Skessuhorn - 21.06.2017, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 21. JúNí 20172
Til að auka hættu á slysum í vax-
andi umferð um þjóðvegi landsins
er til dæmis hægt að gera eins og
bílstjóri þessa hópferðabíls sem var
á leið sinni um Stafholtstungur í
Borgarfirði á sunnudaginn. Nokk-
ur hross frá Bakkakoti eru þarna á
beit utan við veggirðinguna. Rút-
an er stöðvuð við óbrotna línu og
stuttu framar eru vegamót þar sem
ekið er áleiðis upp í Þverárhlíð. Stór
hópur fólks var svo úti í vegkanti að
skoða hestana. Vegfarandi á leið
um Borgarfjörð sendi Skessuhorni
þessa mynd og hvatti til að vakið
yrði máls á háttarlaginu og sagði
það skapa óþarfa áhættu. Nú væri
auk þess hægt að koma við á bæjum
sem beinlínis bjóða upp á að ferða-
fólk geti hitt hross í návígi, tekið af
þeim myndir og jafnvel farið á bak.
Einn slíkur staður var opnaður í vor,
er nokkru ofar í héraðinu, á Sturlu-
Reykjum í Reykholtsdal. Ástæða er
til að hvetja ferðaskrifstofur til að
nýta slíka þjónustu. mm
Bæjarhátíðin Brákarhátíð verður haldin í
áttunda sinn í Borgarnesi um næstu helgi.
Þar verður fjölbreytt dagskrá fyrir alla ald-
urshópa eins og sjá má í auglýsingu í
blaðinu í dag. Þá verður Norðurálsmót í
knattspyrnu polla haldið á Akranesi um
helgina og fjöldi fólks væntanlegur í bæ-
inn af því tilefni. Í næstu viku hefst síðan
Fjórðungsmót hestamanna á Vesturlandi.
Enginn hörgull er því á skemmtilegri af-
þreyingu í landshlutanum.
Á morgun verður fremur hæg suðlæg átt
og skúrir, einkum síðdegis, en austlæg átt
8 - 13 við norðurströndina og rigning. Hiti
á bilinu 8 til 15 stig, hlýjast norðaustan til.
Á föstudag snýst í norðaustlæga átt 5 - 13
norðanlands og tekur að rigna seinnipart-
inn. Hægari suðaustlæg átt sunnan heiða
og vætusamt, einkum suðvestan til. Hiti 6
til 15 stig, hlýjast á Vesturlandi. Á laugar-
dag verður norðaustan 5 til 13 m/s, hvass-
ast austast síðla kvölds. Rigning og kóln-
andi veður norðaustan til en birtir til vest-
anlands. Hiti 6 til 16 stig, hlýjast suðvest-
anlands. Á sunnudag spáir norðaustlægri
átt, 5 til 10 m/s. Skýjað með köflum og
þurrt norðan og austan til en annars bjart
að mestu. Hiti breytist lítið. Á mánudag er
útlit fyrir hægan vind og þykknar smám
saman upp á vestanverðu landinu með
dálítilli vætu en léttir til norðaustan lands.
Hiti 7 til 14 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Er fastlínutengdur heimasími á þínu
heimili?“ Langflestir svarenda, eða 72%,
svöruðu þeirri spurningu játandi. 22%
sögðu „Nei, hefur ekki verið lengi“en 5%
svarenda eru nýlega hættir með fastlínu-
tengdan heimasíma.
Í næstu viku er spurt:
Hversu oft ferðu í sund?
Þremenningarnir Örn Hjörleifsson og
hjónin Þóra Olsen og Skúli Óskarsson
hafa undanfarin misseri staðið fyrir upp-
byggingu á Sjóminjasafninu á Hellissandi
og gert það í sjálfboðavinnu. Þau eru Vest-
lendingar vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Strandveiðum
lokið á A svæði
SNÆF: Síðasti dagur strand-
veiða á svæði A, frá Arnarstapa
til Súðavíkur var í gær, þriðju-
dag. Samkvæmt upplýsingum
á vef Fiskistofu voru veiðidag-
ar á A-svæði tíu í þessum mán-
uði, þremur dögum fleiri en í
fyrra í sama mánuði. 214 bátar
hafa verið þar á veiðum, fjór-
tán fleiri en í fyrra. Á öðrum
strandveiðisvæðum við landið
er talvert í land með að veiðist
upp í leyfilegt heildarmagn í
mánuðinum. Samtals hafa 526
bátar róið á strandveiðum á
þessu ári og meðalafli í róðri
hefur verið 607 kíló.
