Skessuhorn


Skessuhorn - 16.11.2016, Blaðsíða 29

Skessuhorn - 16.11.2016, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2016 29 Nýfæddir Vestlendingar Borgarbyggð - miðvikudagur 16. nóvember Kvæðamannafélagið Snorri í Reyk- holti, opin æfing og fundur kl. 20. Allir velkomnir. Borgarbyggð - miðvikudagur 16. nóvember Rússakvöld. Spilaður verður Rússi á Kaffi Brák frá kl. 19 - 21. Allir velkomnir. 1000 kr. inn og innifalið kaffi og kökur. Dalabyggð - fimmtudagur 17. nóvember Félagsvist í Rauðakrosshúsinu kl. 13 -15:30. Kaffiveitingar verða í boði. Akranes - fimmtudagur 17. nóvember ÍA mætir Fjölni í 1. deild karla í körfu- knattleik kl. 19:15 í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Stykkishólmur - fimmtudagur 17. nóvember Úrvalsdeild karla: Snæfell - Skalla- grímur kl. 19:15. Borgarbyggð - fimmtudagur 17. nóvember Prjóna-bóka-kaffi í Bókhlöðunni í Snorrastofu kl. 20 - 22. Kvöldstund við hannyrðir, bókaspjall og kaffisopa. Safnið er opið til útlána og gestir eru hvattir til að koma með uppskriftir og hugmyndir að hvers kyns handverki. Auk þess hafa kvöldin reynst góður vettvangur fyrir þá, sem hafa frá ein- hverju fróðlegu og skemmtilegu að segja eða vilja kynna viðfangsefni sín og hugðarefni á annan hátt. Allir eru hjartanlega velkomnir. Reykjavík - fimmtudagur 17. nóvember Hagyrðingakvöld í Breiðfirðingabúð kl. 20. Barðstrendingafélagið og Breiðfirð- ingafélagið eiga að þessu sinni eins og undanfarin ár samvinnu um breiðfirskt hagyrðingakvöld, sem verður í Breið- firðingabúð við Faxafen. Valinkunnir hagyrðingar verða á sviðinu. Snæfellsbær - fimmtudagur 17. nóvember Tónleikar með THE LIVING ARROWS í Frystiklefanum í Rifi. Borgarbyggð - fimmtudagur 17. nóvember Björn Thor í Landnámssetrinu. Björn Thoroddsen leikur ásamt söngkon- unni Önnu Þuríði Sigurðardóttur og tríói sínu í Landnámssetrinu Borgar- nesi. Efnisskrá tónleikanna eru lög af nýútkomnum geisladisk þeirra Björns og Önnu auk ýmissa ópusa sem fylgt hafa Birni í gegnum árin. Tónleikarnir hefjast kl. 21 og er aðgangseyrir kr. 2.500. Hvalfjarðarsveit - föstudagur 18. nóvember Lögbundin hunda- og kattahreinsun í Hvalfjarðarsveit. Hreinsunin fer fram að Skipanesi á milli kl. 17 - 19. Gunnar Gauti Gunnarsson, dýralæknir Borgarfjarðar- og Mýrasýslu, annast hreinsunina. Borgarbyggð - laugardagur 19. nóvember List og handverk í Brugghúsinu á Steðja frá kl. 12 - 17. Sölusýning á listmunum og handverki í samstarfi við Brugghúsið á Steðja. Sjö listakon- ur úr Borgarbyggð verða með verk á sýningunni. Léttar veitingar í boði. Allir hjartanlega velkomnir. Stykkishólmur - laugardagur 19. nóvember Jólahlaðborð Fosshótel Stykkishólmi. Pantanir í síma 430-2100 og á stykkis- holmur@fosshotel.is Borgarbyggð - laugardagur 19. nóvember PubQuiz á Kaffi Brák frá kl. 19:30 - 23. Þemað er íslenskar kvikmyndir. Borgarbyggð - sunnudagur 20. nóvember List og handverk í Brugghúsinu á Steðja frá kl. 12 - 17. Sölusýning á listmunum og handverki í samstarfi við Brugghúsið á Steðja. Sjö listakon- ur úr Borgarbyggð verða með verk á sýningunni. Léttar veitingar í boði. Allir hjartanlega velkomnir. Eyja- og Miklaholtshreppur - sunnudagur 20. nóvember Jólamarkaður á Breiðabliki frá kl. 12 - 18. Akranes - sunnudagur 20. nóvem- ber ÍA mætir FSu í 1. deild karla kl. 19:15 í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Borgarbyggð - þriðjudagur 22. nóvember Hunda- og kattahreinsun í Slökkvi- stöðinni í Borgarnesi frá kl. 17 - 19:30. Viðbótardagur fyrir eigendur allra hunda og katta í sveitarfélaginu. Borgarbyggð - þriðjudagur 22. nóvember Aðalfundur Krabbameinsfélags Borgarfjarðar verður haldinn í sal Brákarhlíðar kl. 20. Á döfinni Íbúð á Kveldúlfsgötu 18 í Borgarnesi til leigu Þrjú svefnherbergi og stofa á jarðhæð, 107 fermetrar, nýupp- gerð. Nánari upplýsingar: