Skessuhorn


Skessuhorn - 16.11.2016, Blaðsíða 25

Skessuhorn - 16.11.2016, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2016 25 Laugardaginn 26. nóvember munu Kór Akraneskirkju og flauelsbark- inn Þór Breiðfjörð tóna inn aðvent- una með glæsilegum tónleikum í Bíóhöllinni á Akranesi. Þetta er þriðja árið í röð sem Kór Akranes- kirkju heldur tónleika þessa fyrstu helgi í aðventu. Það er því komin ákveðin hefð fyrir tónleikum kórs- ins á þessum tíma. Góðir gestir hafa komið í heimsókn þessi ár og á því verður engin breyting. Auk Þórs munu þau Aðalheiður Þor- steinsdóttir píanóleikari og Birgir Bragason kontrabassaleikari styðja við kórinn og sjá um að fylla hljóm- rýmið með þéttum hljóðfæraleik. Léttleiki og andi amerískrar jóla- sönglagahefðar mun svífa yfir vötn- um og er óhætt að segja að marg- ar perlurnar eiga eftir að hljóma í Bíóhöllinni góðu, sem hefur hýst marga viðburðina í gegnum tíð- ina og veitt ófáar gleðistundir. Þór Breiðfjörð hefur af sumum verið talinn einn af okkar albestu söngv- urum og ekki stendur til að draga úr því enda rödd hans sérlega falleg og silkimjúk. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og er miðaverð 3.900 kr. Forsala að- göngumiða er hafin í versluninni Bjargi á Akranesi. -fréttatilkynning Kór Akraneskirkju með tónleika í upphafi aðventu Kór Akraneskirkju. Þór Breiðfjörð. Niki I. W. Leblans varði doktors- verkefni sitt við Auðlinda- og um- hverfisdeild LbhÍ á Hvanneyri síð- astliðinn mánudag. Verkefnið ber heitið „Náttúrulegir stiglar í jarð- vegshita og köfnunarefnisákomu: Ísland býr yfir einstökum náttúru- legum aðstæðum til rannsókna á áhrifum hnattrænna umhverfis- breytinga á kolefnishringrás vist- kerfa.“ Í verkefni hennar kemur meðal annars við sögu fuglaskítur, sem sérlegur áhrifavaldur í bindingu kolefnis í jarðvegi, en þó ekki nóg til að vega upp á móti hlýnuninni. Ein meginályktunin sem draga má af rannsóknum Niki er að hlýnun í framtíðinni muni hugsanlega valda hröðu og miklu tapi á kolefnisforða jarðvegs á norðurslóðum. „En hins vegar myndi aukin ákoma köfnun- arefnis á sömu svæðum auka bind- ingu kolefnis í jarðvegi. Þó er ólík- legt að áhrif köfnunarefnis-ákom- unnar nái að vega á móti hlýnun- inni,“ sagði í tilkynningu frá LbhÍ um doktorsvörnina. Niki hefur unnið í fjögur ár við rannsóknir á áhrifum jarðhita í graslendum við Hveragerði. Hún bar saman svörun vistkerfa á milli misgamalla jarðhitasvæða og gat þannig greint á milli skammtíma- og langtímaáhrifa jarðvegshlýnunar á virkni vistkerfa og jarðvegsferla. Þetta nota hún og leiðbeinandi hennar, Bjarni Diðrik Sigurðsson prófessor við LbhÍ, til þess að spá fyrir um áhrif hlýnandi loftslags á vistkerfi. Niki og Bjarni hafa einn- ig nýtt sér hina ungu eyju Surts- ey og aðrar eyjar Vestmannaeyja í rannsóknum sínum, en þær bjóða upp á einstakt tækifæri til að kanna svörun graslenda við mismunandi magni af fuglaskít. Áhrif köfnunar- efnis, sem fuglaskítur er ríkur af, á kolefnisbindingu vistkerfa getur