Skessuhorn


Skessuhorn - 21.06.2017, Qupperneq 8

Skessuhorn - 21.06.2017, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 21. JúNí 20178 Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Rakel Óskarsdóttir bæjarfulltrúi og Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskips klipptu á borðann. Aflatölur fyrir Vesturland dagana 10. - 16. júní. Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes 17 bátar. Heildarlöndun: 52.580 kg. Mestur afli: Engey RE: 18.800 kg í einni löndun. Arnarstapi 25 bátar. Heildarlöndun: 54.789 kg. Mestur afli: Rún AK: 5.162 kg í fjórum löndunum. Grundarfjörður 13 bátar. Heildarlöndun: 121.612 kg. Mestur afli: Hringur SH: 53.822 kg í einni löndun. Ólafsvík 32 bátar. Heildarlöndun: 109.245 kg. Mestur afli: Ólafur Bjarna- son SH: 24.085 kg í fjórum löndunum. Rif 18 bátar. Heildarlöndun: 58.317 kg. Mestur afli: Magnús SH: 11.058 kg í þremur lönd- unum. Stykkishólmur 29 bátar. Heildarlöndun: 97.318 kg. Mestur afli: Sunna Rós SH: 9.355 kg í fimm lönd- unum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Hringur SH - GRU: 53.822 kg. 14. júní. 2. Helgi SH - GRU: 45.979 kg. 10. júní. 3. Egill SH - ÓLA: 20.691 kg. 14. júní. 4. Engey RE - AKR: 18.800 kg. 13. júní. 5. Ólafur Bjarnason SH - ÓLA: 8.720 kg. 14. júní. -grþ Um klukkan hálf sex fimmtudag- inn 15. júní lagði ferjan Akranes af stað í jómfrúarsiglingu sína til Akra- ness. Ferjan hóf svo áætlunarsigl- ingar á milli Reykjavíkur og Akra- ness mánudaginn 19. júní og með því hófust fyrstu ferjusiglingar á milli sveitarfélaganna frá því Akra- borgin hætti siglingum 1998. Mikill hátíðarbragur var yfir jómfrúarsigl- ingunni og tók mikill fjöldi Skaga- manna á móti ferjunni þegar hún lagði að gömlu Akraborgarbryggj- unni. Á bryggjunni var boðið upp á grillaðar pylsur, hoppukastala og þá lék þjóðlagasveitin Slitnir strengir nokkur lög. Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri í Reykjavík tók til máls í til- efni dagsins og sagði að ferjan, sem hann vildi kalla Akraborg, boðaði mikil tímamót. Hann talaði um að ferjan tengdi Reykjavík og Akranes enn frekar saman og bætti því við að Reykjavík ætti ekki í samskipt- um við neitt sveitarfélag í jafnmiklu bróðerni og Akranes og benti í því samhengi á fyrirtækin Orkuveitu Reykjavíkur og Faxaflóahafnir. Þrátt fyrir að litið sé á siglingarnar sem tilraunarverkefni til sex mánaða lítur Dagur björtum augum á framhaldið og segir ferjuna vera fyrsta liðinn í vatnastrætó sem tengja á svæði við Faxaflóa miðbæ Reykjavíkur. Hug- myndir eru uppi um að hægt sé að tengja Grafarvog við miðbæinn með sambærilegum siglingum. Rakel Óskarsdóttir bæjarfulltrúi á Akranesi sagði ferjuna mikla sam- göngubót fyrir Skagamenn enda tekur siglingin að miðbæ Reykja- víkur aðeins 25 mínútur en í bíl tæki ferðin tæpan klukkutíma. ítrekaði Rakel fyrir Skagamönnum að Sæ- ferðir, fyrirtækið sem sér um ferju- siglingarnar, hafi lofað að hlusta á raddir fólks á svæðinu hvernig ferjan yrði best nýtt. Hún sagði að fólkið á svæðinu ætti að koma skoðunum sínum á ferðum ferjunnar á fram- færi. Að loknum ræðuhöldum á Akra- nesi bauðst bæjarbúum að fara í stutta siglingu með ferjunni. Margir voru spenntir fyrir því og fórum um 300 manns í siglingu í þremur ferð- um. Allir virtust vera sammála um að það kæmi þeim á óvart hversu hrað- skreið ferjan væri. Ferjan tekur 110 farþega og komst Dagur B. svo að orði að ferjan væri eins og félagsheimilið í Með allt á hreinu; þar sem hún virðist lítil að utan en plássið inni í henni væri mjög mikið. Fyrst um sinn eru þrjár áætlunarferðir alla virka daga; frá Reykjavík klukkan 6:30, 10:30 og 17:30 en frá Akranesi kl. 7:00, 11:00 og 18:00. bþb Hátíðleg jómfrúarsigling Akraness Skagamönnum bauðst að fara í prufusiglingu með ferjunni. Margir nýttu sér það og um 300 manns fóru í prufusiglingu í þremur ferðum. Fjær eru svo öllu stærri farþegaskip. Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson. Ferjan var keypt frá Noregi og kom til landsins í síðustu viku. Norskur fáni blakti við hún á skipinu en honum var skipt fyrir íslenska fánann fyrir jómfrúarsiglinguna. Dagur B. Eggertsson hélt ræðu þar sem hann horfði björtum augum á ferjusiglingar framtíðarinnar. Hann sagði Akranes vera fyrsta liðinn í vatnastrætó sem gæti meðal annars tengt Grafarvog við miðbæinn. Mikill fjöldi Skagamanna tók á móti ferjunni þegar hún lagði að bryggju á Akranesi. Liðsmenn Eimskips í hjólreiðakeppninni WOW Cyclothon voru fyrstu farþegar Akraness. Fólk er hvatt til þess að taka með sér hjól í ferjuna. Lúðrasveit lék fyrir gesti við Reykjavíkurhöfn áður en ræðuhöld hófust.Hluti af þjóðlagasveitinni Slitnum strengjum spilaði á bryggjunni á Akranesi. Ferjan er rúmgóð að innan. Dagur B. Eggertsson sagði hana líkjast félags- heimilinu í Með allt á hreinu, lítið að utan en stórt að innan.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.