Skessuhorn


Skessuhorn - 22.02.2017, Síða 30

Skessuhorn - 22.02.2017, Síða 30
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 201730 Hvernig var konudeginum fagnað á þínu heimili? Spurning vikunnar (spurt á Akranesi) Guðrún Sigvaldadóttir Í faðmi bóndans. Guðbjörg Gísladóttir Bara í rólegheitum heima. Ósk Hjaltadóttir Það var eldaður bröns fyrir mig, mér gefin blóm og svo eldaður góður kvöldmatur fyrir mig. Tómas Árnason Byrjaði á bröns, egg og beikon, og svo eldaði ég kvöldmat. Valmundur Árnason Ég ætlaði með hana út að borða en það var allt upppantað. Svo ég var með rómantískt bíókvöld. Nýverið var úthlutað úr Forskoti - afrekssjóði kylfinga og fá sjö at- vinnukylfingar styrk úr sjóðnum að þessu sinni. Sjóðurinn hefur frá upphafi haft það að markmiði að styðja við þá kylfinga, atvinnumenn sem og áhugamenn, sem stefna á að komast í fremstu röð í heiminum í golfíþróttinni. Kylfingarnir sem nú hljóta stuðning eru Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Valdís Þóra Jónsdótt- ir, Birgir Leifur Hafþórsson, Axel Bóasson, Andri Þór Björnsson, Har- aldur Franklín Magnús og Guð- mundur Ágúst Kristjánsson. Kylfingarnir Ólafía Þórunn Krist- insdóttir og Valdís Þóra Jónsdótt- ir leika báðar á sterkustu mótaröð- um atvinnukylfinga og fá þær hæstu styrkina. Ólafía er með keppnisrétt á LPGA mótaröðinni í Bandaríkjun- um og Valdís á LET Evrópumóta- röðinni. Valdís Þóra er, eins og les- endur þekkja, félagsmaður í Golf- klúbbnum Leyni á Akranesi. Hún tryggði sér keppnisrétt á LET Evr- ópumótaröðinni í desember síðast- liðnum og varð í öðru sæti á loka- úrtökumótinu í Marokkó. Valdís er að hefja sitt fyrsta ár á LET Evrópu- mótaröðinni en hún hefur leikið í þrjú tímabil á LET Access mótaröð- inni í Evrópu. Valdís Þóra, sem er 27 ára, hefur tvívegis staðið uppi sem sigurvegari á Íslandsmótinu í golfi, árin 2009 og 2012. Að þessu sinni kemur Bláa Lónið hf. inn í hóp þeirra fyrirtækja sem styðja við bakið á íslenskum afrek- skylfingum. Stofnendur Forskots af- rekssjóðs eru Eimskip, Valitor, Golf- samband Íslands, Íslandsbanki og Icelandair Group. Vörður trygg- ingar bættist í hópinn árið 2016 og nú Bláa Lónið. Þetta er í sjötta sinn sem íslenskir kylfingar fá úthlutað úr sjóðnum sem stofnaður var 2012. mm/golf.is Sjö atvinnukylfingar fá styrk úr afrekssjóði Þorlákur Árnason þjálfari U17 ára landsliðs karla í knattspyrnu hef- ur valið 18 manna hóp sem tekur þátt í æfingamóti í Skotlandi dagana 27. febrúar - 3. mars. Leikið verður gegn Skotlandi, Austurríki og Króa- tíu. Brynjar Snær Pálsson leikmað- ur Skallagríms í Borgarnesi var val- inn í hópinn. „Óskar knattspyrnu- deild Skallagríms honum innilega til hamingju með þann áfanga og óskar honum góðs gengis á mótinu,“ segir Viktor Már Jónasson framkvæmda- stjóri Skallagríms. mm Brynjar Snær valinn í U17 ára landslið karla Norðurálsmótið í knattspyrnu fyr- ir 7. flokk drengja hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem einn stærsti íþróttaviðburður landsins og er orðinn fastur liður í menningarlífi Akranesbæjar. Norðurálsmótið 2017 verður haldið helgina 23.-25. júní næst- komandi. Verður mótið með hefð- bundnu sniði. Þátttakendur úr 7. flokki karla leika í sjö manna liðum en úrslitin eru ekki skráð. Opnað verður fyrir skráningar keppnisliða til þátttöku í mótinu í sumar miðvikudaginn 1. mars næst- komandi og rennur skráningar- fresturinn út föstudaginn 10. mars. kgk/ Ljósm. úr safni. Íþróttanefnd Félags eldri borgara í Borgarnesi og nágrenni efndi til op- ins púttmóts með nýju sniði í Brák- arey fimmtudaginn 16. febrúar. Var mótið nefnt „Þorraþræll 2017“. Hingað til hafa eldri borgarar leik- ið í einum flokki 60 ára og eldri en nú var keppt í aldursflokkum. Mælt- ist það