vegið á móti áhrifum hlýnunar og niðurstaða Niki og Bjarna er ein- mitt sú,“ segir í tilkynningunni. „Hnattrænar umhverfisbreyting- ar eru meðal stærstu áskorana sem núlifandi kynslóðir standa frammi fyrir. Hitastig jarðar stígur jafnt og þétt vegna losunar manna á gróðurhúsalofttegundum (GHG), en mismunandi loftslagslíkön spá mjög ólíkt fyrir um hraða hlýnun- arinnar í framtíðinni vegna mikillar óvissu um ýmsa hitastigsháða ferla sem geta bæði temprað eða magnað hlýnunina.“ kgk Fuglaskítur í lykilhlut- verki í doktorsverkefni Gæðadagur Háskólans á Bifröst var haldinn í liðinni viku. Fyrirlestr- ar um næstu skref í gæðamálum ís- lenskra háskóla vógu þungt í dag- skránni auk umfjöllunar um gæða- verkefni sem Háskólinn á Bifröst beitir sér fyrir um þessar mund- ir. Ólafur Ísleifsson, gæðastjóri Há- skólans á Bifröst, segir daginn mikil- vægt nýmæli í gæðastarfi Háskólans á Bifröst. Á gæðadeginum fór Vilhjálmur Egilsson rektor yfir helstu verkefni sem unnið er að til að auka gæði náms og kennslu og prófgráða sem skólinn veitir og gæðastjóri kynnti breyting- ar á gæðahandbók skólans. Þá kynnti Magnús Diðrik Baldursson, gæða- stjóri Háskóla Íslands, breytingar á handbók Gæðaráðs íslenskra háskóla til undirbúnings næstu lotu úttekta á skólunum og Sigurður Óli Sigurðs- son, sérfræðingur hjá Rannís, kynnti áform Gæðaráðsins um úttektir á rannsóknastarfi háskólanna. „Fjörlegar umræður urðu um þennan þátt í dagskránni og dagur- inn tókst vel að öllu leyti. Gæðadag- urinn undirstrikar að gæðamál há- skóla eru í stöðugri þróun og þurfa að vera hluti af skólamenningunni eins og rektor komst að orði í fram- sögu sinni,“ segir Ólafur. -fréttatilkynning Gæðadagur á Bifröst Sigurður Óli Sigurðsson, sérfræðingur hjá Rannís, flytur hér erindi. Fimmtudaginn 17. nóvember kl. 19.30 verða tónleikar í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi. Bera þeir yfirskriftina Tékkland- Ísland. Þar verður stefnt sam- an tékkneskri og íslenskri tón- list og tónlistarflytjendum. PiKap strengjakvartettinn frá Tékklandi leikur strengjakvartett eftir Hildi- gunni Rúnarsdóttur ásamt kvar- tettum eftir Smetana, Sylvie Bodo- rová og Jaroslav Krček og fær svo til liðs við sig Eydísi Franzdóttur ástaróbóleikara til flutnings á Di- vertimento d’Amore eftir tékk- neska ungtónskáldið Daniel Pitra. „Það er ekki á hverjum degi sem býðst að hlýða á strengjakvartetta utan úr heimi og er þetta því bæði hvalreki fyrir unnendur klassískrar tóinlistar og nemendur Tónlistar- skólans á Akranesi sem munu njóta þess að hitta í návígi strengjaleikara í fremstu röð,“ segir Guðmundur Óli Gunnarsson skólastjóri. PiKap strengjakvartettinn kem- ur frá vestur Tékklandi; frá Pilzen og Karlovy Vary (Karlsbad). Kvar- tettinn hefur komið víða fram, s.s. á tónlistarhátíðum í Frakk- landi, Englandi, Þýskalandi, Ítalíu, Króatíu og Tékklandi, en einn- ig á Íslandi. Þau léku á tónleikum Tónlistarfélags Akureyrar í Ketil- húsinu og á Tíbrártónleikum í Salnum í Kópavogi árið 