Skessuhorn - 22.02.2017, Qupperneq 23
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2017 23
Stórtónleikar
á laugardag
Það var Sveinn Arnar sem átti hug-
myndina að Söngdögunum. Hann
segir þetta vera eitthvað sem hann
langar að gera meira af. „Það er
hollt að syngja og það hefur gert
mikið fyrir mig í gegnum tíð-
ina. Það eru til margar rannsókn-
ir sem benda til þess að kórsöng-
ur eða samsöngur hafi góð áhrif
á líðan og heilsu fólks. Ég byrjaði
sjálfur ungur í kór og að læra söng
og tónlistin hefur skipt mig miklu
máli. Mér finnst gaman að vinna
með fólki í þessu, að heyra hlutina
mótast og gerast og koma svo fram
með afraksturinn.“ Hann vonast
til þess að þetta verði fyrstu Söng-
dagarnir af mörgum. „Við erum
að hugsa um að bæta við þetta,
kannski að ári eða í haust. Að fá
þá kannski fleiri kóra til að vera
með og búa til stóran viðburð með
námskeiðum og fyrirlestrum,“ út-
skýrir hann.
Söngdögunum lýkur á laugardag
með stórtónleikum í Tónbergi,
þar sem stíga á svið Kór Akranes-
kirkju, Sveinbjörn Hafsteinsson
söngvari og félagar úr hljómsveit-
inni Bland. „Þar verður fjölbreytt
efnisskrá, kraftballöður og róm-
antískir ástarsöngvar. Þarna mun-
um við sýna í raun hvað er hægt
að gera í kórsöng með því að fá til
liðs við okkur hljómsveit en einn-
ig verða sungin lög án undirleiks.
Þetta verður mjög fjölbreytt og
allt verða þetta lög sem fólk þekk-
ir,“ segir Sveinn Arnar. Miðaverð
inn á tónleikana er 3.500 krónur
við inngang en hægt er að tryggja
sér miða í forsölu á 3.000 krón-
ur í versluninni Bjargi við Still-
holt. Ekkert kostar inn á fyrri við-
burðina tvo.
grþ
Gróska garðvöruverslun á Akra-
nesi hefur bætt við vöruúrvalið og
selur núna gæludýrafóður og fylgi-
hluti fyrir gæludýr auk garðvöru,
blóma og grænna plantna af öllum
gerðum. Kristjana Helga Ólafs-
dóttir, annar eiganda Grósku, seg-
ir að gæludýrahorn sem þetta séu
ekki óalgeng í garðvöruverslunum.
Heildsali Royal Canin hafi leitað
til þeirra eftir að Veiðibúðinni var
lokað og lagt til að þau tækju upp
sölu á vörunum. „Stefnan er sú að
bjóða upp á hágæða fóður,“ segir
Kristjana og bætir við að þau hafi
einnig bætt fylgihlutum fyrir gælu-
dýr í vöruúrvalið. Nú sé líka hægt
að kaupa hundabein, dýranammi,
sjampó, tauma og fiskafóður og þau
stefni á að bæta úrvalið enn frek-
ar. Til dæmis sé á döfinni að selja
kattaólar líka.
Kristjana segir þau hafi fengið
mjög jákvæð viðbrögð frá bæjarbú-
um við því að selja gæludýrafóður
á Akranesi. „Það er markmið okk-
ar að þjónusta bæjarbúa vel,“ segir
Kristjana. Þjónustan í búðinni miði
að því að koma til móts við við-
skiptavinina og ef eitthvað vantar
séu þau boðin og búin að panta inn
þær vörur sem óskað er eftir. „Við
byrjuðum smátt, með 1-2 kílóa
poka af gæludýrafóðri,“ segir Krist-
jana en það sé þó lítið mál að panta
stærri einingar fyrir þá viðskipta-
vini sem óska eftir því. „Ef við erum
ekki með þetta á staðnum, þá redd-
um við því.“
Grósku garðvöruverslun hafi
verið vel tekið þegar hún var opn-
uð á sínum tíma. „Það tekur alltaf
tíma að koma svona af stað, en við-
tökurnar sem við höfum fengið eru
vonum framar og við finnum að við
erum velkomin.“
klj
Landssamband bakarameistara
efndi nýlega til árlegrar keppni um
Köku ársins. Keppnin fer þann-
ig fram að keppendur skila inn til-
búnum kökum sem dómarar meta
og velja úr þá sem þykir sameina þá
kosti að vera bragðgóð, falleg og
líkleg til að falla sem flestum í geð
og hlýtur hún titilinn Kaka ársins.
Höfundur köku ársins 2017 er Dav-
íð Arnórsson bakari í Vestmanna-
eyjum. Sigurkakan er lagskipt og
inniheldur m.a möndlukókosbotn,
hindberjahlaup og skyrfrómas með
lime. Sala á kökunni hófst í bakarí-
um félagsmanna Landssambands
bakarameistara um allt land síðast-
liðinn föstudag og verður til sölu
það sem eftir er ársins.
mm
Kaka ársins lítur dagsins ljós
Sigurkakan er lagskipt og inniheldur m.a möndlukókosbotn, hindberjahlaup og
skyrfrómas með lime.
Gróska garðvöruverslun selur
nú einnig gæludýrafóður
Svokallaðir Söngdagar hefjast á
Akranesi í dag, miðvikudag. Um
er að ræða röð viðburða sem Kór
Akraneskirkju, Kalman - listafélag
og kirkjan sameinast um að halda.
Að sögn Sveins Arnars Sæmunds-
sonar organista verða viðburðirnir
þrír talsins og hefjast þeir á sálma-
kvöldi í Akraneskirkju í kvöld sem
ber yfirskriftina „Umhverfis jörð-
ina í sálmasöng“. Þar mun Mar-
grét Bóasdóttir, söngmálastjóri
þjóðkirkjunnar, kynna og kenna
sálma frá ýmsum heimshlutum.
Auk hennar kemur fram kórinn
Vox Populi undir stjórn Hilm-
ars Arnar Agnarssonar, en kórinn
mun syngja fyrir gesti og leiða al-
mennan söng ásamt Sveini Arnari
og félögum úr Kór Akraneskirkju.
Föstudaginn 24. febrúar mun Kal-
man – listafélag standa fyrir söng-
stund í Vinaminni sem ber heitið
„Að syngja saman“. „Þetta verður
samsöngs stund fyrir almenning.
Þarna getur fólk komið og sungið
saman við undirleik. Sungin verða
lög sem fólk þekkir vel, dægurlög,
ættjarðarlög og allt mögulegt og
textarnir verða uppi á skjá. Þetta er
fyrir alla fjölskylduna eða alla sem
langar til að koma og syngja einum
rómi,“ segir Sveinn Arnar.
Söngdagar framundan á Akranesi
Sveinn Arnar Sæmundsson organisti.
Kór Akraneskirkju stendur fyrir Söngdögum ásamt Kalman - listafélagi og kirkjunni.