-mm/ Ljósm. hs.
Sóttu slasaðan
ferðamann
SNÆF: Björgunarsveit-
ir Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar voru um miðjan dag
á mánudaginn kallaðar út
vegna konu sem slasast hafði
á gönguleiðinni að Eldborg
á Snæfellsnesi. Var hún stödd
um hálfan annan kílómeter frá
vegi. Konan reyndist slösuð á
hné og ökkla og því ógöngu-
fær. Hún var flutt undir lækn-
ishendur. -mm
Reikigjöld
falla niður
LANDIÐ: Frá og með degin-
um í dag, 15. júní, munu sér-
stök gjöld á reiki innan EES-
svæðisins falla niður. Eftir að
sú breyting tekur gildi munu
símnotendur frá þeim lönd-
um sem tilheyra svæðinu borga
það sama fyrir símanotk-
un og gagnamagn á ferðalög-
um innan EES-svæðisins og
þeir greiða heima fyrir. Þetta
er samkvæmt reglugerð ESB
sem tekin hefur verið inn í
EES-samninginn og innleidd
hér á landi. í reglugerðinni
eru sett ákvæði um sanngjörn
hámarksnot á reikiþjónustu
miðað við venjuleg ferðalög,
svokölluð „fair use“ ákvæði.
Heimilt verður að leggja álag
á notkun sem er umfram það
sem telst til sanngjarnrar notk-
unar, svo sem þegar dvalið er
langdvölum eða flust til ann-
ars ríkis á svæðinu. Hvað varð-
ar símtöl og SMS skeyti gildir
heimaverðskrá um alla notkun.
Sama verðskrá gildir í reiki og
gildir um notkun innanlands.
Innifaldar mínútur og innifal-
in SMS eru þar meðtalin, einn-
ig ef viðkomandi áskrift býður
ótakmarkaðar mínútur og/eða
SMS skeyti. -mm
Verkfræðistofan Efla var í vor fengin
til að gera úttekt á húsnæði Grunn-
skólans í Borgarnesi. Nú liggja nið-
urstöður þeirrar úttektar fyrir og
voru kynntar á fundi byggðarráðs í
síðustu viku. í ljós kemur að af fjór-
um sýnum sem tekin voru á stöðum
þar sem raka hefur orðið vart, fannst
í þremur þeirra myglu- og bakteríu-
vöxtur. í úrvinnslu sýna á Náttúru-
fræðistofnun íslands greindist mygla
í sýnum sem tekin voru í stofum
16 og 30 og á kaffistofu starfsfólks.
Sveitarfélagið mun strax bregðast
við og láta hefja lagfæringar á þeim
stöðum þar sem mygla hefur ver-
ið staðfest. Jafnframt verður gerð
heildstæð úttekt á skólanum til að
kortleggja nákvæmlega þá staði í
húsinu sem myglu er mögulega að
finna á og í framhaldinu af því vinna
að tafarlausum úrbótum.
Fram kemur í skýrslu Eflu að um
sé að ræða staðbundin vandamál
m.a. vegna leka meðfram gluggum.
Á fundi byggðarráðs lagði Gísli Kar-
el Halldórsson sviðsstjóri umhverfis-
og skipulagssviðs fram fyrstu drög að
aðgerðaáætlun vegna málsins. Gera
þarf ítarlega úttekt á húsnæði skól-
ans í heild til að kortleggja nákvæm-
lega þá staði í byggingum hans sem
myglu er mögulega að finna. Á fundi
sínum ræddi byggðarráð ítarlega
niðurstöður skýrslunnar og fram-
komnar upplýsingar. „Mikilvægt er
að brugðist verði við þeirri stöðu
sem upp er komin á ábyrgan og fag-
legan hátt. Vinna þarf áætlun um að-
gerðir með tilheyrandi kostnaðar-
greiningu. Byggðarráð samþykkti
að hefja nú þegar lagfæringar á þeim
stöðum þar sem mygla greindist.
