Skessuhorn - 21.06.2017, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 21. JúNí 2017 15
www.skessuhorn.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Skipulagsauglýsingar
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur á 158. fundi þann
8. júní 2017, samþykkt að auglýsa eftirfarandi skipulög:
Flatahverfi Hvanneyri - nýtt deiliskipulag
Tillagan felur í sér nýtt deiliskipulag fyrir íbúðasvæði og leikskóla í
Flatahverfi á Hvanneyri. Tillagan er sett fram á uppdrætti með greinar-
gerð dags. 26. maí 2017. Málsmeðferð verði samkvæmt 41. grein
Skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagstillaga liggur frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgar-
braut 14 í Borgarnesi frá 23. júní til 4. ágúst 2017 og verður einnig
aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is.
Hverjum þeim aðila sem hagsmuna á að gæta er gefinn kostur á að
gera athugasemd við tillögu. Athugasemdir og ábendingar skulu vera
skriflegar og berast í síðasta lagi 4. ágúst 2017 í Ráðhús Borgarbyggðar,
Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi eða á netfangið
borgarbyggd@borgarbyggd.is
Kveldúlfsgata 29 – lýsing vegna breytingar á
Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010–2022
Fyrirhugað er að breyta Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.
Lýsingartillaga tekur til breytingar á nýtingarhlutfalli fyrir Kveldúlfsgötu
29 innan íbúðarsvæðis Í5. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,5 í 1,0. Lýsing
er sett fram í greinargerð dags 23.05.2017. Málsmeðferð verður í
samræmi við fyrstu málsgrein 30. greinar Skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagslýsing liggur frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut
14 í Borgarnesi frá 23. júní til 21. júlí 2017 og verður einnig aðgengi-
leg á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is.
Skriflegum ábendingum vegna lýsingar á breytingu á Aðalskipulagi
Borgarbyggðar 2010 – 2022, ef einhverjar eru, skal komið á framfæri
bréflega eða með tölvupósti við umhverfis- og skipulagssvið
Borgarbyggðar, í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi
eða á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is eigi síðar en föstudaginn
21. júlí 2017.
25% afsláttur af öllum vörum
frá ZHENZI og ZE-ZE vikuna 19.-24. júní
Jónas Sig og hljómsveit hans, Rit-
vélar framtíðarinnar, ætla að endur-
taka leikinn frá því í fyrrasumar og
fara í útilegutúr hringinn í kringum
landið. Að þessu sinni verða fleiri
dagar og fleiri staðir sem kom-
ið verður við á. „Eftirvæntingin er
mikil enda finnst þessari hljóm-
sveit fátt skemmtilegra en að heim-
sækja bæi, þorp og sveitir hringinn
í kringum landið, hitta frábært fólk
og drekka í sig íslenska náttúru.
Síðasta sumar komust oftar en ekki
færri að en vildu svo það borgar sig
að tryggja sér miða í forsölu. Jónas
Sig og Ritvélar framtíðarinnar eru
annáluð fyrir lifandi flutning á tón-
leikum og því ætti enginn að missa
af þessu,“ segir í fréttatilkynningu.
Jónas og ritvélarnar munu spila við
upphaf Ólafsvíkurvöku í Frystiklef-
anum í Rifi í Snæfellsbæ föstudag-
inn 30. júní nk.
mm
Hið árlega Norðurálsmót í fótbolta
fer fram á Akranesi um næstu helgi,
dagana 23. - 25. júní. Mótið er fyr-
ir drengi sem spila með 7. flokki, á
aldrinum sex til átta ára. Það verð-
ur sett í Akraneshöll á föstudaginn
klukkan 12 á hádegi, eftir skrúð-
göngu sem hefst klukkan 11:15 við
bæjarskrifstofur Akraneskaupstað-
ar. Að sögn Huldu Birnu Baldurs-
dóttur framkvæmdastjóra knatt-
spyrnufélags íA verður mótið með
hefðbundnu sniði í ár.
„Undirbúningur hefur gengið
vel. Þetta er náttúrulega mitt fyrsta
Norðurálsmót í skipulagningu en
ég hef komið þrisvar sinnum sem
foreldri með ungan knattspyrnu-
kappa á mótið,“ segir hún. Hulda
segir fjölda þátttakanda vera svip-
aðan og í fyrra en engin erlend lið
eru með á mótinu í ár. „Þetta eru
í kringum fimmtán hundruð kepp-
endur og mikil eftirvænting í liðun-
um sem eru að koma. Þetta eru 180
lið frá 31 félagi, að íA meðtöldu.“
Líkt og undanfarin ár er áætlað að
þúsundir gesta sæki Akranes heim
í tengslum við mótið. „Ef við ger-
um ráð fyrir því að það komi for-
eldrar og eitt systkini með hverjum
iðkanda, eru þetta um fimm þús-
und manns sem koma í kringum
mótið. Svo eru oft afar og ömmur
og frænkur og frændur sem koma,
svo það má búast við margmenni á
Akranesi um helgina,“ segir Hulda
Birna að endingu.
grþ
íbúum á Ólafsvíkurvelli hef-
ur fjölgað, en tjaldarnir sem þar
hafa haldið til eru búnir að fá
tvo unga úr eggjunum sínum.
Hafa þeir við það orðið nokkuð
ágengari við leikmenn þegar þeir
hafa verið á æfingum. Þeir fylgj-
ast alla vega mjög vel með öllu
sem fram fer á vellinum og láta
þá sem koma of nálægt finna fyr-
ir sér.
þa
Tjaldurinn á Ólafsvíkurvelli
búinn að unga út
Norðurálsmót á Akranesi um helgina
Jónas Sig og ritvélarnar
starta Ólafsvíkurvöku
180 sjö manna lið frá 31 félagi munu keppa á Norðurálsmótinu 2017.