti mjög svip sinn á
leikinn gegn Víking R. í Ólafsvík.
Það vakti athygli á leik Víkingsliðanna á sunnudag að tveir ungir menn voru með
fána merktan Pape Mamadou Faye. Pape sagði í samtali við Skessuhorn eftir leik-
inn að hann þekkti ekki þessa menn en þeir sögðu honum að þeir hefðu gert sér
ferð til Íslands frá Sviss þar sem þeir búa, til þess eins að sjá Pape spila einn leik.
„Ég hef bara gaman að þessu sagði Pape skælbrosandi, ég átti nú alls ekki vona
á að sjá svona fána uppi með mínu nafni á leiknum. „En þetta er bara kúl,“ sagði
Pape og var að vonum ánægður með sína menn. Stuðningsmennirnir svissnesku
virtust blása Pape í brjóst, því hann skoraði eina mark Víkings nokkrum dögum
síðar í leiknum gegn Þrótti.
Bjarki Pétursson golfari úr Borgar-
nesi bar nýverið sigur úr býtum á
Gopher Invitational mótinu í golfi
sem haldið var í Minnesota í Banda-
ríkjunum. Þetta var fyrsta háskóla-
mótið á tímabilinu en Bjarki leikur
fyrir Kent State háskólann í Ohio.
Hann lék hringina þrjá af öryggi, á
70, 70 og 69 höggum eða sjö högg-
um undir pari og sigraði örugg-
lega með fjögurra högga forystu á
næsta mann. „Virkilega langþráð að
vinna loksins golfmót. Spilaði mjög
vel við nokkuð krefjandi aðstæður,“
sagði Bjarki á Facebook síðu sinni.
Lið Kent State endaði í fjórða sæti í
liðakeppninni á 286-290-296 högg-
um eða 20 höggum yfir pari.
Næsta mót hjá Bjarka og öðrum
íslenskum kylfingum í ameríska há-
skólagolfinu er Maui Jim Intercol-
legiate mótið sem fer fram 23.-25.
september í Arizona.
mm
Bjarki byrjar háskóla-
golfið með sigri
Skagamenn léku tvisvar í Pepsi
deild karla í knattspyrnu í vik-
unni sem leið. Síðasta fimmtudag
tóku þeir á móti erkifjendunum úr
KR og máttu sætta sig við tap með
einu marki gegn engu. Á mánudag-
inn mættu þeir síðan Stjörnunni í
Garðabænum og töpuðu með þrem-
ur mörkum gegn einu.
Skagamenn fengu óskabyrjun
í leiknum við Stjörnuna, komust
yfir strax á 3. mínútu leiksins. Dar-
ren Lough átti fyrirgjöf frá vinstri.
Boltinn fór af varnarmanni, það-
an í stöngina og í þann mund sem
markvörður Stjörnunnar blakaði
honum frá lyfti aðstoðardómarinn
flaggi sínu til marks um að boltinn
hafi farið yfir línuna. Skagamenn
því komnir yfir. Heimamönnum
var nokkuð brugðið eftir markið
furðulega og tóku næstu tíu mínút-
ur í að jafna sig. Eftir það tóku þeir
að sækja af fullum þunga en Skaga-
menn lágu til baka og beittu skyndi-
sóknum. Stjörnumenn voru heilt
yfir sterkari það sem eftir lifði hálf-
leiks, sköpuðu sér nokkur mjög góð
færi en leikmenn ÍA vörðust prýði-
lega og hefðu getað laumað inn
marki eftir skyndisókn. Skagamenn
virtust ætla að halda forystunni allt
til leikhlés en rétt áður en fyrri hálf-
leikur var úti jöfnuðu heimamenn.
Þeir fengu hornspyrnu og eftir frá-
bæra fyrirgjöf björguðu Skagamenn
á marklínu en Eyjólfur Héðinsson
tók frákastið og skoraði.
Stjarnan komst síðan yfir strax
eftir fimm mínútna leik í síðari hálf-
leik. Halldór Orri Björnsson lét vaða
eftir góðan sprett og skoraði með
hnitmiðuðu skoti. Upp úr því tóku
heimamenn öll völd á vellinum en
það varði ekki lengi því Skagamenn
tóku að sækja í sig veðrið. Þeir voru
nálægt því að jafna eftir klukku-
stundar leik þegar Hafþór Péturs-
son skallaði að marki en Stjörnu-
menn björguðu á línu.
Næstu mínútur fengu Skagamenn
nokkur ágæt færi sem þeim tókst
ekki að gera sér mat úr. Stjörnu-
menn gerðu breytingar á liðskip-
an sinni og við það batnaði leikur
þeirra. Þeir gerðu síðan út um leik-
inn á 81. mínútu þegar Baldur Sig-
urðsson skoraði með skalla eftir
hornspyrnu. Staðan orðin 3-1 og
þannig urðu lyktir leiksins.
Skagamenn sitja í 7. sæti deildar-
innar með 28 stig þegar tveir leik-
ir eru eftir. Næst mæta þeir Breiða-
bliki á Akranesvelli sunnudaginn 25.
september næstkomandi.
kgk
Tap þrátt fyrir óskabyrjun
Umdeilt atvik átti sér stað eftir hálftíma í leik KR og ÍA á fimmtudag þegar Garðar
Gunnlaugsson var tæklaður í vítateig KR-inga. Skagamenn vildu vítaspyrnu en
dómari leiksins taldi að varnarmaður hefði fyrst farið í boltann.
Ljósm. Guðmundur Bjarki.