Skessuhorn - 16.11.2016, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 20166
Dagur nýsköp-
unar framundan
VESTURLAND: Dagur ný-
sköpunar og úthlutunarhá-
tíð Uppbyggingasjóðs Vest-
urlands verður haldin í Land-
námssetrinu í Borgarnesi
miðvikudaginn 23. nóvember
næstkomandi. Úthlutað verð-
ur styrkjum úr Uppbygging-
arsjóði Vesturlands til nýsköp-
unar í atvinnulífi, en úthlutað
er úr sjóðnum til nýsköpunar
tvisvar á ári. Síðast var úthlut-
að í lok marsmánaðar og er því
um seinni úthlutun þessa árs
að ræða. Bjarni Már Gylfason
frá Samtökum iðnaðarins og
Oddur Sturluson frá Icelandic
Startup flytja erindi um ný-
sköpun. Í lok dagskrár verða
síðan afhent nýsköpunarverð-
laun Samtaka sveitarfélaga á
Vesturlandi fyrir árið 2016.
Viðburðurinn er öllum opinn
og hefst dagskrá kl. 13:30.
-kgk
Ýmis óhöpp en
flest án meiðsla
VESTURLAND: Alls urðu
sjö umferðaróhöpp í umdæmi
Lögreglunnar á Vesturlandi
í síðustu viku, öll án mikilla
meiðsla að því best er vitað.
Erlendir ferðamenn misstu
bílaleigubíl sinn út af við Miðá
í Dalabyggð. Þeir voru í ör-
yggisbeltum og sluppu með
skrekkinn. Lítill jeppi fór út af
í hálku og valt á Vestfjarðavegi
í norðanverðri Bröttubrekku
um helgina. Tveir menn voru
í bílnum og voru þeir flutt-
ir til aðhlynningar á heilsu-
gæslustöðina í Búðardal. Þá
valt fólksbíll ofan við Borgar-
nes og var erlendur ökumaður
hans fluttur til aðhlynningar á
heilsugæslustöðina í Borgar-
nesi. Lítill fólksbíll flaut upp
í mikilli rigningu á Snæfells-
nesvegi um sl. helgi og rann
út af og valt. Tveir menn voru
í bílnum og sakaði þá ekki en
bíllinn var óökufær eftir velt-
una. -mm
Sveitarfélög
hætta að greiða
húsaleigubætur
LANDIÐ: Um næstu ára-
mót munu sveitarfélög hætta
að greiða húsaleigubætur.
Í stað þeirra munu koma
húsnæðisbætur sem greidd-
ar verða af ríkinu í gegnum
Vinnumálastofnun. Heima-
síðan www.husbot.is hef-
ur þegar verið opnuð en þar
er hægt að fá nánari upp-
lýsingar, reikna út upphæð-
ir til húsnæðisbóta og fleira.
Innan skamms verður hægt
að sækja um húsnæðisbæt-
ur þegar „mínar síður“ verða
teknar í gagnið en þar verð-
ur hægt að skrá sig inn og
sækja um bæturnar. Sérstak-
ar húsaleigubætur og stuðn-
ingur vegna leigu ungmenna
á heimavistum og námsgörð-
um verða enn hjá sveitarfé-
lögum. -grþ
Dóp fannst
við húsleit
AKRANES: Ætlað amfeta-
mín, kannabis og læknadóp
fannst við húsleit í kjallara-
íbúð á Akranesi um liðna
helgi. Fjórir piltar voru
handteknir og færðir til yf-
irheyrslu hjá Lögrelunni á
Vesturlandi. Tveir piltanna
voru undir lögaldri. -mm
40% meiri
uppsjávarafli
MIÐIN: Fiskafli íslenskra
skipa í október síðastliðnum
var rúmt 81 þúsund tonn.
Er það er 13% meiri afli en
í október 2015. Þetta kem-
ur fram á vef Hagstofunnar.
Botnfisksafli nam rúmum 40
þúsund tonnum og dróst sam-
an um tvö prósent samanbor-
ið við október í fyrra. Aukn-
ing varð í þorski á milli ára
en samdráttur í öðrum botn-
fisktegundum. Uppsjávarafl-
inn var tæp 39 þúsund tonn
í október sem er 40% meiri
afli en í sama mánuði í fyrra.
Síld var uppistaðan í uppsjáv-
araflanum, en rúm 32 þús-
und tonn veiddust af henni
samanborið við tæp 23 þús-
und tonn í október 2015. Sé
litið til tólf mánaða tímabils
frá nóvember 2015 til októ-
ber 2016, hefur heildaraflinn
dregist saman um 232 þúsund
tonn, eða 18 prósent saman-
borið við 12 mánaða tímabil
ári fyrr. Á þessu sama tímabili
hefur botnfiskafli aukist um
ellefu prósent, en samdrátt-
ur í heildarafla skýrist fyrst
og fremst af minni loðnuafla.
