Skessuhorn


Skessuhorn - 26.04.2017, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 26.04.2017, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2017 11 viðurkenning og fallegt klapp á bak- ið fyrir það sem við höfum verið að gera á liðnum árum og það er heið- ur að fá slík verðlaun. Ég lít þannig á að við séum að fá viðurkenningu fyrir það þróunarstarf sem hér hef- ur verið unnið sem bæði hefur ver- ið unnið af okkar starfsmönnum og starfsmönnum samstarfsfyrirtækja okkar. Margt af því sem við erum nú að sýna og selja er afrakstur af þróun sem hægt hefur verið að ráð- ast í af því forsvarsmenn íslenskra útvegsfyrirtækja hafa borið traust til okkar. Þeir hafa keypt af okk- ur vöru sem oft á tíðum er einung- is hugmynd þegar skrifað er und- ir sölusamning. Hugmyndin leiðir svo til nýsköpunar og vöruþróunar og verður loks að vöru. Sú vara eyk- ur síðan verðmætin og allir hagn- ast af þróunarstarfinu þegar upp er staðið.“ Sjö einkaleyfum lýst Ingólfur segir að vöruframboð Skagans 3X sé í dag samansafn af tækjum og tilheyrandi tækni. „Við erum að bjóða heildarlausnir fyrir uppsjávarvinnslu og ferskfiskveiði- skip. Meðal þess sem okkar lausn- ir hafa umfram aðrar er þessi of- urkælibúnaður sem ég nefndi hér að framan, sem fyrst var settur um borð í Málmey SK fyrir FISK Sea- food fyrir um tveimur árum síð- an. Nú er ísfiskveiðiskipið Engey RE komin með búnað frá okkur og líklega erum við þar að afgreiða frá okkur eitt fullkomnasta fersk- fiskveiðiskip í heimi. Síðan tekur við raðsmíði í tvö önnur sambæri- leg skip fyrir sama fyrirtæki á þessu ári.“ Ingólfur nefnir til marks um nýjar tæknilausnir um borð í Eng- ey að fyrirtækið hafi lýst sjö nýjum einkaleyfum vegna vinnsluaðferð- anna um borð. Erum lausnamiðað fyrirtæki Ingólfur segir fjölmörg verkefni í pípunum hjá Skaganum 3X og verkefnastaða fyrirtækjanna er góð. „Við erum með verkefni í undirbúningi og í gangi í nokkr- um heimsálfum. Auk heildar- lausna fyrir íslensk útgerðarfyr- irtæki erum við t.d. að selja laus- frysta til Chile og Brasilíu, lausn- ir til vinnslu hörpuskeljar í Banda- ríkjunum og krabbavinnslu í Kan- ada. Allt er þetta tækni sem bygg- ir á þróun sem íslensk fyrirtæki hafa byrjað að kaupa af okkur í ár- anna rás. Þau hafa veðjað á okkar lausnir. Þannig eru íslensk útvegs- fyrirtæki þau sem gert hafa okkur mögulegt að þróa og smíða nýja tækni og gert okkur að því sem við erum í dag. Ég nefni Síldarvinnsl- una í Neskaupsstað, Ísfélagið í Vestmannaeyjum, Skinney Þinga- nes á Höfn, HB Granda og Eskju á Eskifirði, auk tveggja uppsjávar- verksmiðja sem við settum upp í Færeyjum. Nú erum við að vinna stórt verkefni í makríl fyrir Ísfélag- ið í Vestmannaeyjum sem á að vera búið fyrir upphaf vertíðar í haust og sitthvað fleira er í farvatninu. Við lítum á okkur sem lausnamiðað fyrirtæki og höfum sýnt og sannað að við ráðum við býsna stór verk- efni bæði hér heima og erlendis.“ Þrjú aðskilin fyrirtæki en eitt vörumerki Ingólfur svarar því aðspurður í lokin að Skaginn 3X sé vörumerk- ið sem keyrt er á en þrjú sjálfstæð rekstrarfélög standa á bakvið það, þ.e. Skaginn, Þorgeir & Ellert og 3X Technology. „Ég sé engan hag í beinni sameiningu þessara félaga. Við leggjum mikla áherslu á sjálf- stæði og frumkvæði á öllum okkar starfsstöðvum og teljum betra að hafa þetta svona frekar en að fólkið okkar verði hluti af einhverri deild eða skúffu í sameinuðu fyrirtæki.