Skessuhorn - 21.06.2017, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 21. JúNí 2017 11
Árlegum vorleiðangri Hafrann-
sóknastofnunar lauk 31. maí síð-
astliðinn. Farið var á rannsókna-
skipinu Bjarna Sæmundssyni.
Leiðangurinn var liður í langtíma-
vöktun á ástandi sjávar, næringar-
efnum, gróðri og átu á hafsvæð-
inu við ísland og þannig verið að
kanna ástand þessa fyrsta hlekkj-
ar í fæðukeðju sjávar. í samantekt
um niðurstöðu leiðangursins segir
að hiti og selta í efri sjávarlögum í
hlýsjónum sunnan við landið hafi
verið nokkru lægri en verið hefur
að jafnaði síðustu tvo áratugi. Hiti
og selta efri laga voru yfir meðal-
lagi úti fyrir Norðurlandi. Yfir-
borðslög fyrir norðaustan og aust-
an land voru vel yfir meðallagi í
hita og seltu. Vorkoma gróðurs var
víðast vel á veg komin, nema djúpt
út af Vesturlandi. „Vorblómi svif-
þörunga hafði átt sér stað í Faxa-
flóa, en gróður var annars rýr vest-
an lands og styrkur næringarefna
líkt og að vetrarlagi, ef grunn-
slóð Faxaflóa og Vestfjarða er und-
anskilin,“ segir í samantektinni.
Áberandi samfelldur gróðurflekk-
ur náði nánast yfir allt landgrunn-
ið út af Norðuraustur- og Austur-
landi og vestur með allri Suður-
ströndinni. Átumagn var nálægt
langtímameðaltali. mm
Hlýr sjó norðan og austan við land
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
TÆKNIMAÐUR BORGARNESI
Laust er til umsóknar starf tæknimanns á tæknideild Vegagerðarinnar
í Borgarnesi. Deildin hefur umsjón með verklegum framkvæmdum á
sviði nýframkvæmda, viðhalds á slitlögum, efnisvinnslu, styrkingum
og endurbótum á vegamannvirkjum. Um 100% starf er að ræða.
Starfssvið
Umsjón og eftirlit með nýframkvæmdum og öðrum •
framkvæmdum
Umsjón undirbúnings og útboðs framkvæmdaverka•
Gerð útboðs- og verðkönnunargagna•
Landmælingar vegna verkhönnunar og undirbúnings•
Annast önnur tæknileg úrlausnarverkefni•
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun í verk- eða tæknifræði eða önnur •
sambærileg háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af ámóta störfum er kostur•
Góð íslenskukunnátta•
Færni í notkun á algengum tölvuforritum•
Nákvæmni og öguð vinnubrögð•
Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt•
Hæfni í mannlegum samskiptum•
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar
jafnt báðum kynjum og í samræmi við jafnréttisáætlun
Vegagerðarinnar eru konur með umbeðnar hæfniskröfur
sérstaklega hvattar til að sækja um starfið.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi
stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 3. júlí 2017. Umsóknir berist til
Vegagerðarinnar á netfangið starf@vegagerdin.is.
Í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt upplýsingum
um þá menntun og hæfni sem óskað er eftir, þar með talin
menntunar- og starfsferilsskrá.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Pálmi Þór Sævarsson í
síma 522-1000.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin.Ferðamálastofa, markaðsstofur
landshlutanna og Safetravel vinna
nú að því að endurskoða upplýs-
ingaveitu til ferðamanna. í því
felst m.a. breytt skipulag upplýs-
ingamiðstöðva og almennt hvern-
ig upplýsingum er miðlað til ferða-
fólks. Af því tilefni var á dögunum
haldið málþing í Borgarnesi þar
sem stefnt var saman þeim sem eiga
aðkomu að málaflokknum með ein-
um eða öðrum hætti.
Unnur Valborg Hilmarsdótt-
ir, formaður Ferðamálaráðs, setti
málþingið og fjallaði í ræðu sinni
um mikilvægi vandaðrar og sam-
ræmdrar upplýsingamiðlunar um
land allt. Unnur benti jafnframt
á hve sterkt vönduð upplýsinga-
miðlun tengist Vegvísi um ferða-
þjónustu. Hún sé mikilvæg til að
tryggja upplifun og ánægju ferða-
mannsins og með góðum upplýs-
ingum um vegalengdir, staðhætti,
veður, færð og fleira sé ýtt undir
að ferðamenn fari sem víðast um
landið. „Vönduð upplýsingamiðl-
un til ferðamanna mun einnig kalla
á aukna fagmennsku og þjálfun
starfsmanna sem svo eykur hæfni
og gæði ferðaþjónustunnar í heild
sinni,“ sagði Unnur Valborg.
Sérstakur gestur á málþinginu var
hinn írski Gary Breen sem kynnti
starfsemi Fáilte Ireland. Á ír-
landi var kerfið sem heldur utan um
upplýsingamiðstöðvar tekið í gegn
fyrir nokkrum árum. Breen fór
nokkuð ítarlega yfir þær breytingar
sem gerðar voru, hvert markmiðið
var og hver reynsla íra er af þjón-
ustu við ferðamenn sem leita til
Endurskoða upplýsingaveitur til ferðamanna
upplýsingamiðstöðvanna.
Að loknum erindum voru haldnar
vinnustofur þar sem farið var dýpra
í einstök málefni verkefnisins; ör-
yggismál, hæfni og gæði, og sam-
starf og samræmingu. Unnið hefur
verið að verkefninu frá árinu 2015
en áætlað er að nýju kerfi verði
komið á í upphafi ársins 2019.
mm
Svipmynd frá fundinum sem haldinn var í Hjálmakletti, sal Menntaskóla Borgarfjarðar.