Skessuhorn - 26.04.2017, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 201724
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness LYFTULEIGA - ÞUNGAFLUTNINGAR
DRÁTTARBÍLL - BÍLAFLUTNINGAR
Í samræmi við samþykkt bæjar-
stjórnar Stykkishólmsbæjar um
að sameina Amtsbókasafn Stykk-
ishólms, bókasafn Grunnskóla
Stykkishólms og Ljósmyndasafn
Stykkishólms er unnið að því að
endurskipuleggja starfsemina í
nýju húsi. Þar verður skipulögð ný
stofnun; stofnun mennta, menn-
ingar og upplýsingatækni. Svo sem
þekkt er standa yfir framkvæmdir
við byggingu húss yfir söfnin þrjú
sem verða sameinuð og verða ein
rekstrareining í nánu stjórnunar-
legu og rekstrarlegu samstarfi við
Grunnskóla Stykkishólms. Þetta
eru vissulega mikilvæg áform og
ástæða til þess að rifja upp í stuttu
máli sögubrot um söfnin.
Amtsbókasafn á
gömlum merg
Amtsbókasafnið var stofnað 1847
að tilstuðlan amtsmannsins Bjarna
Thorsteinsonar sem sat á Arnar-
stapa, Péturs Péturssonar prófasts
á Staðarstað og síðar biskups og
Árna Thorlacíus kaupmanns sem
lagði til húsnæði í Norskahúsinu
og hóf skráningu safnsins. Síðar
flutti safnið í eigið húsnæði sem
var rekið af sýslunefnd Snæfells-
ness- og Hnappadalssýslu og kost-
að af öllum sveitarfélögunum í
sýslunni. Stykkishólmsbær tók við
rekstri safnsins og húsnæði þess
(nú Vatnasafnið) af sýslunefndinni
þegar sýslunefndin var lögð niður
með nýjum sveitarstjórnarlögum
sem tóku gildi 1989. Á þeim tíma
var gert ráð fyrir því að þar væri
skjalasafn sýslunnar. Það hvíla því
mikla skyldur á okkur að varðveita
bókakost Amtsbókasafnsins og
þróa það í takt við tímann.
Grunnur lagður
með gjöfum
Bókasafn grunnskólans er í grunn-
inn byggt upp af mjög merkileg-
um bókagjöfum og styrkjum. Þar
er m.a. um að ræða gjöf frá þeirri
merku konu, Ásu Guðmunds-
dóttur Write, sem ólst hér upp
en flutti til London og þaðan til
Karíbahafseyjarinnar Trínidad.
Einnig er þar safn Ásgerðar Arn-
finnsdóttur og Ágústar Þórarins-
sonar kaupmanns. Jóhann Rafns-
son sem var m.a. formaður skóla-
nefndar skrifaði ávarp þegar safn-
ið var afhent skólanum árið 1948.
Jóhann segir þar að safnið „sé eitt
merkasta skólabókasafn í land-
inu“. Það ávarp gaf Jóhann mér
þegar hann var að undirbúa að
ánafna ljósmyndasafn sitt til bæj-
arins. Það er því eðlilegt að koma
þessu safni í gott skjól með viðeig-
andi skráningu og aðgangi fræði-
manna að því.
Ljósmyndasafn Stykkishólms
er í grunninn safn mynda sem Jó-
hann Rafnsson ánafnaði Stykkis-
hólmsbæ árið 1996 auk mynda frá
Árna Helgasyni fréttaritara Morg-
unblaðsins og fleiri ljósmyndur-
um og myndasöfnurum. Safninu
hefur ekki verið sýndur sá sómi
sem vert væri m.a. vegna þess að
skort hefur aðstöðu og skýra fram-
kvæmd um uppbyggingu og nýt-
ingu safnsins þrátt fyrir sérstaka
samþykkt um safnið. Nú blasir
við betri tími þegar nýtt húsnæði
rís þar sem er ætlað sérstakt rými
fyrir ljósmyndasafnið. Ljósmyndir
og kvikmyndir er mikilvægur þátt-
ur í því að varðveita og miðla sögu
okkar og þróun bæjarlífsins hér í
Stykkishólmi.
„Endurræst“ söfn
Upplýsingatækninni fylgja nýir
kennsluhættir svo sem þekkt er
úr Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
Með því að leggja áherslu á bók-
menninguna með aðstoð upplýs-
ingatækninnar og tengja starfsemi
Amtsbókasafnsins við grunnskól-
ann skapast aðstaða til að nýta upp-
lýsingatæknina til nýrra kennslu-
hátta í þágu bættrar menntun-
ar nemenda. Með uppfærðum og
„endurræstum“ bókasöfnum í nýju
húsnæði blasir við betri tíð og nýir
möguleikar í skólamálum okkar
Hólmara. Það er vissulega ánægju-
legt verkefni að sameina söfnin
og koma þeim í gott húsnæði og
færa að nútímanum og þjóna bæði
sem almenningsbókasafn og skóla-
bókasafn. Við sjáum fyrir endann
á þessu verkefni og getum tekið
til við önnur verkefni sem varða
uppbyggingu og framfarir í okkar
góða bæ.
