Skessuhorn


Skessuhorn - 16.11.2016, Síða 13

Skessuhorn - 16.11.2016, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2016 13 Þekking Gæði Þjónusta Grensásvegi 46 - 108 Reykjavík - sími 5113388 Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is SK ES SU H O R N 2 01 6 1244. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþing- salnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 22. nóvember kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0. Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir: Sjálfstæðisflokkurinn í Stúkuhúsinu, laugardaginn • 19. nóvember kl. 10.30. Björt framtíð að Smáraflöt 1, Stillholti 16-18, mánudaginn • 21. nóvember kl. 20.00. Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18, • laugardaginn 19. nóvember kl. 11.00. Frjálsir með Framsókn í Haraldarhúsi, Vesturgötu 32, • kjallara, gengið inn frá palli, mánudaginn 21. nóvember kl. 20.00. Bæjarstjórnarfundur Opið: INNRÉTTINGAR DANSKAR Í ÖLL HERBERGI HEIMILISINS FJÖLBREYTT ÚRVAL AF HURÐUM, FRAMHLIÐUM, KLÆÐNINGUM OG EININGUM, GEFA ÞÉR ENDALAUSA MÖGULEIKA Á AÐ SETJA SAMAN ÞITT EIGIÐ RÝMI. STERKAR OG GLÆSILEGAR Á Lýsuhóli á sunnanverðu Snæfells- nesi er starfrækt fjölskyldufyrirtæki þar sem þau hjón Jóhanna Ásgeirs- dóttir og Agnar Gestsson bjóða upp á gistingu og reiðtúra. Þau standa í stórframkvæmdum þessa dagana en verið er að reisa 900 fermetra reið- höll ásamt 60 fermetra millibygg- ingu. Einnig verður 80 fermetra kaffistofa á loftinu hjá þeim. Fram- kvæmdir ganga nokkuð vel, að sögn Agnars, og vonast hann til að ná að loka reiðhallarbyggingunni eftir um það bil hálfan mánuð en að verkið klárist um áramótin. Hann tekur þó fram að alltaf sé erfitt að áætla verk- lok á svona framkvæmdum. Reiðhöllina ætla þau að nýta í ferðaþjónustuna og til tamninga á hrossum. Þau voru með 70 hross á járnum í hestaleigunni í sum- ar og var nóg að gera. Hugmynd- in er að gestir geti jafnvel fengið leiðsögn innanhúss áður en lagt er af stað í ferðir. Segir Agnar að er- lendir ferðamenn biðji mikið um að fá leiðbeiningar áður en farið er af stað og jafnvel ef illa viðrar að geta aðeins farið á bak innandyra. Einnig ætla þau Agnar og Jóhanna að bjóða upp á að taka hross í þjálf- un fyrir aðra en á staðnum verður bæði vatnshlaupabretti, hringekja og titraragólf til þjálfunar og styrk- ingar á hrossum. Sá búnaður nýtist vel til tamninga. Þó mikið hafi ver- ið að gera í sumar er tíminn núna frekar rólegur í gistingunni þó eitt- hvað sé um gesti. Í hestaleigunni er dáldið að gera þegar veður er gott, að sögn Agnars, en það mætti aukast og hyggjast þau auka mark- aðssetninguna til að höfða til gesta með þjónustu allt árið. þa Uppbygging og aukin verkefni á Lýsuhóli Horft yfir bæinn. Lengst til hægri er nýja reiðhöllin. Fjær eru bústaðir sem leigðir eru út til ferðamanna. Árlegur Flóamarkaðurinn var hald- inn í fjórða sinn þriðjudaginn 8. nóvember í Grunnskóla Borg- arfjarðar á Hvanneyri. Að sögn Helgu Jensínu Svavarsdóttur deild- arstjóra er verkefnið í anda þeirr- ar stefnu sem skólinn hefur sett sér með Grænfánaviðurkenningunni og Leiðtoginn í mér. „Sjálfbærni, nýtni og virðing fyrir verðmætum er í hávegum höfð auk markmiða um að styrkja tengsl við nærsam- félagið og efla samkennd og vitn- eskju um hvernig hægt er að láta gott af sér leiða,“ segir Helga Jens- ína. mm/ Ljósm. hjs Héldu Flóa- markað á Hvanneyri

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.