Skessuhorn - 26.07.2017, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 26. JúLÍ 2017 11
Næstu blöð af Skessuhorni
Skessuhorn kemur út samkvæmt
venju miðvikudaginn 2. ágúst.
Vegna sumarleyfa kemur ekki út blað
miðvikudaginn 9. ágúst, en þann dag
kemur starfsfólk úr fríi.
Er ferðavagninn rafmagnslaus?
TUDOR TUDOR
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta
Veldu
örugg
t
start
með
TUDO
R
Frístunda rafgeymar
í miklu úrvali,
AGM þurr rafgeymar
eða lokaðir
sýrurafgeymar.
Tvö skemmtiferðaskip voru í
Grundarfirði síðasta fimmtudag.
Bundið við bryggju lá Le Soleal,
sem gert er út af fyrirtækinu Pont-
ant og tekur 264 farþega. úti á firð-
inum lá síðan Star Legend við an-
keri, en það er 212 farþega snekkja
sem gerð er út af Windstar Crui-
ses.
Ferðalangar á Le Soleal höfðu
arkað yfir landganginn og brugðið
sér í bæjarferð. Á meðan voru far-
þegar Star Legend ferjaðir til og
frá landi á litlum farþegabátum.
Margmenni var á hafnarsvæðinu
og í miðbæ Grundarfjarðar, kaffi-
hús bæjarins þétt setin enda ekki
á hverjum degi sem tvö skemmti-
ferðaskip heimsækja bæinn á sama
tíma þó það komi vissulega fyrir.
kgk
Unglingalandsmót Ungmenna-
félags Íslands er árviss viðburður
á verslunarmannahelgi, ætlað ung-
mennum á aldrinum 11 til 18 ára.
Mótið var fyrst haldið á Dalvík árið
1992 og því verður mótið í ár 25
ára afmælismót. Jafnframt verð-
ur það tuttugasta árlega mótið, en
fyrst um sinn var unglingalandsmót
haldið á tveggja ára fresti. Móts-
haldari Unglingalandsmóts UMFÍ
2017 er Ungmenna- og Íþrótta-
samband Austurlands og verður
mótið haldið á Egilsstöðum.
Gert er ráð fyrir því að vel á ann-
að þúsund keppendur skrái sig til
leiks og búast má við um og yfir tíu
þúsund gestum í heildina. Keppt
verður í meira en 20 íþróttagrein-
um á mótinu og hægt verður að
prófa sig í fjölmörgum öðrum. Til
viðbótar við íþróttakeppnir verð-
ur margs konar afþreying í boði á
meðan mótinu stendur fyrir kepp-
endur og aðra gesti, s.s. kvöldvökur
þar sem landsþekktir tónlistarmenn
munu troða upp.
Unglingalandsmótið hefst
fimmtudaginn 3. ágúst og stendur
til sunnudagsins 6. ágúst. Mótið er
opið öllum frá aldrinum 11 til 18
ára og geta allir skráð sig til leiks,
sama hvort þeir séu skráðir iðkend-
ur í íþróttafélagi eður ei. kgk
Le Soleal við bryggju til vinstri í mynd. Fjær má sjá Star Legend við ankeri úti á
firðinum og litla farþegabáta ferja farþegana til og frá skipinu.
Skip við skip í Grundarfirði
Frá keppni í hástkökki á Unglingalandsmóti UMFÍ í fyrra, sem haldið var í Borgar-
nesi. Ljósm. úr safni.
Unglingalandsmót á Egilsstöðum
um verslunarmannahelgi