Skessuhorn - 26.04.2017, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 20172
hluta. Þar af námu rekstrartekjur
A hluta 5.627,4 milljónum.
Álagningarhlutfall útsvars var
14,52%, sem er lögbundið hámark.
Álagningarhlutfall fasteignaskatts í
A flokki nam 0,3611% en lögbund-
ið hámark þess er 0,5%, í B flokki
nam álagningarhlutfallið 1,32%
sem er lögbundið hlutfall og í C-
flokki nam hlutfallið 1,650% en
lögbundið hámark þess er 1,32%,
auk heimildar sveitarstjórna til að
hækka álagningu A og C flokka um
allt að 25%.
Rekstrarniðurstaða A hluta fyr-
ir óreglulega liði, þ.e. uppgjör líf-
eyrisskuldbindingar Höfða, er já-
kvæð um 152,9 milljónir en í fjár-
hagsáætlun var gert ráð fyrir um
93,2 milljóna króna jákvæðri nið-
urstöðu. Eftir óreglulega liði var
rekstrarniðurstaða A hluta jákvæð
um 122,9 milljónir, en gert hafði
verið ráð fyrir 66,6 milljóna króna
afgangi.
Rekstrarniðurstaða B hluta fyr-
ir óreglulega liði, uppgjör lífeyris-
skuldbindinga Höfða, var neikvæð
um 32,6 milljónir króna, en í fjár-
hagsáætlun var gert ráð fyrir nei-
kvæðri niðurstöðu upp á um 48,5
milljónir. Eftir uppgjör lífeyris-
skuldbindgar Höfða var rekstrar-
niðurstaða B hlutans jákvæð um
892,2 milljónir, en gert hafði verið
ráð fyrir 936,4 milljóna króna já-
kvæðri niðurstöðu í fjárhagsáætl-
un.
Skuldaviðmið Akraneskaupstað-
ar er 62% en var 84% árið 2015
og skuldahlutfall er 94% en var
116% árið áður. Veltufé frá rekstri
er 14,6% en var 11,9%, eiginfjár-
hlutfall er 53% en var 45% og
veltufjárhlutfall er 1,7 en var 1,3
árið 2015. kgk
Knattspyrnuáhugamenn til sjávar og
sveita geta glaðst því keppni í efstu deild-
um karla og kvenna er handan við horn-
ið. Konurnar hefja leik á morgun, fimmtu-
dag, en karlarnir á sunnudaginn, 30.
apríl. Í efstu deild karla eiga Vestlending-
ar tvo fulltrúa, ÍA og Víking Ólafsvík, sem
bæði leika sinn fyrsta leik á sunnudag-
inn. Kvennalið ÍA og Víkings leika bæði í
1. deildinni og þar hefst keppni 12. maí
næstkomandi.
Vaxandi sunnanátt, 10-15 m/s á Suður-
og Vesturlandi verður seinni partinn á
morgun, fimmtudag. Fer að rigna en lík-
ur á slyddu eða snjómuggu til fjalla um
kvöldið. Hægari vindur norðan- og aust-
anlands og léttskýjað. Hiti 5 til 12 stig, hlýj-
ast á norðausturhorninu. Kólnar vestan-
lands með kvöldinu. Suðaustan 8-15 m/s
og talsverð rigning suðaustanlands á
föstudag. Slydda á Vestfjörðum fyrir mið-
nætti. Bjart fyrir norðan og austan. Hiti 4
til 10 stig en kólnar niður undir frostmark
vestanlands. Austan- og suðaustan 8-15
m/s og rigning með köflum á laugardag,
en þurrt á Norður- og Norðvesturlandi.
Kólnar lítið eitt. Á sunnudag og mánudag
er útlit fyrir austan- og suðaustan 5-13
m/s. Skýjað og rigning með köflum en úr-
komulítið norðaustanlands. Hiti 2 til 10
stig, hlýjast á Suðvesturlandi.
