Skessuhorn - 16.11.2016, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 201610
Á fundi bæjarstjórnar Akraneskaup-
staðar 8. nóvember sl. var frumvarpi
að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs fyr-
ir árið 2017 og þriggja ára áætlun
fyrir árin 2018-2020 vísað til síðari
umræðu í bæjarstjórn. Hún er ráð-
gerð 13. desember næstkomandi.
Árið 2017 er gert ráð fyrir jákvæðri
rekstrarafkomu í A hluta, rúmlega
185 milljónum króna og 171 millj-
óna króna afgangi í samstæðunni í
heild, A og B hluta. Skuldahlutfall
A hluta verður 92,6% og skulda-
hlutfall A og B hluta saman verður
88%. Skuldahlutfall samstæðunnar
lækkar verulega á milli ára, þar sem
lífeyrisskuldbinding vegna hjúkr-
unarheimilisins Höfða verða yfir-
færðar til ríkisins frá og með yfir-
standandi ári í samræmi við sam-
komulag fjármálaráðherra og Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga sem
nýverið var sagt frá í Skessuhorni.
Skuldahlutfall A hluta lækkar einn-
ig mikið þar sem afborganir af lán-
um hafa verið töluverðar en Akra-
neskaupstaður hefur greitt niður
langtímalán um 1,7 milljarð króna
á undanförnum fimm árum.
Gert er ráð fyrir 2,1 millj-
arði króna í fjárfestingar og fram-
kvæmdir á árunum 2017 til 2020 án
þess að gripið verði til lántöku. Á
bæjarstjórnarfundinum kom fram
að samstaða ríki á meðal bæjarfull-
trúa um helstu verkefni sem þarf að
ráðast í á næstu árum, meðal ann-
ars endurbyggingu gatna og upp-
byggingu og viðhald á íþrótta-
mannvirkjum og skólahúsnæði.
Ennfremur þarf að huga að frek-
ari þróun á Dalbrautarreit og Sem-
entsreitnum. Bæjarfulltrúar lýstu
yfir ánægju með þá samvinnu sem
hefur átt sér stað á milli meirihluta
og minnihluta við forgangsröð-
un verkefna en haldnir hafa verið
þrír vinnufundir með öllum bæjar-
fulltrúum þar sem farið hefur verið
yfir fyrirliggjandi verkefni og ósk-
ir. Fjárfestinga- og framkvæmda-
áætlun verður tekin fyrir við síðari
umræðu í bæjarstjórn sem fer fram
þann 13. desember, en samþykkt
var að fela skipulags- og umhverf-
isráði að ganga endanlega frá for-
gangsröðun verkefna til fjögurra
ára og senda tillögu þar að lútandi
til bæjarráðs.
Gert er ráð fyrir óbreyttu útsvari
á næsta ári, 14,52%, sömu álagn-
ingarhlutföllum í fasteignasköttum
og á árinu 2016 og lóðarleigu sem
verði áfram 1,598% af fasteigna-
matsverði atvinnulóða og 1,055%
af fasteignamatsverði íbúðarhúsa-
lóða. Þjónustugjaldskrár taki mið
af verðlagsþróun og munu hækka
um 3,2%. Íbúafjölgun á Akranesi
er tæplega 2% á milli áranna 2015
og 2016 en íbúum hefur fjölgað um
136 á einu ári og býr nú 7.021 á
Akranesi. mm
Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar
fyrir næsta ár sem og þriggja ára
áætlun var lögð fram á fundi sveit-
arstjórnar í síðustu viku og sam-
þykkt til síðari umræðu. Geirlaug
Jóhannsdóttir fulltrúi meirihlut-
ans fylgdi áætluninni úr hlaði. Þar
kemur fram að gert er ráð fyrir að
rekstrarafgangur verði 130,7 millj-
ónir króna fyrir A og B hluta sveit-
arsjóðs og að veltufé frá rekstri er
áætlað 386,6 milljónir. Ekki er gert
ráð fyrir lántökum á næsta ári og
heimild í fjárhagsáætlun fyrir yf-
irstandandi ár til lántöku var ekki
nýtt frekar en árið 2015. Skuldir
hafa því farið lækkandi og er áætl-
að að skuldahlutfall verði 125,8%
árið 2017. „Staða sveitarsjóðs
hefur vænkast verulega á undan-
förnum árum og uppfyllir Borg-
arbyggð nú ríflega lágmarksvið-
mið Eftirlitsnefndar með fjármál-
um sveitarfélaga um skuldaviðmið
og rekstrarjöfnuð,“ sagði Geirlaug
Jóhannsdóttir í kynningu á fjár-
hagsáætlun.