2004, við mjög góðar undirtektir og er því tilhlökkunarefni að heyra í hópn- um, nú á Akranesi. Meðlimir kvar- tettsins eru virkir í tónlistarlífinu í Tékklandi þar sem þau spila í Sin- fóníuhljómsveitinni í Karlovy Vary og Óperuhljómsveitinni í Pilzen auk þess að vera virk í kammertón- list, stunda kennslu og hafa leikið þjóðlagatónlist frá blautu barns- beini. Hildigunnur Rúnarsdóttir samdi strengjakvartettinn nr. 1 fyrir Pi- Kap strengjakvartettinn 2011-2012 og frumfluttu þau verkið í Tékk- landi árið 2012. Verkið heyrist nú í fyrsta sinn á Íslandi í uppruna- legri mynd. Strengjakvartett nr. 2 eftir hið kunna tékkneska tónskáld Bedrich Smetana verður einnig á dagskrá og er virkilega gaman að heyra tékkneska flytjendur leika tónlist hans eins og þeim er í blóð borið, af hita og blóðheitri tilfinn- ingu. Við fáum einnig að heyra nýrri strengjakvartetta: Strengja- kvartett nr. 4 eftir Sylvie Bodorovu (1954) sem stundaði m.a. nám hjá Donatoni á Ítalíu og Ton de Leeuw í Amsterdam eins og sum okkar fremstu tónskálda og einnig glæ- nýjan strengjakvartett eftir Jaros- lav Krček sem er best þekktur sem sjórnandi hinnar kunnu kammer- sveitar Musica Bohemica í Prag. Sá kvartett er saminn sérstaklega fyrir PiKap og var frumfluttur í Norræna húsinu s.l. sunnudag. Síðast en ekki síst er á efnisskrá Divertimento d’Amore eftir Dani- el Pitra, 22 ára tékkneskt tónskáld sem hefur m.a. stundað nám við Konservatoríið í Prag. Verkið var samið fyrir Eydísi, ástaróbóið og Pikap strengjakvartettinn 2012 og flutt það ár bæði í Tékklandi og á tónlistarhátíðinni Zeit für Neue Musik – í Bayreuth í Þýskalandi. Miðaverð er 2000, frítt fyr- ir nemendur Tónlistarskólans á Akranesi. -fréttatilkynning Rektorar allra íslensku háskólanna sendu nýverið verðandi ríkisstjórn og nýkjörnum þingmönnum áskor- un um að hækka framlög til háskól- anna að lágmarki um tvo milljarða króna árlega á næstu árum. Vil- hjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst, segir undirfjármögnun há- skólakerfisins hafa bitnað á Háskól- anum á Bifröst eins og öðrum há- skólum. „Á sama tíma og sjálft skóla- starfið hefur verið í mikilli sókn er mikil glíma við að ná endum saman í rekstrinum og erfiðar ákvarðanir framundan ef engin stefnubreyting verður hjá stjórnvöldum. Háskólinn á Bifröst mun gæta þess að nám og kennsla og allt það sem snýr beint að hagsmunum nemenda hafi algjöran forgang á þeirri vegferð sem ný rík- isstjórn og Alþingi velja skólanum,“ segir Vilhjálmur Í yfirlýsingu rektora til stjórn- valda segir m.a. að mikilvægt sé að ný ríkisstjórn geri sem fyrst áætl- un um hækkun fjárframlaga til há- skólastigsins sem er í takt við stefnu stjórnvalda í flestum nágrannaríkja okkar. „Slíkt felur í sér fjárfestingu í velsæld, atvinnutækifærum og í framtíð landsins,“ sögðu rektorarnir meðal annars. mm Erfiðar ákvarðanir framundan ef ekki koma aukin framlög Strengjakvertettinn PiKap heldur tónleika í Tónbergi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.