Skessuhorn - 21.06.2017, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 21. JúNí 2017 13
Hátíðarhöld á 17. júní í Borgar-
nesi fóru fram á nokkrum stöðum í
Borgarnesi. Þar var m.a. boðið upp
á andlitsmálningu, hátíðarguðsþjón-
usta var í kirkjunni, skátar voru með
fánaborg og skrúðgöngu og þá fóru
fornbílafjelagsmenn í ökuferð. Há-
tíðardagskrá fór fram í Skallagríms-
garði. Það setti stóran svip á sam-
komuna að þessu sinni að listaverk-
ið Hafmeyjan var formlega end-
urvígt í gosbrunni garðsins. Geir-
laug Jóhannsdóttir sveitarstjórnar-
fulltrúi flutti tölu og sagði frá verk-
inu og sögu þess. Að því loknu skrúf-
aði Steinunn Pálsdóttir frá vatninu
og endurvígði styttuna þannig með
táknrænum hætti.
Kvenfélag Borgarness gaf styttuna
af Hafmeyjunni á sínum tíma árið
1962, á 25 ára afmæli kvenfélagsins.
Félagið fagnar því 90 ára afmæli á
þessu ári. Steinsmiðurinn Gerhard
König hefur að undanförnu unnið að
viðgerð styttunnar sem er eftir Guð-
mund Einarsson frá Miðdal. Það var
Yngvi sonur Guðmundar frá Miðdal
sem kom sveitarfélaginu í samband
listamanninn. Hafmeyjan var ein af
fjórum gerðum hafmeyja sem Guð-
mundur frá Miðdal hannaði til nota
í gosbrunnum. Hún var vígð á fyrstu
lýðveldishátíðinni sem haldin var í
Skallagrímsgarði 17. júní árið 1954
og stóð sína pligt þar í um hálfa öld.
í kringum aldamótin síðustu var hún
farin að láta verulega á sjá, var brotin
og talið óvíst hvort hægt væri að gera
við hana. Hún var því fjarlægð úr
garðinum og komið fyrir til að byrja
með í áhaldahúsinu og síðar slökkvi-
stöðinni þar til hún fór í vörslu Safna-
húss Borgarfjarðar. Á hundraðasta
fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar
árið 2013 var samþykkt að láta gera
við styttuna. mm/ Ljósm. gj/hlh
Hafmeyjan mætt að nýju í
Skallagrímsgarð
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Störf við sundlaugar Borgarbyggðar
Annars vegar er um að ræða 60% prósent starf á Kleppjárnsreykjum.
Unnið er í fimm daga en frí í tvo daga.
Vantar bæði karl og konu.
Hins vegar er um að ræða 100% starf í sundlauginni í Borgarnesi, frá
12. júlí 2017.
Störfin felast í öryggisgæslu við sundlaug, afgreiðslustörfum, aðstoð við
viðskiptavini og þrifum.
Hæfniskröfur:
Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.
Standast hæfnispróf sundstaða
Vera með góða þjónustulund
Nánari upplýsingar: ingunn28@borgarbyggd.is
Minnum á óbreyttan skilafrest auglýsinga
Auglýsingar í Skessuhorn þurfa að berast í síðasta lagi á hádegi á
þriðjudögum á netfangið auglysingar@skessuhorn.is.
Auglýsendum er einnig bent á heimasíðuna
www.skessuhorn.is þar sem boðið er
upp á helstu stærðir vefborða.
Nánari upplýsingar í síma 433-5500.
Kvenfélagskonur úr Borgarnesi slógu hring utan um styttuna, sem upphaflega var gjöf félagsins. Ljósm. gj
Unnur Helga Vífilsdóttir var í hlutverki
fjallkonunnar í Borgarnesi og flutti
ljóð eftir Matthías Jochumsson.
Ljósm. gj.
Heiðar Lind Hansson sagnfræðingur
var ræðumaður dagsins. Ljósm. gj.
Upprunalega verkið, Hafmeyjan í Skallagrímsgarði.
Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Gunnlaugur A Júlíusson sveitarstjóri og Steinunn Pálsdóttir
umsjónarkona með Skallagrímsgarði, en Steinka hleypti á
þjóðhátíðardaginn vatni að nýju á Hafmeyjuna. Ljósm. gj.
Listafólk úr heimabyggð sá um að skemmta gestum við
góðar undirtektir. Hér flytja Steinunn Pálsdóttir og Sara
Guðfinnsdóttir lag fyrir hátíðargesti. Ljósm. hlh.
Kaffisala Kvenfélags Borgarness var að sjálfsögðu á sínum
stað í Skallagrímsgarði. Hér gæða Dóra Axelsdóttir, Sigurður
Páll Jónsson og Trausti Jónsson sér á vöfflum kvenfélags-
kvenna. Ljósm. hlh.
Geirlaug Jóhannsdóttir sagði sögu Hafmeyjunnar og endur-
gerð hennar. Þess má til gamans geta að amma Geirlaugar
og nafna, Geirlaug Jónsdóttir, var formaður garðnefndar
Kvenfélags Borgarness í nærfellt hálfa öld. Ljósm. gj.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Félagsráðgjafi eða sálfræðingur
óskast til starfa hjá
félagsþjónustu Borgarbyggðar
Félagsþjónusta Borgarbyggðar leitar að félagsráðgjafa eða sál-
fræðingi til starfa. Um er að ræða 100% starf.
Helstu verkefni eru að annast greiningu og meðferð barna-
verndarmála, félagsleg ráðgjöf og fjárhagsaðstoð, þjónusta og
ráðgjöf við fólk með fötlun, þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
og forvarnarstarf og fræðsla.
Menntun og hæfniskröfur:
Starfsréttindi sem félagsráðgjafi eða sálfræðingur
Reynsla á sviði barnaverndar æskileg
Lipurð í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og sveigjanleiki í starfi
Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttar-
félags við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Samkvæmt starfsmannastefnu Borgarbyggðar er lögð áhersla á
starfsþróun og sveigjanlegan vinnutíma og eru karlar jafnt sem
konur hvött til að sækja um starfið.
Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og
umsagnaraðilum berist til borgarbyggd@borgarbyggd.is
fyrir 10. júlí 2017.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Inga Vildís Bjarnadóttir,
félagsmálastjóri í síma 433 7100, netfang: vildis@borgar-
byggd.is og Anna Magnea Hreinsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldu-
sviðs í síma 840 1522, netfang: annamagnea@borgarbyggd.is.
Fáist ekki félagsráðgjafi eða sálfræðingur til starfa kemur til
greina að ráða einstakling með aðra háskólamenntun sem
nýtist í starfi.