Skessuhorn - 22.02.2017, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 201722
Eyrarrósin, sem árlega er veitt
framúrskarandi menningarverkefni
á landsbyggðinni, var afhent við
hátíðlega athöfn í Verksmiðjunni á
Hjalteyri fimmtudaginn 16. febrú-
ar. Það var tónlistarhátíðin Eistna-
flug í Neskaupstað sem hlaut við-
urkenninguna að þessu sinni. Frú
Eliza Reid, verndari Eyrarrósarinn-
ar, afhenti verðlaunin. Verðlaun-
in sem Eistnaflug hlýtur er fjár-
styrkur; tvær milljónir króna, auk
nýs verðlaunagrips sem hannað-
ur er af Friðriki Steini Friðrikssyni
vöruhönnuði. Alþýðuhúsið á Siglu-
firði og Vesturfarasetrið á Hofsósi,
sem einnig voru tilnefnd til verð-
launanna, hlutu hvort um sig 500
þúsund krónu peningaverðlaun.
Að Eyrarrósinni standa sem fyrr
Listahátíð í Reykjavík, Byggða-
stofnun og Flugfélag Íslands og
var þetta í 13. skipti sem verðlaun-
in voru veitt. Við upphaf athafnar
í Verksmiðjunni undirrituðu Vig-
dís Jakobsdóttir listrænn stjórnandi
Listahátíðar, Aðalsteinn Þorsteins-
son forstjóri Byggðastofnunar og
Árni Gunnarsson framkvæmda-
stjóri Flugfélags Íslands samninga
um áframhaldandi samstarf um
Eyrarrósina allt til ársins 2020.
Sú hefð hefur skapast á undan-
förnum árum að verðlaunaafhend-
ingin fari fram í höfuðstöðvum
verðlaunahafa síðasta árs. Kamm-
erkórinn Hymnodia undir stjórn
Eyþórs Inga Jónssonar flutti tónlist
við athöfnina sem ómaði líkt og úr
öðrum heimi í hljómmiklum salar-
kynnum Verksmiðjunnar.
mm
Eistnaflug er handhafi
Eyrarrósarinnar 2017
Verðlaunahafar, verndari verðlaunanna ásamt fulltrúum þeirra stofnana og fyrir-
tækja sem standa að Eyrarrósinni.
Freisting vikunnar
Lummur eru kannski bara pönnu-
kökur sem krefjast minni fyrir-
hafnar. Þær eru samt sem áður
ágætis freisting, þótt þær séu
hversdagslegar. Deigið er hægt
að hræra saman á óteljandi vegu
og það verður sjaldnast eins hjá
mér. Sjálfri finnst mér gott að
gera lummur þegar það er til af-
gangsgrautur af einhverju tagi,
hafragrautur, grjónagrautur eða
bara hrísgrjón. Það er svo gaman
að geta notað afganga til að búa
til eitthvað gott. Sjaldnast mæli
ég neitt með mæliskeiðum eða
-glösum, heldur hendi öllu í skál
og hræri þangað til allt er orð-
ið eins og ég held að það eigi að
vera. Þetta er fljótlegt og vinsælt
á heimilinu, hjá ungum sem öldn-
um.
Það er auðvelt að gera lummur,
það þarf einfaldlega að hræra
saman eftirfarandi í skál:
2 dl hveiti
1 msk sykur
1 tsk lyftiduft
1/4 teskeið salt
1 dl haframjöl (ef notaður er einhvers
konar grautur er þetta óþarfi)
2 1/2 dl mjólk
2 msk matarolía
Vanilludropar eftir smekk
Auðveldast er að nota lummu-
pönnu til að steikja lummurn-
ar. En ef það er ekki til er í fínu
lagi að nota venjulega pönnu og
sósuausu til að ausa litlum slett-
um á pönnuna og steikja við
miðlungshita. Hafa ber í huga að
deigið þarf að vera nokkuð þykkt
svo það renni ekki út um allt á
pönnunni.
Lummur er hægt að bera fram
með hverju sem er. Girnilegt er
að setja nutella á borðið ásamt ný-
skornum jarðarberjum. Ef maður
vill eitthvað sem er aðeins holl-
ara er hægt að setja smjör og ost
á borðið, hummus eða kjötálegg.
Reyktur og grafinn lax er sælgæti
með lummum. Það er hægt að
bera lummur fram við hvaða til-
efni sem er, en allra best er að hafa
þær með eftirmiðdagskaffinu á
blautum febrúardegi þegar mað-
ur þarf að lífga upp á hversdag-
inn. Fljótlegt og skemmtilegt og
ekki verra ef hægt er að bæta smá
sumri á borðið með ávöxtum.
klj
Lummur við ýmis tilefni
Um 100 skátar frá Skátafélaginu
Stíganda í Dalabyggð og Skátafé-
laginu Erninum í Grundarfirði
komu saman á Laugum í Sælingsdal
um helgina þar sem Harry Potter
ævintýrið var alls ráðandi. Gamla
Laugaskóla var breytt í Hogwart
skóla undir vaskri stjórn skátafor-
ingja og starfsmanna Ungmenna-
og tómstundabúðanna á Laugum.
Fálkaskátar, dróttskátar og rekka-
skátar voru að störfum alla helgina
en yngsti hópurinn, drekaskátar,
átti langan og góðan laugardag í
skólanum.
Nemendum galdraskólans var
skipt niður á fjórar vistir og sér-
stakur galdrahattur flokkaði alla á
rétta vist. Ýmist var unnið í hópum
eða allir saman og nokkuð víst að
allir lærðu einhverja galdra. Með-
al annars voru búin til seyði, skrif-
að með ósýnilegu bleki og haldnar
kvöldvökur eins og skátum er ein-
um lagið.
sm/ Ljósm. Skátafélagið Stígandi.
Galdraskóli á
Laugum í Sælingsdal
Fálka-, drótt- og rekkaskátar ásamt foringjum.
Galdrastrákar með sprotana sína. Sölvi með galdraseyði.
Anna Magga galdrakerling og skátaforingi hjá Stíganda. Þessi virðast kunna huliðsgaldur.