Skessuhorn - 16.11.2016, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 46. tbl. 19. árg. 16. nóvember 2016 - kr. 750 í lausasölu
��.��� kr. lántökugjald og ekkert gjald
við fyrstu kaup.
Skoðaðu hvaða kostir henta þér best
með reiknivélinni á arionbanki.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
6-
30
65
Lægri kostnaður
við íbúðakaup
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
Eru bólgur og
verkir að hrjá þig?
20%
afsláttur
Verkir í liðum?
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Jólaseríur
inni og úti
Opnunartími
Mánudaga – föstudaga
kl. 13-18
Laugardaga
kl. 10-12
Skagabraut 17, Akranes
Á fundi í sveitarstjórn Borgar-
byggðar síðastliðinn fimmtudag var
til umræðu Samgönguáætlun Vest-
urlands fyrir 2017-2029, einkum er
varðar fyrirhugaða hjáleið á þjóð-
vegi 1 um Borgarnes. Gert hef-
ur verið ráð fyrir færslu þjóðveg-
arins í aðalskipulagi Borgarbyggð-
ar 2010-2022. Um árabil hefur ver-
ið rætt um þann möguleika að færa
þjóðveginn út fyrir þéttbýlið, en
um það hafa verið skiptar skoðan-
ir. Þar hafa togast á sjónarmið um
viðskipti og umferðaröyggi. Því má
segja að niðurstaða sveitarstjórn-
ar nú marki ákveðin tímamót því
hún samþykkti samhljóða að væn-
legast væri að bæta umferðaröryggi
á núverandi vegstæði þjóðvegar 1 í
gegnum þéttbýli Borgarness og að
ráðist verði í breytingu á aðalskipu-
lagi sveitarfélagsins. Jafnframt sam-
þykkti sveitarstjórn að óska eftir því
að þeir fjármunir sem áætlaðir eru
í hjáleiðina í Samgönguáætlun Al-
þingis fyrir 2023-2026 verði nýttir
til uppbyggingar á vegakerfi í Borg-
arbyggð og að umferðaröryggi á
þjóðveginum í gegnum Borgarnes
verði bætt.
Á fundinum var samþykkt að óska
eftir viðræðum við Vegagerðina
um breyttar áherslur sveitarstjórn-
ar varðandi aðalskipulag Borgar-
byggðar. mm
Sveitarstjórn hverfur frá hugmyndum um
færslu hringvegar um Borgarnes
Síðastliðinn laugardag var Skátafélagið Stígandi með opið hús í Dalabúð í Búðar-
dal. Þar var ýmislegt gert til að safna peningum fyrir börn í Sýrlandi en ágóðinn á
að renna í byggingu skóla. Skátarnir voru með markað og kaffisölu en einnig stóð
gestum til boða að kasta rjóma í Kristján Meldal skátaforingja, eða Kidda kennara
eins og hann er oftast kallaður, og borga 200 krónur fyrir. Samkaup Strax styrkti
gjörninginn með því að leggja til rjómann og það stóð ekki á gestum að taka
þátt í rjómakastinu. Kiddi var hreint ekki svo súr, allavega ekki þegar myndin var
tekin. Sjá nánar bls. 24. Ljósm. sm
Þriðjudaginn 8. nóvember boðaði
Vegagerðin til kynningarfundar á
Reykhólum. Þar kynntu fulltrú-
ar stofnunarinnar frummatsskýrslu
vegna lagningar nýs Vestfjarðar-
vegar milli Bjarkalundar og Skála-
ness, hvað í henni felst varðandi
leiðarval og mat á umhverfisáhrif-
um. Sem kunnugt er leggur Vega-
gerðin til í skýrslunni að farin verði
svokölluð Þ-H leið; um Teigsskóg í
Þorskafirði og með þverunum yfir
Djúpafjörð og Gufufjörð.
Um 40 manns sóttu fundinn sem
haldinn var í Reykhólaskóla og
samkvæmt heimildum Skessuhorns
var fundurinn hinn málefnalegasti.
Enginn fundargesta lýsti sig mót-
fallinn fyrirhuguðum vegafram-
kvæmdum og umræður snerust að-
allega um útfærslur og röðun fram-
kvæmda við áðurnefnda Þ-H leið.
Eins var stuttlega rætt um þjón-
ustu og viðhald vegakafla núver-
andi Vestfjarðavegar, sem mun falla
út úr stofnvegakerfinu og í flokk
tengivega eftir að nýr Vestfjarðar-
vegur verður tekin í notkun. Mun
viðhald núverandi vegar því fylgja
þeim viðmiðunar- og vinnureglum
sem viðhafðar eru um vegakerfið
og byggjast m.a. á flokkun vega.
Þá komu að auki fram smávægi-
legar leiðréttingar varðandi frum-
matsskýrsluna, til dæmis er varða
tölur um þangskurð í ákveðnum
fjörðum og verða þær leiðréttar í
endanlegri skýrslu.
Frestur til að skila inn athuga-
semdum til Skipulagsstofnunar
vegna fyrirhugaðrar Vegagerðar frá
Bjarkalundi að Skálanesi er til 8.
desember næstkomandi.
kgk
Enginn fundargesta mótfallinn
vegaframkvæmdunum
Svipmynd frá fundinum. Ljósm. vegagerdin.is.