„Ætlar þú að ferðast í sumar?“ var spurn-
ingin sem lesendum vefs Skessuhorns
gafst kostur á að svara í síðustu viku. „Já,
innanlands“ sögðu flestir, eða 32% en
næstflestir, 29%, sögðu „já, bæði innan-
lands og utan“. „Veit það ekki ennþá“
sögðu 17%, „já, erlendis“ sögðu 13% og
„nei, ekkert“ sögðu fæstir eða 9%.
Í næstu viku er spurt: „Ætlar þú að
fylgjast með fótboltanum í sumar?“
Helga R. Höskuldsdóttir ljósmóðir lætur
af störfum á morgun, fimmtudag, eftir að
hafa starfað sem ljósmóðir á Akranesi í
tæp 47 ár. Hin síunga og eldspræka Helga
er Vestlendingur vikunnar!
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Þórarinn lægstur
á leið 11
BORGARBYGGÐ: Í frétt um
opnun tilboða í skólaakstur í
Borgarbyggð í síðustu viku kom
fram að Ben og félagar hefðu
átt lægsta boð í akstur á leið 11
(fyrri) í Hálsasveit. Þetta reynd-
ist ekki rétt því lægsta boð átti
Þórarinn Skúlason á Steindórs-
stöðum í Reykholtsdal. Tilboð
Þórarins hljóðaði upp á 29.606
kr. á ferð en tilboð Ben og fé-
laga var 33.364 kr. á ferð. Fyrri
frétt byggði á gögnum af heima-
síðu Ríkiskaupa en þar vantaði
tilboð Þórarins. -hlh
Næturlokanir í
þessari viku
HVALFJ: Hvalfjarðargöng
verða lokuð fjórar nætur í þess-
ari viku. „Vakin er sérstök at-
hygli á að lokað verður kl. 22
að kvöldi mánudags 24. apríl
en á miðnætti næstu þrjú kvöld
þar á eftir. Næturlokun gang-
anna á þessum tíma árs er hefð-
bundinn vor- og sumarboði,
tími sem nýttur er til viðhalds af
ýmsu tagi og hreingerningar,“
segir í tilkynningu á vef Spalar.
Göngin verða opnuð klukkan 6
að morgni alla dagana. -mm
Hylki með
kannabisvökva
komin í sölu
LANDIÐ: Grímur Grímsson
yfirlögregluþjónn á höfuðborg-
arsvæðinu segir í samtali við
fjölmiðla að lögregla hafi orð-
ið vör við að talsvert magn af
kannabisvökva sé komið í sölu
hér á landi. Það sem er nýtt við
dreifingu vökvans og neyslu er
að hann er reyktur með svo-
kölluðu rafsígarettum. Til að
deyfa lykt af reykingum efnis-
ins er blandað saman við lykt-
arsterku efni eins og til dæmis
myntu til að villa um fyrir fólki.
Það var Sigvaldi Arnar Lárus-
son, varðstjóri hjá lögreglunni
á Suðurnesjum, sem fyrstur
greindi frá þessari nýjustu að-
ferð fíkniefnasala til að koma
efnum í umferð. Hann segir að
verið sé að selja kannabisvökva
á íslenskum fíkniefnasölusíð-
um á Facebook og birti auglýs-
ingar af þeim síðum máli sínu
til stuðnings. „Ef þið foreldrar
sjáið þessi hylki í fórum krakk-
ana ykkar þá vitið þið hvað
þetta er. Þessi vökvi er kom-
inn út um allt land í sölu,“ seg-
ir Sigvaldi Arnar.