Metinn á föstu verðlagi var
aflinn í október síðastliðnum
2,9 prósent meiri en í sama
mánuði í fyrra. -kgk
Pósturinn þjón-
ustar Símann
LANDIÐ: Íslandspóstur er
nýr þjónustuaðili Símans.
Í fréttatilkynningu segir að
hjá Póstinum geti viðskipta-
vinir Símans nú nálgast allan
nauðsynlegan búnað. „Fag-
lega ráðgjöf varðandi net-
og símamál veita þjónustu-
fulltrúar í þjónustuveri Sím-
ans í síma 800-7000,“ segir í
tilkynningu. -mm
Fyrsta skóflustungan að nýrri við-
byggingu við Sjóminjasafnið á
Hellissandi var tekin 1. nóvem-
ber síðastliðinn. Heilmikil vinna
stendur nú fyrir dyrum við safn-
ið en töluverðar framkvæmdir eru
framundan nú í vetur. „Við erum að
taka safnið alveg í gegn. Við ætlum
að stækka það um rúmlega 70 fer-
metra og í viðbyggingunni verður
afgreiðsla þar sem hægt verður að
selja minjagripi og kaffiaðstaða,“
segir Þóra Olsen, stjórnarmeðlim-
ur Sjóminjasafnsins, í samtali við
Skessuhorn. Hún segir að einn-
ig standi til að taka salina í gegn
en þar verða settar upp tvær sýn-
ingar. Það er Björn G. Björnsson,
sýninga- og leikmyndahönnuður,
sem sér um sýningarnar en Lúð-
vík V. Smárason sá um hönnun á
nýju viðbyggingunni. Önnur sýn-
inganna mun sýna náttúruna við
haf og strönd en hin sjósókn und-
ir Jökli. „Þar verður aðalsýning-
argripurinn bátur sem alltaf hef-
ur verið í safninu. Það er Blikinn,
elsti bátur landsins, en hann frá
árinu 1826. Í raun er safnið byggt
utan um hann upphaflega,“ segir
Þóra. Verkefnið er styrkt af Snæ-
fellsbæ og af útgerðarfyrirtækj-
um í Rifi og á Hellissandi. „Þetta
væri ekki hægt ef Snæfellsbær og
útgerðirnar væru ekki að styrkja
okkur. Við erum heppin með að fá
svona góða aðstoð.“
Verður tilbúið
næsta sumar
Ný stjórn tók við í safninu í fyrra
og segir Þóra að ákveðið hafi ver-
ið að bæta aðstöðuna í safninu
og gera aðkomuna skemmtilegri.
„Safnið var óklárað og í raun eng-
in heild í því. Við ákváðum því að
lífga upp á það fyrir bæjarfélag-
ið. Eins er mikið af ferðamönnum
sem stoppar hér á svæðinu en Þor-
valdarbúð er hluti af safninu, síð-
asta þurrabúðin á Hellissandi. Svo
á Þjóðgarðsmiðstöðin nýja að rísa
rétt við hliðina á okkur,“ útskýr-
ir Þóra. Hún segir að fyrsta verk-
efnið sem ný stjórn tókst á við hafi
verið að klára bátaskýli sem byggt
var 2008. „Við kláruðum að ein-
angra það og setja rafmagn síðasta
vetur. Við fórum svo á fullt núna
15. september eftir að safnið lok-
aði og ætlum að reyna að klára
þetta fyrir sjómannadaginn á næsta
ári, það er stefnan,“ segir Þóra en
öll vinna stjórnarinnar við safn-
ið er unnin í sjálfboðastarfi. „Við
stefnum svo að því að hægt verði
að hafa safnið opið allt árið eft-
ir þessar breytingar. Þetta verður
vonandi voðalega flott,“ segir Þóra
Olsen að endingu og bætir því við
að ef einhverjir eru áhugasamir um
að styðja við uppbyggingu safnsins
þá er hægt að leggja inn á reikning
0190-26-2840. Kt: 550904-2840.
grþ/ Ljósm. Sjóminjasafnið, þo.
Sjóminjasafnið á Hellissandi stækkað
Örn Hjörleifsson tók fyrstu skóflustunguna að nýrri viðbyggingu við safnið 1.
nóvember sl.
Önnur af sýningunum sem settar verða upp mun heita Sjósókn undir Jökli. Þar
verður Blikinn aðalsýningargripurinn en hann er elsti bátur landsins.