Skessuhorn - 26.04.2017, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2017 5
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Vorhreinsun
Vorhreinsun íbúa, fyrirtækja og stofnana fer fram dagana 29. apríl – 7. maí
Bæjarbúar, ungir sem aldnir eru hvattir til að fagna vori og
taka þátt í hreinsun og fegrun lóða og umhverfis í þágu allra bæjarbúa.
Gámar verða staðsettir á ákveðnum stöðum í bænum á tímabilinu og geta
íbúar og fyrirtæki skilað þar endurgjaldslaust því sem til fellur við vorhreinsunina.
Ætlast er til að sorp sé flokkað og verða gámar merktir með viðeigandi flokkunarmerkjum.
Aldraðir og öryrkjar geta óskað eftir að fá aðstoð við að sækja staka þunga eða stóra hluti.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Allar nánari upplýsingar
er að finna á vef
Akraneskaupstaðar
www.akranes.is
Grundarfjarðarbær
Starf aðalbókara laust til umsóknar
Grundarfjarðarbær auglýsir starf aðalbókara laust til umsóknar. Aðalbókari hefur
umsjón með bókhaldi Grundarfjarðarbæjar, stofnana og fyrirtækja sveitarfélagsins.
Hann annast bókun fylgiskjala, afstemmingar og aðra úrvinnslu úr fjárhagsbókhaldi,
sér um reikningagerð, skýrslugerð og greiningarvinnu úr bókhaldi auk þess að
annast uppgjör og áætlanagerð í samvinnu við yfirmann og endurskoðendur.
Í boði er spennandi starf fyrir einstakling sem vill vinna sjálfstætt og
hafa tækifæri til frumkvæðis í vinnubrögðum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Þekking og reynsla á bókhaldi skilyrði
Viðskiptafræðimenntun eða sambærileg menntun á sviði bókhalds æskileg
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu æskileg
Góð tölvukunnátta
Nákvæmni, skipuleg vinnubrögð og talnagleggni
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Jákvæðni, sveigjanleiki og góðir samstarfshæfileikar
Laun og starfskjör fara eftir kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurlaug R. Sævarsdóttir, skrifstofustjóri,
í síma 430 8500 eða með því að senda fyrirspurnir á sigurlaug@grundarfjordur.is.
Ráðið er í starfið frá 15. júní nk. Umsóknum ásamt ferilskrá skal skila í Ráðhús
Grundarfjarðar, Borgarbraut 16, eða í tölvupósti á netfangið sigurlaug@grundarfjordur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 14. maí nk.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Landsnet undirbýr nú lagningu 66
kV jarðstrengs milli Ólafsvíkur og
Grundarfjarðar. Samhliða þeirri
framkvæmd verða byggð ný ten-
gimannvirki á báðum þéttbýlisstöð-
unum. Við þessa framkvæmd eykst
til muna afhendingaröryggi raforku
á Snæfellsnesi en truflanir með til-
heyrandi straumleysi hafa verið tíð-
ar undanfarin ár þar sem loftlínan
milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar
liggur um veðurfarslega mjög erfitt
svæði á Fróðárheiði.
Framkvæmdir við tengivirki í
Grundarfirði hófust á síðasta ári auk
þess sem Landsnet lét hanna nýtt
tengivirki í Ólafsvík. Þá var gengið
frá innkaupum á jarðstreng. Byrjun
framkvæmda í Ólafsvík og lagning
strengsins er fyrirhuguð nú í sumar
en næsta sumar er ráðgert að fram-
kvæmdum ljúki við tengivirkið í
Ólafsvík, ásamt yfirborðsfrágangi
á strengleiðinni. „Þar sem loftlínu-
lausnin samræmdist ekki stefnu
stjórnvalda um lagningu 66 kV raf-
lína í jörð, auk þess sem hún var í
ofanálag metin sem dýrari lausn,
varð jarðstrengur fyrir valinu,“ seg-
ir í frétt Landsnets um framkvæmd-
ina. Við lagningu jarðstrengs verður
strengurinn lagður í sand sem mok-
að verður upp úr sjó beggja vegna
Kirkjufells. Sandurinn er sóttur á
útfiri og mokað á land. mm
Lagning jarðstrengs hefst í sumar
milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar
Framkvæmdir við nýja spennistöð í Grundarfirði hófust í ársbyrjun í fyrra, en
stöðin er ofan við iðnaðarsvæðið við Kvern. Ljósm. úr safni tfk.
Í snjókomu haustið 2015 dró
í skafla undir 66kV Ólafsvík-
urlínu 1 á Fróðárheiði þannig
að fólk var í hættu kæmi það
nærri. Vegna þessa sá Landsnet
ástæðu til að vara útivistarfólk
við að vera á ferð í nágrenni
línunnar þar sem hún liggur
norðan við Miðfell. Komið
var fyrir viðvörunarveifum á
þessum stað til að vekja athygli
á hættunni.