gkarlbjarnason@gmail.com. Óska eftir Hondu MT eða MB 50/ SS50 Óska eftir Hondu MT eða MB 50/ SS50 varahlutum eða hjóli í vara- hluti, hvað sem er. Vantar mikið og get notað allt endilega ef menn vilja losna við eitthvað úr kompunni hjá sér þá skal ég losa ykkur við það. Verð samkomulag. Sími 896-0158, valur@heimsnet. is. Borgarnes dagatalið 2017 Veggdagatal með 13 myndum úr Borgarnesi. Skoða má myndirnar og fá nánari upplýsingar á slóð- inni: www.hvitatravel.is/dagatal. LEIGUMARKAÐUR 17. september. Stúlka. Þyngd 2.415 gr. Lengd 44 sm. Foreldrar: Kristín Rós Jóhannesdóttir og Martin Markvoll, Stykkishólmi. Ljósmóðir: Ósk Geirsdóttir, LSH. 8. nóvember. Drengur. Þyngd 3.772 gr. Lengd 50 sm. Foreldrar: Þorbjörg Dagný Kristbjörnsdóttir og Björn Elvar Björnsson, Borgarnesi. Ljósmóðir: Ásthildur Gestsdóttir. Markaðstorg Vesturlands TIL SÖLU ÓSKAST KEYPT 9. nóvember. Stúlka. Þyngd 4.154 gr. Lengd 55 sm. Foreldrar: Dagrún Davíðsdóttir og Kristinn Darri Arinbjargarson, Reykjavík. Ljósmóðir: Lóa Kristinsdóttir. 10. nóvember. Drengur. Þyngd 3.514 gr. Lengd 53 sm. Foreldrar: Íris Björk Ásgeirsdóttir og Jakob Valgarð Óðinsson, Mosfellsbæ. Ljósmóðir: Lóa Kristinsdóttir. Á Akranesi Ný bók um mannlífið á Skaganum eftir Ásmund Ólafsson Útgáfutilboð Höfundur áritar í Eymundsson á Akranesi fimmtudaginn 17. nóv. milli kl. 16.30 og 18.00 Bókin fæst einnig hjá útgefanda - Sími: 863-4972 - kristjan@arbok.is 11. nóvember. Stúlka. Þyngd 4.002 gr. Lengd 52 sm. Foreldrar: Sigrún Elsa Viðarsdóttir og Sólmundur Helgi Hjaltalín Rögnvaldsson, Akranesi. Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir. 12. nóvember. Drengur. Þyngd 3.188 gr. Lengd 51 sm. Foreldrar: Brigita Slapsinskiene og Jónas Slapsinskas, Akranesi. Ljósmóðir: Lóa Kristinsdóttir. Í sannleika sagt, þá er það tæplega svo að jafnaðarmenn séu búnir að ná áttum eftir nýliðnar kosningar. Enn velta karlar og konur vöngum yfir niðurstöðum og því afdráttarlausa hruni sem er veruleikinn í okkar röð- um. Reykjavíkurkjördæmin bæði og Suðvesturkjördæmi eru auðnin ein, rjúkandi rústir. Takmark okkar um að verja þingsæti jafnaðarmanna í Norð- vesturkjördæmi náðist reyndar og það eitt er gleðiefni. Í ljósi þeirra góðu málefna sem leitast var við að kynna, þeirrar miklu vinnu sem fjölmargir lögðu á sig í sérkennilegum og stutt- um aðdraganda, þá leitar mjög á hug- ann hvernig það megi vera, að svona sé komið fyrir jafnaðarmönnum á Ís- landi. Fyrir höndum er umræða um þetta í okkar hópi og gagnrýnin skoðun á þeim tilvistarvanda sem við blas- ir. Í kosningabaráttunni var hverjum steini velt við í leit að lausnum okk- ur til framdráttar og til þess að vekja athygli á hugsjónum okkar, stefnu og markmiðum. Allt kom fyrir ekki, jafnaðarmenn ganga fáliðaðir til þings að þessu sinni en staðráðnir í að vinna baráttumálunum framgang og leitast við að hafa áhrif í öllum þeim áherslumálum sem við kynnt- um í kosningabaráttunni, umbótum í þágu venjulegs fólks. Efst í huga eru auðvitað þau mál sem snerta barna- fjölskyldur, eldri borgara og öryrkja sem höllustum fæti standa. Þetta var rauði þráðurinn í málflutningi okkar, að auka réttlæti og sanngirni í samfé- laginu. Sumir flokkar lofuðu miklu í þessu sambandi og við munum halda þeim við efnið. Ég vil þakka af heilum hug öllum þeim sem lögðu okkur lið með stuðn- ingi í kosningunum, við undirbúning og í aðdraganda. Stuðningsmenn og sjálfboðaliðar lögðu margir nótt við dag og unnu dýrmætt starf. Fyrir öll hin góðu samskipti, ný kynni við fjölmarga og mikla fórnfýsi af þeirra hálfu er ég þakklátur. Við látum ekki deigan síga, drögum lærdóm af sér- kennilegri og erfiðri reynslu, nýtum vel þau spil sem við höfum á hend- inni, höldum áfram og eflumst á ný. Guðjón S. Brjánsson, alþingismaður Pennagrein Sól rís á ný

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.