Skessuhorn


Skessuhorn - 26.04.2017, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 26.04.2017, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2017 17 Landsvirkjun hefur um áratugaskeið starfrækt sumarvinnuflokka ungs fólks. Hóparnir sinna viðhaldi, uppbyggingu og fegrun starfsstöðva Landsvirkjunar og vinna jafnframt að ýmsum samstarfsverkefnum víða um land. Samvinna sumarvinnuflokka Landsvirkjunar og félagasamtaka, sveitarfélaga og stofnana hefur skilað sér í auknum umhverfisgæðum og betri aðstöðu til útivistar og ferðamennsku. Í boði er vinnuframlag sumarvinnu- flokka og flokksstjórn yfir þeim. Verkefnin lúta að ræktun, hreinsun, viðhaldi og öðrum umhverfisbótum ásamt ýmsum samfélagsverkefnum. Óskað er eftir að samstarfsaðilar leggi fram vel skilgreind verkefni. Umsóknarform með nánari upplýsingum er að finna á vef Landsvirkjunar, www.landsvirkjun.is. Nánari upplýsingar veitir Þóra María Guðjónsdóttir í síma 515 9000 og á netfanginu lettverk@landsvirkjun.is. Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2017. Umsóknarform er að finna á landsvirkjun.is. Landsvirkjun auglýsir eftir samstarfsaðilum að verkefninu Margar hendur vinna létt verk sumarið 2017. Námið er sérsniðið að íslenskri ferðaþjónustu með sterkri tengingu við leiðandi fyrirtæki í greininni. Áhersla er lögð á stjórnun ferðaþjónustu í víðu samhengi, allt frá stærri hótelum og veitingastöðum til móttöku gesta í þjónustumiðstöðum og umsjón ferða um hálendið. Hólaskóli - Háskólinn á Hólum Hólum í Hjaltadal 551 Sauðárkrókur Sími 455 6300 holaskoli@holar.is www.holar.is w w w .h ol ar .is BA í stjórnun ferðaþjónustu og móttöku gesta Ferðaþjónusta er skemmtilegt og síbreytilegt fag þar sem starfsfólk tekst á við flókin verkefni alla daga. Ný námsleið Háskólinn á Hólum Hagnýtt háskólanám • Ferðamálafræði • Stjórnun ferðaþjónustu og móttaka gesta • Viðburðastjórnun • Fiskeldisfræði • Reiðmennska og reiðkennsla Tækifærin eru í okkar greinum Hólaskóli - Háskólinn á Hólum Hólum í Hjaltadal 551 Sauðárkrókur Sími 455 6300 holaskoli@holar.is www.holar.is Háskólasamfélag með langa sögu Hólar í Hjaltadal er í senn mikill sögustaður og útivistarparadís. Háskólinn á Hólum er lítill en öflugur háskóli sem sinnir kennslu og rannsóknum á sviði ört vaxandi atvinnugreina. w w w .h ol ar .is SK ES SU H O R N 2 01 7 Unnið er á vöktum við framleiðslu á lífrænt vottuðu mjöli. Gerðar eru strangar kröfur um öryggi og gæði. Réttindi og hæfni til að nota vinnuvélar eru kostur. Störfin geta hentað hvort sem er konum eða körlum á öllum aldri. Um Þörungarverksmiðjuna Þörungaverksmiðjan rekur þurrkverksmiðju á Reykhólum, þar sem þang og þari eru þurrkuð í mjöl í háum gæðaflokki. Bæði framsleiðsla og hráefnisöflun fyrirtækisins hafa lífræna vottun. Meginhluti framleiðslunnar er seldur á erlendum mörkuðum, þar sem hún er m.a. nýtt í framleiðslu í lyfja- og snyrtivöruiðnaði auk framleiðslu á fóðurbæti, áburði og fleiru. Síðastliðinn föstudag lauk hrygning- arstoppinu og máttu bátar setja út veiðarfæri klukkan 10 að morgni þess dags. Voru bátar að tínast úr höfn- um Snæfellsbæjar fram eftir morgni. Þeirra á meðal var Brynja SH. Ekki vildi betur til en svo þegar Brynja var kominn rétt út fyrir höfnina í Ólafsvík að aðalvél bátsins stöðvað- ist og þurftu skipverjar aðstoð í land. Lítil hætta var á ferðum enda blíð- skaparveður. Tryggvi Eðvarðs SH sem einnig var á útleið kom áhöfn Brynju SH til aðstoðar og dróu bát- inn í land. Þar sem þetta var annar dagur sumars hafði Gylfi Scheving það á orði að þetta væri fyrsta góð- verk sumarsins. Ekki var um alvar- lega bilun að ræða og voru strákarn- ir á Brynju SH komnir aftur af stað skömmu síðar. þa Hikstuðu af stað að afloknu hrygningarstoppi Hestamannafélögin Faxi og Skuggi standa fyrir Vesturlandssýningunni 2017 sem verður haldin í Faxaborg í Borgarnesi föstudaginn 28. apríl klukkan 20:00. Þar munu ræktun- arbú af svæðinu koma fram. Börn og unglingar sýna hesta sína, FT verður með atriði, Íslandsmeistari frá 2016 kemur fram á gæðingi sín- um og nokkrir glæsilegir stóðhest- ar munu mæta á svæðið. Þeirra á meðal eru Sproti frá Innri-Skelja- brekku, Logi frá Oddsstöðum, Styrkur frá Stokkhólma og Bjarmi frá Bæ. Grínatriði og fleira óvænt verður í boði. Forsala aðgöngumiða hófst í gær í versluninni Líflandi í Borgarnesi. Miðaverð er 2.500 kr. Sýningin er til fjáröflunar fyrir Reiðhöllina Faxaborg. -fréttatilkynning Vesturlandssýning 2017 í Faxaborg Jakob S Sigurðsson sýnir hér Loga frá Oddsstöðum, en þeir verða á sýningunni.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.