Skessuhorn - 21.06.2017, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 21. JúNí 2017 23
Lýðveldisdagur íslendinga var
haldinn hátíðlegur í Stykkishólmi
eins og annars staðar á landinu.
Hátíðarhöldin hófust klukkan eitt
með skrúðgöngu frá Tónlistar-
skóla Stykkishólms að Hólmgarði.
Lúðrasveit Stykkishólms fór fyrir
skrúðgöngunni með fögrum tón-
um. Hátíðardagskrá var í Hólm-
garði með hefðbundnu sniði þar
sem fjallkonan flutti ávarp og
ræðumaður dagsins hélt erindi. Að
þessu sinni var Kolbrún Ösp Guð-
rúnardóttir fjallkonan og Gísli
Sveinn Grétarsson ræðumað-
ur dagsins. Einnig voru flutt tón-
listaratriði frá lúðrasveit Stykkis-
hólms, kór Stykkishólmskirkju og
hljómsveitinni Astron. Skemmti-
dagskrá var við útivistarsvæði
grunnskólans þar sem var karnival-
stemning. Þar gat fólk sest á hest-
bak, skátarnir voru með kassaklifur
og fleira og slökkviliðið sýndi tæki
sín og tól. Rúsínan í pylsuendan-
um var svo froðurennubraut sem
slökkviliðið bjó til í Hótelbrekk-
unni og skemmtu börnin sér vel
þegar þau renndu sér niður brekk-
una. Nokkuð fjölmennt var í bæn-
um og þá sérstaklega eftir að það
stytti upp.
bþb/ Ljósm. Sumarliði Ásgeirsson.
Fanney Dóra Sigurjónsdóttir hef-
ur nýlega lokið kokkanámi, en hún
útskrifaðist sem kokkur í maí og
er strax komin í kokkalandsliðið.
„Ég hef alltaf haft áhuga fyrir mat-
reiðslu og kem úr mikilli matarfjöl-
skyldu,“ segir Fanney Dóra sem þó
fór ekki beint í kokkanám þrátt fyr-
ir áhugann. „Mamma og pabbi eru
mjög góðir heimakokkar og það er
bara mikill áhugi á mat heima,“ seg-
ir Fanney Dóra sem er alin upp í
Ólafsvík.
Ekki aftur snúið eftir
Noregsferðina
„Matur og matargerð hefur lengi
verið mitt áhugamál og ég les mat-
reiðslubækur og horfi á heimilda-
myndir um mat,“ segir Fanney Dóra
sem starfaði sem kokkur í rúm fimm
ár áður en hún ákvað að ljúka kokk-
anáminu. Hún sótti um að komast
í kokkalandsliðið og fékk inngöngu
áður en hún útskrifaðist sem kokk-
ur. „Starfstími kokkalandsliðsins er
eitt ár og byrjar í júní. Þannig að ég
er útskrifuð sem kokkur, en var val-
in áður en ég útskrifaðist,“ útskýrir
Fanney Dóra.
Hún byrjaði á að læra félagsráð-
gjöf eftir stúdentspróf, kláraði það
nám og vann við það í einhvern tíma
eftir útskrift. Samhliða því vann hún
sem kokkur. Henni bauðst að fara
sem kokkur til Noregs eitt sumar í
kringum árið 2012 og hún segir að
eftir það hafi ekki verið aftur snúið.
„Eftir tvær vikur úti ákvað ég að fara
ekki aftur í félagsráðgjöf.“
Hugarfarsbreyting
gagnvart iðnnámi
Matargerðin er henni ástríða og það
heyrist á öllu tali Fanneyjar Dóru
að hún er komin á rétta hillu. Hún
stefnir á frekara nám í matargerð og
ætlar í meistarnám næsta haust. Hún
segir að kokkanámið sé langt frá
því að vera auðvelt, það sé stremb-
ið en hún hafi svo gaman að þessu
að henni finnst allt koma mjög auð-
veldlega. Hún les kokkabækur sér
til skemmtunnar og elskar að ræða
um mat og matargerð. Umhverf-
ið í skólanum hafi getað sameinað
þetta allt fyrir hana. Samnemendur
og kennarar voru alltaf til í að ræða
um matargerð. Kennararnir í skól-
anum hafi einnig verið með ástríðu
fyrir starfinu. „Þeir eru himnasend-
ing til fagsins, Ragnar Wessman og
Sigurður Daði.