Næsta skrefið í skólamálum okk-
ar verður að byggja nýtt hús austan
við skólahúsið þar sem verða sér-
kennslustofur fyrir grunnskólann
og aðstaða fyrir Tónlistarskóla
Stykkishólms. Ef vel verður hald-
ið á málefnum okkar mun það hús
geta risið fyrr en marga grunar.
100 milljónir vegna
hjúkrunardeildar
Frá ársbyrjun 2010 þegar Heil-
brigðisstofnun Vesturlands var sett
á stofn, og St.Franciskusspítalinn
var settur undir yfirstjórn HVE,
hefur staðið mikil þrautarganga
við að koma af stað endurbygg-
ingu hjúkrunardeildar sjúkrahúss-
ins. Þeirri hjúkrunardeild er ætl-
að að leysa Dvalarheimili Stykkis-
hólms af hólmi með sérinnréttuðu
húsnæði. Allan þennan tíma hafa
bæjaryfirvöld átt í viðræðum við
heilbrigðisyfirvöld sem létu teikna
breytingar og gera áætlanir sem
hlutu ekki samþykki.
Eftir mikla vinnu á vegum bæj-
arins og eftir að búið var að end-
urhanna verkefnið náðist loksins
sá áfangi að frumáætlun um verk-
ið var samþykkt í október 2016 og
undirrituð af fulltrúum Heilbrigð-
isráðuneytis, Framkvæmdasýslu
ríkisins og Stykkishólmsbæjar. Þar
er um að ræða áform um breyting-
ar á sjúkrahúsinu sem fela í sér að
þar verði 18 hjúkrunarpláss sam-
kvæmt reglugerð um hjúkrunar-
heimili, 2-4 rúm til dagdvalar og
4 sjúkrarúm auk þeirra rúma sem
tilheyra bakdeildinni. Aðstaðan á
bakdeild verður auk þess bætt með
því að færa þvottahúsið í kjallarann
og taka núverandi rými þvotta-
húss fyrir sjúkraþjálfun bakdeildar.
Áætlaður kostnaður við verkið allt
er 582 milljónir króna.
Næsta skrefið er að heilbrigð-
isráðherra beinir málinu til Sam-
starfsnefndar um opinberar fram-
kvæmdir sem vonandi afgreiðir
verkefnið fljótt og vel til Fram-
kvæmdasýslunnar sem sér um að
bjóða verkið út. Rætt hefur verið
um að verkið verði boðið út í ein-
um áfanga. Áður en til þess kemur
þarf að liggja fyrir samningur milli
Heilbrigðisráðuneytis og Stykkis-
hólmsbæjar um skiptingu kostnað-
ar við hjúkrunardeildina, en sveit-
arfélaginu er ætlað að greiða 15%
kostnaðar við þann hluta verksins.
Það sem vekur bjartsýni um fram-
vinduna og næstu skrefin er að
veittar voru 100 milljónir af fjár-
lögum þessa árs til verksins. Þrátt
fyrri þessa framvindu er ástæða til
þess að vona að þrautagangan sé á
enda og verkið verði sett af stað.
Þeir sem sitja í Samstarfsnefnd um
opinberar framkvæmdir eru for-
stjóri Framkvæmdasýslunnar sem
undirritaði frumáætlunina í októ-
ber sl., ráðuneytisstjórinn í Fjár-
málaráðuneytinu sem jú þekk-
ir fjárlögin vel og formaður Fjár-
laganefndar sem jafnframt er fyrsti
þingmaður Norðvesturkjördæmis.
Undirritaður bíður eftir að kall-
að verði til viðræðna um samning
vegna þessa mikilvæga verkefnis.
Af gefnu tilefni er rétt að taka
það fram að verkaskipting milli
ríkis og sveitarfélaga er þannig
að það er ríkissjóður sem kostar
rekstur hjúkrunarheimila að fullu
og 85% af stofnkostnaði hjúkr-
unarheimila svo sem að framan er
getið. Aðrar framkvæmdir á vegum
bæjarins koma því ekki í veg fyrir
eða tefja úrbætur við hjúkrunarað-
stöðu fyrir aldraða í bænum.
Stykkishólmi, 19. apríl 2017,
Sturla Böðvarsson bæjarstjóri
Mikilvægar úrbætur tveggja stofnana í Stykkishólmi
Stofnun mennta,- menningar og upplýsingatækni í nýju húsi
Pennagrein