Ákveðið var að sviðsstjóri umhverf-
is- og skipulagssviðs gæfi byggðar-
ráði reglulega yfirlit um framgang
málsins meðan unnið er að úrbót-
um,“ segir Geirlaug Jóhannsdóttir
formaður byggðarráðs í samtali við
Skessuhorn.
Geirlaug segir að sínu mati sé lán
í óláni að undanfarin misseri hafi
verið í gangi undirbúningur að við-
byggingu við grunnskólann og end-
urbætur á eldra húsnæði. „Á fram-
kvæmdaáætlun sveitarfélagsins eru
eyrnamerktir fjármunir sem búið var
að samþykkja að verja í endurbætur á
húsnæði grunnskólans og auðveldar
það sveitarfélaginu að bregðast við
þessari leiðinlegu niðurstöðu hratt
og örugglega.“ Geirlaug segir að
Grunnskólinn í Borgarnesi hafi verið
byggður í fjórum áföngum og húsið
eigi sér nokkra lekasögu. „Vatnsleki
hefur komið inn í gegnum sprungur
á útveggjum og með gluggum sér-
staklega á suður- og vesturhlið. Við-
haldsfé hefur á undanförnum árum
verið af skornum skammti og hús-
eignir sveitarfélagsins eru auk þess
margar og viðhaldsþörf sumra þeirra
orðin umtalsverð. Fyrirtækið Hús
og heilsa gerði árið 2013 úttekt á
byggingum Grunnskólans í Borgar-
nesi m.t.t. innivistar og loftgæða. í
framhaldi þeirrar vinnu var ráðist í
framkvæmdir utandyra til að sporna
við leka, en augljóslega hafa þær ekki
dugað til.“ Geirlaug segir að allt
verði gert til að lagfæra skemmdir,
hreinsa húsnæðið og koma því í gott
lag fyrir upphaf skólastarfs í haust.
mm
Myglusveppur greinist í Grunnskólanum í Borgarnesi
Rakaskemmd í lofti í skólahúsinu. Ljósm. úr skýrslu Eflu.
Grunnskólinn í Borgarnesi. Ljósm. mm.
Stoppað þar sem hentar - sumum!
Álfheiður H. Gunnsteinsdóttir, íbúi
á bænum Höfn 1 í Melasveit í Borgar-
firði og Eiríkur fimm ára sonur henn-
ar fundu kjálkabein af manni í fjöru-
ferð á sunnudaginn. „Við vorum bara
að veiða, tína steina og krabba í fjöru-
ferð undir Hafnarfjalli skammt frá
litla vitanum nær Borgarnesi þegar
við fundum kjálkabeinið efst í fjör-
unni. Ég var ekkert að spá í hvað þetta
væri, enda ekki vanalegt að finna slíkt.
Sonur minn fór að leika sér með þetta.
Maður er ekki óvanur að finna kjálka
úr kindum eða því um líkt í fjöruferð-
um. Sonur minn var meira að segja
að reyna að berja tennurnar úr með
steini sem tókst sem betur fer ekki.
Kjálkinn fór svo heim í poka með öll-
um steinunum og kröbbunum,“ seg-
ir Álfheiður í samtali við Skessuhorn.
„Það var svo um kvöldið sem ég fór
að skoða beinið betur að ég sá að það
færi ekki á milli mála að þetta væri
mannabein. Mér brá hreinlega enda
er það svolítið óhugnanlegt að finna
mannabein,“ segir Álfheiður í samtali
við Skessuhorn.“
Hún kveðst hafa farið með kjálka-
beinið á lögreglustöðina í Borgarnesi
en fann þar engan sem gat tekið við
því svo hún hafði samband við lög-
regluna á Akranesi. Lögreglumenn
þar sóttu beinið á heimili hennar og
hún sýndi þeim hvar hún hafi fund-
ið það. í samtali við visi.is segir Jón
Ólafsson yfirlögregluþjónn á Vestur-
landi að beinið verði sent til grein-
ingar hjá Kennslanefnd en ekki er
vitað hvenær niðurstöður liggja fyrir.
Svæðið sem beinið fannst á verður nú
skoðað nánar og athugað hvort fleiri
bein leynast í fjörunni. bþb
Fann mannskjálka í fjöruferð
Kjálkabeinið sem
Álfheiður og Eiríkur
fundu. Á myndinni
sést að enn eru tveir
heillegir jaxlar eftir.
Ljósm. Álfheiður H.
Gunnsteinsdóttir.