“ mm SK ES SU H O R N 2 01 7 Starf skrifstofustjóra hjá Hvalfjarðarsveit er laust til umsóknar, starfshlutfall 80-100%. Skrifstofustjóri hefur umsjón með áætlana- gerð og uppgjöri sveitarfélagsins og samhæfingu verkefna á sviði fjármála á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar. Helstu verkefni og ábyrgðarsvið: Annast daglega fjár mála stjórn sveit ar fé lagsins. Annast launavinnslu fyrir öll starfssvið sveitarfélagsins. Undir bún ingur, gerð og eftir fylgni starfs- og fjár hags á ætlana. Umsjón með framlagningu árshlutareikninga og ársreikninga. Grein ing ar vinna og miðlun upplýs inga til kjör inna full trúa og stjórn enda. Annast álagningu fasteignagjalda og umsjón með innheimtu. Almenn verkefni á skrifstofu sveitarfélagsins. Menntunar- og hæfniskröfur: Menntun sem fellur að verkefnum og ábyrgðarsviði skrifstofu- stjóra. Reynsla af reikningshaldi, áætlanagerð og fjármálastjórnun. Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu er æskileg. Góð samskipta- og leiðtogahæfni. Greiningarhæfni og færni í notkun upplýsingatækni. Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi. Umsóknarfrestur er til og með 5. maí 2017. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi. Umsókn skal senda á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes eða á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is Nánari upplýsingar um starfið veitir Skúli Þórðarson, sveitarstjóri í síma 433-8500 og á netfanginu skuli@hvalfjardarsveit.is Hvalfjarðarsveit er öflugt sveitarfélag með um 635 íbúa. Nátt- úrufegurð er mikil og möguleikar til að njóta fjölbreyttrar útiveru eru óþrjótandi. Hvalfjarðarsveit er dreifbýlt sveitarfélag með litlum íbúakjörnum. Þar eru næg og fjölbreytt atvinnutækifæri, öflugur landbúnaður, vaxandi ferðaþjónusta og metnaðarfullt skólastarf. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á iðnaðarsvæðinu við Grundartanga með fjölmörgum iðnfyrirtækjum. Hvalfjarðarsveit er í nálægð við þéttbýli og í góðu samstarfi við nágrannasveitarfélög. Nánari upplýsingar má finna á www.hvalfjardarsveit.is Skrifstofustjóri - Hvalfjarðarsveit Auðarskóli Ábyrgð – Ánægja – Árangur Auðarskóli óskar eftir að ráða í eftirfarandi stöður næsta vetur Kennarar í Auðarskóla Tvo kennara vantar við Auðaskóla fyrir skólaárið 2017-2018. Um er að ræða 77% stöðu á unglingastigi og 100% stöðu á miðstigi. Kennsla á unglingastigi Smíðar Enska Danska Umsjónakennsla á miðstigi Stærðfræði Upplýsingatækni Náttúrufræði Mikilvægt er að umsækjendur búi að: Færni í samskiptum Frumkvæði í starfi Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð Góð íslenskukunnátta Einnig þurfa umsækjendur að vera tilbúnir að vinna eftir stefnu Auðarskóla í teymiskennslu. Umsækjendur þurfa að hafa leyfisbréf til þess að kenna í grunnskóla. Umsóknir um starfið berist á netfangið hlodver@audarskoli.is. Í umsókninni þurf að vera ferilskrá og ábendingar um meðmælendur. Upplýsingar um starfið veitir Hlöðver Ingi skólastjóri í síma 430 4757. Umsóknarfrestur er til 15. maí. SK ES SU H O R N 2 01 7 Dagskrá: Kynnir: Kristín G. Ólafsdóttir, stjórnarmaður SDS Ræðumaður: Eiríkur Þór Theódórsson, varaformaður ASÍUng og stjórnarmaður í Stétt Vest Skemmtiatriði: Stórsöngvarinn og leikarinn Egill Ólafsson fer á kostum af sinni alkunnu snilld! Kaffiveitingar að lokinni dagskrá. Drekkhlaðið borð af hnallþórum og fleira góðgæti að hætti Katrínar. S K E S S U H O R N 2 01 7 1. MAÍ Í BÚÐARDAL 2017 1. maí 2017 samkoma Dalabúð, Búðardal kl. 14:30 Ingólfur og fjölskylda hans veittu Útflutningsverðlaunum forseta Íslands viðtöku á Bessastöðum síðasta vetrardag. Ljósm. Íslandsstofa.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.