Aðrar lykiltölur í fjárhagsáætlun
eru þær að áætlað er að skatttekjur
hækki um 213 milljónir króna
milli áranna 2016 og 2017 og
muni nema 2.993 millj. kr. á næsta
ári. Það er 7% hækkun miðað við
útkomuspá fyrir árið 2016. Útsvar-
stekjur eru áætlaðar að nemi 1.592
millj. kr. og hækka um 7,6% mið-
að við útkomuspá fyrir árið 2016.
Áætlað er að fasteignaskattur nemi
um 450 millj. kr. sem er 2% hækk-
un frá 2016. Fasteignagjöld á íbúð-
arhúsnæði munu lækka frá fyrra
ári því álagningarprósenta verður
lækkuð úr 0,49 í 0,47. Áætlað er að
framlög Jöfnunarsjóðs nemi 891
millj. kr. sem er 10% hækkun frá
áætlaðri útkomu 2016.
Mötuneyti og
færsla leikskóla
stærstu verkefnin
Á næsta ári er ráðgert að Borgar-
byggð framkvæmi fyrir 275 millj-
ónir króna. Stærsta einstaka fram-
kvæmdin er viðbygging á fjölnota
matsal við Grunnskóla Borgarness
en áætlaður kostnaður við bygg-
inguna er um 300 milljónir króna
sem dreifist á tvö ár. Framkvæmd-
ir hefjast næsta vor. Næst-stærsta
framkvæmdin sem ráðist verður í
á næsta ári er flutningur leikskól-
ans Hnoðrabóls frá Grímsstöð-
um og á Kleppjárnsreyki og ger-
ir framkvæmdaáætlun ráð fyrir
um 80 milljónum króna í þá fram-
kvæmd en sala eigna mun að hluta
til koma á móti þeim kostnaði.
Malbikun Kveldúlfsgötu í Borg-
arnesi og endurnýjun gangstétta
verður framkvæmd á vormánuðum
2017 og kostar sú framkvæmd um
60 milljónir króna.
Í tillögum meirihlutans um
áhersluverkefni kemur einnig fram
að Frístundakort verður tekið upp
í Borgarbyggð á næsta ári í fyrsta
sinn. Framlag fyrir hvert barn á
aldrinum 6-18 ára verður samtals
20.000 á ári. Markmið framlags-
ins er að hvetja til þess að öll börn
og ungmenni taki þátt í frístund-
astarfi í Borgarbyggð, óháð efna-
hag. Í fjárhagsáætlun kemur einnig
fram að til stendur að selja núver-
andi húsnæði leikskólans Hnoðra-
bóls á Grímsstöðum auk parhúss
á Kleppjárnsreykjum til að mæta
kostnaði sveitarfélagsins við flutn-
ing leikskólans að Kleppjárnsreykj-
um.