Allt sem ég er að gera finnst
mér rosalega skemmtilegt og lang-
ir vinnudagar eru ekkert sem angr-
ar mig. Mér finnst ég ekki vera að
vinna allan daginn,“ segir Fanney
Dóra sem spjallar við blaðamann
Skessuhorns að morgni eftir sextán
klukkustunda vinnudag daginn áður.
Hún segir að þegar hún var á sín-
um tíma að velja sér framtíðarstarf
hafi henni verið bent á þessa löngu
vinnudaga. Þeir væru ekki mjög fjöl-
skylduvænir. Þess utan gætti þess ör-
lítið að iðnnám hefði yfir sér einhver
blæ að vera verra nám þegar hún var
að velja sér framtíðarstarf. „Það hef-
ur orðið einhver hugarfarsbreyting
varðandi iðnnámið,“ segir Fanney
Dóra og bendir á að það sé mikil-
væg þekking í iðnnámi sem ekki má
glatast.
Íslenskt hráefni
í matargerð
Eftir Noregsdvölina fór Fann-
ey Dóra til Brighton í Englandi
og starfaði á veitingastað í tvö ár
sem heitir Jamie‘s Italian, áður en
hún kom heim til íslands aftur fyr-
ir ári síðan. Hún fékk vinnu sem
kokkur á veitingastaðnum Slippn-
um í Vestmannaeyjum síðasta sum-
ar, þar sem hún starfar enn. Slipp-
urinn er í hópi fjögurra bestu veit-
ingastaða Norðurlandanna sam-
kvæmt White Guide Nordic, sem
velur bestu veitingastaði á Norður-
löndunum. Matreiðslan þar sé allt
önnur en hin ítalska matreiðsla sem
hún stundaði í Brighton. Hún hafi
í raun uppgötvað hvað það er mik-
ið af hráefnum í íslenskri náttúru.
„Eftir að ég fór að vinna þarna þá
sé ég hvað það er mikið í boði, til
dæmis bara í heimabyggðinni,“ seg-
ir hún. Það sé eitthvað sem hafi ekki
hvarflað að henni þegar hún flutti
frá Ólafsvík aðeins 16 ára gömul til
að stunda nám við Menntaskólann
á Akureyri. „Ég vildi bara flytja til
Reykjavíkur, þar sem var bíó og allt
að gerast,“ segir Fanney Dóra og
hlær. íslendingar hafi ekkert síðri
hráefni en aðrar þjóðir, til dæmis
jurtir og söl. „Fólk nýtti sér þetta
hér áður. En svo missti það niður
þekkinguna þegar innfluttur matur
fór að vera meira áberandi.“ í dag
finnst henni ekkert óvenjulegt að
fara út í náttúruna fyrir vinnu til að
tína jurtir sem á að nýta til matar-
gerðar. „Hér í Vestmannaeyjum er
mikið í boði af náttúrunnar hendi,
ekki síður en á Snæfellsnesi,“ segir
hún að endingu.
klj
Með ástríðu fyrir matargerð
Fanney Dóra Sigurjónsdóttir frá
Ólafsvík var valin í kokkalandsliðið
Hér safnar Fanney Dóra hráefni beint úr íslenskri nátturu fyrir kvöldið. Þar kemur
hvönnin sterkt inn. Veitingastaðurinn sem hún starfar á notar mikið af fersku
íslensku hráefni.
Fanney Dóra nýútskrifuð sem kokkur í vor.
Líf og fjör á sautjánda júní í Stykkishólmi
Selurinn sem sést á myndinni fangaði athygli barna sem virtu hann fyrir sér af
áhuga.
Það var mikið stuð í Hótelbrekkunni þar sem slökkviliðið hafði komið upp
froðurennibraut.
Gísli Sveinn Grétarsson var
ræðumaður dagsins.
Kolbrún Ösp Guðrúnardóttir var fjallkonan í ár og flutti ávarp í Hólmgarði.
Það er alltaf jafn vinsælt að setjast á hestbak og sumir gerðu það eflaust í fyrsta
sinn á 17. júní.