-mm
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpiehf.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Búslóðageymsla � Ártíðabundinn lager � Lager � Sumar-/vetrarvörur
Frystgeymsla � Kæligeymsla � Leiga til skemmri eða lengri tíma
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpiehf.is
HAFÐU
SAMBAND
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði
Ársreikningur Akraneskaupstað-
ar fyrir árið 2016 var lagður fram
á fundi bæjarráðs miðvikudag-
inn 19. apríl síðastliðinn. Rekstr-
arniðurstaða A og B hluta var já-
kvæð um 1.015,1 milljónir króna
en gert hafði verið fráð fyrir já-
kvæðri niðurstöðu upp á 1.003,1
milljón í fjárhagsáætlun. Eigið fé
sveitarfélagsins í árslok 2016 nam
6.655 milljónum samkvæmt efna-
hagsreikningi, en eigið fé A hluta
nam 6.719,8 milljónum. Rekstr-
artekjur sveitarfélagsins á árinu
námu 6.363 milljónum króna sam-
kvæmt ársreikningi fyrir A og B
Rekstur Akraneskaupstaðar jákvæður um rúman milljarð
Svipmynd frá liðnu ári þegar regnbogafánum var flaggað við bæjarskrifstofurnar.
Ársreikningar fyrir bæði A og B
hluta Grundarfjarðarbæjar fyr-
ir árið 2016 voru lagðir fram á
fundi bæjarstjórnar 6. apríl síðast-
liðinn. Þar kemur fram að heildar-
tekjur samstæðunnar voru 965 m.
kr., en heildarútgjöld hennar þegar
tekið hefur verið tillit til afskrifta
að fjárhæð 47,2 m.kr. voru 870,1
m.kr. Rekstrarniðurstaða fyrir fjár-
magnsliði var jákvæð í samstæð-
unni um 94,9 m.kr. Að teknu til-
liti til niðurstöðu fjármagnsliða að
fjárhæð 58,1 m. kr. var samstæðan
öll rekin með 36,8 m.kr. rekstrar-
afgangi á síðasta ári.
Hlutfall reglulegra tekna af
heildarskuldum og skuldbinding-
um hefur lækkað úr 149% árið 2015
í 140,5% árið 2016. Samkvæmt
ákvæðum sveitarstjórnarlaga á
þetta hlutfall ekki að vera hærra en
150%. Skuldastaðan sem hlutfall
af heildartekjum hafði verið mun
hærra árin þar á undan. Fyrri áætl-
anir bæjaryfirvalda gerðu ráð fyr-
ir að 150% markinu yrði ekki náð
fyrr en árið 2017-2018. „Ánægju-
legt er að sjá hversu vel hefur tek-
ist til í þessum efnum,“ segir Þor-
steinn Steinsson bæjarstjóri. Hann
segir að niðurstaða rekstrarreikn-
ings sé betri en gert hafi verið ráð
fyrir í fjárhagsáætlun ársins. „Þessi
góði árangur náðist sökum þess
að gætt hefur verið aðhalds og
hagræðingar í rekstri stofnana og
deilda. Jafnframt skiptir sköpum
að verðlag hefur verið stöðugt og
innan þeirra marka sem spár gerðu
ráð fyrir,“ segir Þorsteinn.
Hann vill þakka starfsfólki bæj-
arins fyrir vel unnin störf í rekstri
sveitarfélagsins. „Ekki síður ber að
þakka íbúum sveitarfélagsins fyr-
ir þolgæði og gott samstarf með-
an glímt hefur verið við lækkun
skulda bæjarins.“
Í sjóðsstreymi samstæðunnar
kemur fram að veltufé frá rekstri
er 114,6 m.kr. og handbært fé frá
rekstri er 103,9 m.kr., þegar tek-
ið hefur verið tillit til breytinga á
rekstrartengdum eignum. Fjárfest-
ingar voru 73,9 m.kr. nettó. Af-
borganir lána voru 107,3 m.kr., en
á móti voru tekin ný lán að fjárhæð
60,4 m.kr. Handbært fé lækkaði á
árinu um 16,9 m. kr. en í upphafi
ársins var það 111,4 m.kr. Í árslok
var handbært fé 94,5 m.kr.
mm
Skuldaviðmið Grundarfjarðarbæjar
komið niður fyrir hámarkið
Skuldir Grundarfjarðarbæjar sem hlutfall af tekjum er nú komnar niður í um
140%. Sá árangur hefur náðst fyrr en áætlað hafði verið. Hér er Þorsteinn Steins-
son bæjarstjóri. Ljósm. tfk.