Skessuhorn


Skessuhorn - 26.04.2017, Síða 15

Skessuhorn - 26.04.2017, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2017 15 ir meira að segja oft með konunum í mæðraskoðunum, það hefði nú þótt skrítið í þá daga! Það er hálf- gerð hringekja í þessu öllu, nú eru konur aftur að fæða heima, eins og systir mín gerði, og mömmur okkar margra gerðu í „gamla“ daga.“ Slökun mikilvæg Þegar Helga hóf störf tileinkaði hún sér fjótt ákveðin vinnubrögð. Henni hefur alla tíð þótt slökun í fæðingu mikilvægur þáttur og hefur því kynnt sér ýmsar aðferðir við að ná þeirri slökun fram. „Þegar ég byrjaði las ég bókina hennar Huldu Jensdóttur ljós- móður. Hún var mikill frumkvöðull í slökunartækni fæðandi kvenna og ég gerði mér fljótt grein fyrir því hvað öndunin væri mikilvæg, ásamt því að ég nuddaði konurnar. Lét þær slaka á og anda,“ útskýrir Helga. Hún lærði slökunarnudd, ásamt öðrum ljós- mæðrum á sjúkrahúsinu og hefur notað það mikið. Helga hefur einn- ig lokið tveimur námskeiðum í nála- stungum. „Ég nota nuddið mikið og eftir að hafa kynnt mér nálastung- urnar fannst mér þær mjög áhuga- verðar. Þetta er 3000 ára gömul að- ferð, það er ekkert verið að finna upp hjólið þar. Þær hafa reynst vel, sér- staklega við grindarverkjum.“ Helga Ragnheiður hefur ekki ein- ungis tekið á móti börnum í starfi sínu sem ljósmóðir. Hún var einnig í mæðravernd í mörg ár. „Mér hefur alltaf þótt svo skemmtileg þessi sam- fella, að kynnast konunum í með- göngu og taka svo á móti hjá þeim líka. Tvö sumur réði ég mig í sum- arfríinu mínu á Sjúkrahúsið í Nes- kaupstað, það voru sumrin 1996 og 1997. Þá var ég þar í tvær og þrjár vikur í senn. Það var skemmtileg til- breyting, þar var ég í öllu; fæðingum, mæðravernd og í ungbarnaeftirlit- inu.“ Varð að standa sig Ein af erfiðustu en jafnframt eftir- minnilegustu fæðingum Helgu var þegar hún tók á móti barni systur sinnar 1975 og með hennar leyfi er þetta nefnt hér. „Barnið fæddist með galla á kvið, sem ekki var vit- að um. Þetta var fyrir tíma sónar- skoðana og því ekkert vitað af þessu fyrirfram.“ Barnið var flutt beint með sjúkraflugi til Reykjavíkur þar sem það gekkst undir aðgerð strax og allt tókst vel. Þetta tók þó á ljós- móðurina. „Þetta var mikill skóli en ég varð að standa mig. Þetta var samt hrikalega erfitt, ekki síst vegna skyldleikans. Þessi frænka mín sem þarna fæddist, er í dag gift þriggja barna móðir og hún á alltaf sérstak- an stað í hjarta mínu. Nú í dag með tilkomu sónartækninnar hefði þessi galli verið greindur og hægt hefði verið að undirbúa foreldrana, fyr- ir fæðingu, um það sem framund- an væri,“ segir hún. Helga segist þó hafa verið einstaklega lánsöm ljós- móðir. „Hver fæðing er einstök og ég fæ alltaf svona hlýtt í hjartað þegar barnið grætur.“ 69 ferðir á fjallið í fyrra Helga hefur alla tíð hugsað vel um heilsuna. Hún þakkar föður sín- um það. „Pabbi synti daglega og var mikill útivistarmaður. Hann hugsaði vel um heilsuna enda komst hann að því hversu dýrmæt hún var, þegar hann veiktist af berklum ungur. Eftir það hreyfði hann sig mikið og varð langlífur, 91 árs.“ Helga stundaði frjálsar íþróttir sem unglingur og var í alls konar leikfimi lengi vel, eftir að börnin fæddust. Hún byrjaði svo að skokka þegar hún var komin á full- orðinsárin. „Þar eignaðist ég góðan vinkonuhóp. Við hittumst alltaf mjög reglulega og nokkrar af þeim eru líka með mér í sjósundi og fjallaklifri, en flestar eru hættar að skokka. Ég byrj- aði að skokka markvisst um 1992 og gerði það í ein tíu ár. Ég hljóp nokkr- um sinnum tíu kílómetra hlaup víða um landið, en fór aldrei í langhlaup- in.“ Helga hætti að hlaupa þegar hún byrjaði að finna til í hnjánum. Þá fór hún að stunda göngur, og síðar fjall- göngur af kappi, enda mikil keppnis- manneska. „Ég reyndi að hlaupa aft- ur en það gekk ekki, en á fjallið get ég gengið og ég fæ ekkert í hnén,“ segir hún og á við Akrafjall sem hún gengur reglulega á. „Í fyrra fór ég 69 ferðir á Háahnjúk, jafn margar og aldurinn sagði til um og er mark- mið þessa árs 70 ferðir. Við sjáum til hvort það tekst,“ segir Helga, sem ætlaði með nokkrum vinum sínum á Háahnjúk á afmælisdaginn, sem var Sumardagurinn fyrsti. „En vegna veðurs urðum við að fresta ferðinni, svona er Ísland.