vel fyrir og varð mæting von- um framar. Skráðir keppendur voru 47 talsins frá fjórum sveitarfélögum auk heimamanna. Þar af voru 17 keppendur í elsta aldursflokknum 80 ára og eldri. Mikil leikgleði og einbeitni ríkti á mótinu. Þótti mótið takast það vel að væntanlega verður það haldið aftur að ári enda aðstæð- ur óvíða eins góðar og í Eyjunni. Þar hefur Golfklúbbur Borgarness og eldri borgarar komið sér upp góðri aðstöðu í gamla sláturhúsinu í Brákarey. Mótsstjóri á Þorraþræl var Ingimundur Ingimundarson. Jón Þór Jónasson í Borgarnesi varð hlutskarpastur í flokki karla 80 ára og eldi með 63 högg. Annar varð Karl E. Loftsson Mosfellsbæ með 65 högg og þriðji Sigurbjörn Valde- marsson Garðabæ með 66 högg. Í sama flokki kvenna varð hlutskörp- ust Edda Elíasdóttir á Akranesi með 68 högg. Önnur varð Valdís Ragn- arsdóttir Mosfellsbæ með 80 högg og þriðja Erla Guðrún Kristjáns- dóttir Selfossi með 82 högg. Í flokki 70-79 ára karla varð Sig- urður Þórarinsson í Borgarnesi efst- ur með 58 högg. Í öðru og þriðja sæti urðu Borgnesingarnir Þorberg- ur Egilsson með 63 högg og Björn Jóhannsson með 66 högg. Í sama aldursflokki kvenna var Jóhanna Sigurðardóttr Mosfellsbæ efst með 59 högg. Önnur varð Ásdís B. Geir- dal Hvanneyri með 61 högg og Jytta Juul sem búsett er í Reykjavík en keppir fyrir Borgarbyggð varð í þriða sæti með 63 högg. Þórhallur Teitsson á Hvanneyri varð efstur í flokki karla 60 – 69 ára með 65 högg. Annar varð Árni Ás- björn Jónsson Borgarnesi með 68 högg. Í sama aldursflokki kvenna sigraði Anna Ólafsdóttir í Borgar- nesi með 60 höggum. Guðrún Birna Haraldsdóttir Borgarnesi varð önn- ur með 62 högg og Kristbjörg Stein- grímsdóttir í Mosfellsbæ þriðja með 72 högg. mm/ii Norðurálsmótið verður síðustu helgina í júní Verðlaunahafar á Þorraþræl 2017. Á myndina vantar Árna Á Jónsson. Ljósm. ii. Tæplega 50 eldri borgarar á púttmóti Leikmenn ÍA lögðu land undir fót og mættu toppliði Hattar aust- ur á Egilsstöðum í 1. deild karla í körfuknattleik á fimmtudaginn. Skagamenn gerðu enga frægðar- för. Þeir voru fáliðaðir, aðeins sjö leikmenn tóku þátt í leiknum og máttu að lokum sætta sig við stórt tap. Höttur sigraði með 101 stigi gegn 66 stigum ÍA. Heimamenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og náðu yfirhönd- inni strax í fyrsta leikhluta. Þeir komust í 21-9 seint í fyrsta leik- hluta en þá tóku Skagamenn við sér og luku upphafsfjórðungnum af krafti. Fjórum stigum munaði að honum loknum, Höttur leiddi 24-20. Heimamenn juku forskot sitt í öðrum leikhluta, komust mest 17 stigum yfir en ÍA minnk- aði muninn í tólf stig fyrir hléið, 48-36. Höttur réð áfram ferðinni í síð- ari hálfleik og Skagamenn höfðu ekki burði til að gera atlögu að for- ystunni. Þess í stað bættu heima- menn jafnt og þétt við forskot- ið í síðari hálfleik. Þeir höfðu 19 stiga forskot fyrir lokafjórðung- inn, 72-53. Það sem eftir lifði leiks héldu Hattarmenn upptekn- um hætti. Þeir bættu hverju stig- inu á fætur öðru á stigatöfluna og sigruðu að lokum með 35 stigum, 101-66. Derek Shouse var atkvæðamest- ur Skagamanna og aðeins hárs- breidd frá því að setja upp þrennu. Hann skoraði 28 stig, tók tíu frá- köst og gaf níu stoðsendingar. Ás- kell Jónsson skoraði 15 stig og Sig- urður Rúnar Sigurðsson 13. Skagamenn hafa tíu stig eftir 19 leiki og sitja í 8. og næstneðsta sæti deildarinnar, tveimur stigum á eft- ir liði FSu í sætinu fyrir ofan en með öruggt forskot á Ármann, sem er stigalaust á botninum. Næsti leikur ÍA fer fram föstudaginn 24. febrúar næstkomandi þegar liðið tekur á móti Vestra. kgk Fýluferð til Egilsstaða Derek Shouse var hársbreidd frá þrennunni þegar ÍA tapaði fyrir Hetti. Ljósm. úr safni/ jho.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.