Minnihlutinn bókaði
Guðveig Eyglóardóttir oddviti
Framsóknarflokks í minnihluta
sveitarstjórnar lagði fram bók-
un vegna afgreiðslu fjárhagsáætl-
unar. Þar segir m.a. að ljóst sé að
vinna við hagræðingu í rekstri síðla
árs 2014 og á árinu 2015, átak í
sölu eigna og auknar skatttekjur
hafa skilað þeim árangri að sjóðs-
staða sveitarfélagsins er nú mjög
góð. En eins og kunnugt er náð-
ist mikill árangur í rekstri sveitar-
félagsins á árinu 2015 og veltufé frá
rekstri tvöfaldaðist milli ára. „Með
Brúnni til framtíðar voru sett þau
markmið að rekstur sveitarfélags-
ins stæði undir 200 milljóna króna
fjárfestingu að jafnaði árlega. Í
þeirri áætlun sem hér er sett fram
er gert ráð fyrir 295 milljóna króna
fjárfestingu sem kann að skýrast af
því að lítið sem ekkert hefur ver-
ið framkvæmt á yfirstandandi ári.
Það þýðir þó að gengið verður á
handbært fé sem nemur 135 millj-
ón krónum í A hluta. Ef vilji er fyr-
ir því hjá meirihluta sveitarstjórn-
ar að halda sig við þau markmið
sem samþykkt voru með Brúnni til
framtíðar um að sala eigna væri m.a
nýtt til að greiða niður skuldir um-
fram afborganir lána og að rekstur
sveitarfélagsins standi undir fjár-
festingum til framtíðar er nauð-
synlegt að upplýsingar liggi fyrir
um áætlanir þar að lútandi,“ segir
í bókun Framsóknarflokks.
Vilja að næst
verði ráðist í stækkun
íþróttahúss
Fulltrúar Framsóknarflokksins í
sveitarstjórn vöktu athygli á því
að samkvæmt mannfjöldaspá væri
eðlilegt að næsta stóra verkefni á
eftir Grunnskólanum í Borgar-
nesi verði að ráðast verði í veru-
legar endurbætur og viðbyggingu á
íþróttahúsinu í Borgarnesi. „Hús-
ið er löngu sprungið vegna mikillar
aðsóknar. Mikilla endurbóta er þörf
og fyrir liggur að ekki hefur náðst
að ljúka við framkvæmdir sem þó
þegar hefur verið hafist handa við.
Þá er ljóst að eldri borgurum mun
fjölga næstu árin og mikilvægt er að
leggja grunn að því að aðstaða fyr-
ir alla aldurshópa til heilsueflingar
og félagsstarfs sé eins góð og kost-
ur er, enda verður það eðlileg krafa
til framtíðar. Mannfjöldaspár gefa
það einnig til kynna að það sé for-
gangsverkefni að ráðast í viðbygg-
ingu og framkvæmdir við leikskól-
ann Klettaborg.“
Hækka ekki í takt við
ákvörðun Kjararáðs
Loks má geta þess að Björn Bjarki
Þorsteinsson forseti sveitarstjórn-
ar lagði fram bókun vegna launa-
hækkana: „Sveitarstjórn Borgar-
byggðar samþykkir að laun kjör-
inna fulltrúa og nefndarmanna
hjá sveitarfélaginu taki ekki mið
af hækkunum samkvæmt nýfölln-
um úrskurði Kjararáðs. Ákvörðun
þessi verður endurskoðuð þegar
Alþingi hefur tekið til umfjöllunar
úrskurð Kjararáðs.“ Bókun Björns
Bjarka var samþykkt samhljóða.
mm
Skuldahlutfall Akraneskaupstaðar snarlækkar
Byggja mötuneyti við grunnskólann í
Borgarnesi og færa Hnoðraból
Staða sveitarsjóðs Borgarbyggðar hefur vænkast á síðustu árum og ákvæði um skuldaviðmið eru ríflega uppfyllt
Stærsta verkefni sveitarfélagsins á næsta ári verður að hefja byggingu mötuneytis við grunnskólann í Borgarnesi. Leikskólinn Hnoðraból verður færður að Kleppjárnsreykjum og heimild veitt til
sölu núverandi leikskólahúss.