“ Syndir í sjónum Helga stundar einnig sjósund og hefur gert síðastliðin fimm ár. Hún fór fyrst í sjóinn í júlí 2012. „Þegar sjósundsfélagið var stofnað haust- ið áður, var ég oft að labba með- fram sjónum á sama tíma og þau voru að synda og mér fannst þau sko létt klikkuð! En ég fór svo að gera mér far um að fara í göngu- túra á þeim tíma sem ég vissi að þau voru í sjónum. Þetta var harður vet- ur og ég hugsaði með mér að þetta gæti ég aldrei! Svo kom sumarið og þann 17. júlí hringdi ég í hana Báru [Jósepsdóttur, innsk. blaða- manns] ljósmóður og spurði hvort við ættum að fara saman í sjóinn. Eftir það var ekki aftur snúið, þetta er eins og innhverf íhugun,“ segir Helga. Hún segist þó ekki vera mik- il sundmanneskja í eðli sínu. „En ef það er gott í sjóinn, þá syndi ég á milli stiganna, það eru 300 metrar á milli þeirra.“ Auk útivistarinnar hefur Helga áhuga á handavinnu en hún bæði prjónar, heklar og saumar. „Við erum sex saman í bútaklúbbi sem hefur verið starfandi í 25 ár, allar í klúbbnum eru núverandi eða fyrrverandi starfsfélagar á Sjúkra- húsinu. Ég hef saumað töluvert en gefið megnið af þessu. Það er ferm- ingagjöfin, barnabörnin hafa öll fengið bútasaumsteppi.“ Lífið er núna Fimmtudagurinn 27. apríl verður formlega síðasti vinnudagur Helgu á fæðingadeildinni. Hún hefur starfað sem ljósmóðir í 46 ár og 7 mánuði, allan tímann á Akranesi, fyrir utan sumrin á Norðfirði. Hún kveður vinnustaðinn og vinnufé- lagana með miklu þakklæti. „Þetta hefur verið ómetanlegur tími fyr- ir mig og ég hef hlakkað til hvers einasta vinnudags. Þessi vinnustað- ur er frábær og allt þetta dásam- lega fólk sem ég hef unnið með hefur reynst mér mikil gæfa.“ Hún kvíðir ekki framhaldinu, ætlar að halda áfram að rækta sjálfa sig, fjöl- skyldu og vini, hér eftir sem hingað til. „Svo stefni ég auðvitað áfram á göngutúra, fjallgöngur og sjósund- ið, hver veit nema ég fari á skrið- ÚTBOÐÚTBOÐ Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is 81x120 mm TIL SÖLU Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is Útboð nr. 20534 -Skólaakstur við Laugargerðisskóla SK ES SU H O R N 2 01 7 Ríkiskaup, fyrir hönd Eyja- og Miklaholtshrepps, óska eftir tilboðum í skólaakstur með nemendur Laugargerðisskóla og leikskólabörn við leikskóladeild Laugargerðisskóla. Um er að ræða eina (1) akstursleið og er áætlaður akstur á dag um 124 km alls. Nánari upplýsingar í útboðsgögnum á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is. Opnun tilboða 9. maí 2017 kl. 11.00 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykajvík. Sjá þessa og aðrar útboðstilkynningar á utbodsvefur.is FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ www.frumherji. is Stykkishólmur 2017 Bifreiðaskoðun verður hjá Bílaverkstæðinu Dekk & Smur, Nesvegi 5 Miðvikudagur 3. maí Fimmtudagur 4. maí Föstudagur 5. maí Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00 Tímapantanir í síma 438 – 1385 S K E S S U H O R N 2 01 7 SK ES SU H O R N 2 01 7 Starfskraftur óskast í golfskála Golfklúbbs Borgarness í sumar við matseld og afgreiðslu. Unnið er aðra hverja viku, 10-12 tíma í senn. Hæfniskröfur: 18 ára og eldri• Reynsla af afgreiðslustörfum æskileg• Jákvætt viðmót og hæfni til að vinna með • fólki Stundvísi og sjálfstæð vinnubrögð• Íslenskukunnátta skilyrði• Umsóknir berist á tölvupóstfang: hamar@icehotels.is sundsnámskeið í framtíðinni.“ Hún segist þó fyrst og fremst ætla að lifa lífinu. „Mottóið hjá mér er núið. Ég hef unnið svolítið með núið og reyni að flækja ekkert hlutina. Lífið er núna,“ segir Helga Ragnheiður Höskuldsdóttir að endingu. grþ Helga og Guðmundur á Spáni en þangað hafa þau farið á hverju hausti í 14 ár. Helga og Guðmundur ásamt börnum og barnabörnum í apríl 2017. Helga og Guðmundur á göngu í Kerlingafjöllum fyrir nokkrum árum. Helga með yngsta barnabarnið, Tinnu Kristínu, nýfædda í ágúst 2012. Helga tók á móti Sævari Þráinssyni bæjarstjóra á Akranesi í júní 1971. Hér eru þau saman á aðalfundi Hollvina- samtaka HVE 1. apríl síðastliðinn.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.