Skessuhorn


Skessuhorn - 26.07.2017, Side 20

Skessuhorn - 26.07.2017, Side 20
MIÐVIKUDAGUR 26. JúLÍ 201720 Pennagrein Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir, sett- ur forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, gerir í Skessuhorni þ. 19. júlí sl. athugasemdir við ýmis orð, sem undirritaður lét falla í við- tali, sem birt var þ. 12. júlí í tilefni af sjötugsafmæli hans. Undirritaður ætlar ekki að standa í ritdeilu við stjórn stofnunarinnar á þessum vettvangi, en vill þó færa í letur nokkur atriði, í von um að les- endur blaðsins verði einhvers vísari. Rétt er að taka fram í upphafi, að kjaramálin eru í höndum lögfræð- ings Læknafélags Íslands, og verður því ekki um þau fjölyrt hér. Sameining sex stofnana á Vest- urlandi, ásamt Hvammstanga og Hólmavík, varð þ. 1. janúar 2010. Engin stjórnunarstaða var auglýst, heldur var Guðjóni Brjánssyni, þá- verandi forstjóra á Akranesi „falið að sjá um sameininguna,“ eins og hann orðaði það sjálfur. Lagt var af stað af hálfu stjórnar með miklum fag- urgala og loforðum um „samráð“, „samvinnu“, „tillitssemi“ og „virð- ingu“ og forstjórinn tók skýrt fram á fundi með starfsfólki Heilsugæslu Stykkishólmshéraðs og St. Francis- kusspítala: „Það er ekki meiningin að sópa öllu niður á Akranes,“ svo orðrétt sé eftir haft. Gekk starfsfólk stofnananna í Stykkishólmi að sam- einingunni með mjög svo jákvæðu hugarfari, og á það ekki sízt við um undirritaðan. Forstjórinn skipaði svo aðra stjórnendur, enn án auglýsinga, og leit hópurinn þannig út, og gerir enn. Hafi bætzt við nýir stjórnend- ur, er þeirra ugglaust að leita í sama bæjarfélagi: Forstjóri: Akranes Hjúkrunarforstjóri: Akranes• Lækninga- og rekstrarfor-• stjóri: Akranes Fjármálastjóri: Akranes• Yfirmaður innkaupa: Akran es• Yfirmaður sjúkraflutninga: • Akranes Yfirlæknir sjúkraflutninga: • Akranes Yfirmaður tölvumála: Akranes• Yfirmaður ritara: Akranes• Ritstjóri Sögukerfis: Akranes• Ritstjóri heimasíðu: Akranes• Stýrihópur um rafræna sjúkra-• skrá: Allir 3 á Akranesi Verkefnastjóri tækni- og bún-• aðarmála: Akranes Verkefnastjóri þróunar- og • gæðamála: Akranes Áheyrnarfulltrúar í stjórn: • Báðir frá Borgarnesi Það er líklega engin þörf á að fara mörgum orðum um þessa skipan. Í aðdraganda hinnar svoköll- uðu sameiningar sat undirritaður í nefnd, sem gerði úttekt á starf- semi sjúkrahúsa innan svæðisins, en sjúkrahús með sérfræðiþjónustu eru reyndar aðeins tvö, SHA og SFS. Eftir hina formlegu sameiningu, veitti undirritaður því athygli, að meðal þeirra nefnda, sem áfram skyldu vinna úr þeim efniviði, sem safnazt hafði í nefndum fyrir sam- einingu, var nefndina um sjúkra- húsin ekki að finna. Fyrirspurn undirritaðs til Guðjóns Brjánsson- ar varðandi þessa nefnd var svarað í tölvupósti þannig: „Heill og sæll Jósef og þakka þér fyrir skeytið. Nei, það er aldeilis ekki búið að slá nefndina af, þetta er merk nefnd með þungavigtar- fólki innanborðs! Við ákváðum að leggja ekki sérstaka pressu á þetta núna í samrunafasanum, við telj- um að þetta sé viðfangsefni sem þurfi að fá ítarlega umfjöllun þeg- ar við höfum fengið fulla yfirsýn yfir nýja stofnun. Ég hef rætt þetta við Björn núna í dag og sömuleiðis Þóri og hann mun einnig setja sig í samband við þig. Þetta eru mik- ilvæg mál sem við þurfum að setj- ast yfir og móta okkur sýn til ein- hverrar framtíðar og ég held að það sé betra að gefa sér góðan tíma og umfjöllun til þess, það gerist ekk- ert á augabragði í þessum efnum en umræðan verður þó að eiga sér stað.“ Þessi „umræða“ hefur aldrei far- ið fram, þrátt fyrir ítrekuð tilmæli og kvartanir fagfólks stofnananna í Stykkishólmi. Allar, ég endurtek ALLAR, ákvarðanir varðandi þær stofnanir hafa verið teknar einhliða af stjórn HVE og ekkert samráð haft við faglega stjórnendur eða annað starfsfólk þeirra. Þá hefur lítið borið á „samvinnu“, „tillitssemi“ og „virð- ingu“. Þann 4. nóvember 2010 héldu svo Þórir Bergmundsson og Guð- jón Brjánsson fund með starfs- fólki í matsal SFS. Þar beindi Þór- ir þeim tilmælum, ef ekki skipun, til fagfólksins, að sem minnst skyldi leggja inn af sjúklingum á SFS og enga bráðasjúklinga. Gerði Þórir í máli sínu lítið úr starfsemi spítalans og reyndar úr starfi þeirra lækna af Snæfellsnesi, sem sent hafa til hans sjúklinga. „Þetta eru bara einhverjar kennitölur,“ svo orðrétt sé eftir haft. Þórir minntist ekki á þann, sem hér ritar, en kennitala undirritaðs hefur ekki tekið teljandi breytingum gegn- um tíðina. Hin faglegu rök voru þau, að „styrkja bæri stöðu sjúkrahússins á Akranesi sem bráðasjúkrahúss, til að það geti verið varasjúkrahús fyrir Reykjavíkursvæðið“. Varasjúkrahús Landspítala/Háskólasjúkrahúss heit- ir Sjúkrahúsið á Akureyri, og í þau örfáu skipti sem spítalinn á Akranesi hefur tekið við sjúklingum af LSH, hafa það verið langlegusjúklingar, sem beðið hafa á LSH eftir hjúkrun- arplássi annars staðar, og er þar spít- alinn á Akranesi í raun í sama flokki og SFS, en Stykkishólmur hefur einnig tekið við þess háttar sjúkling- um af LSH til að létta álagið á þessu flaggskipi íslenzkrar læknisfræði. Um leið tilkynnti Þórir að aflagð- ar yrðu vaktir lífeindafræðings, en SFS býr yfir afar góðum tækjakosti á rannsóknarstofu og hefur alla tíð notið frábærs fagfólks á sviði rann- sókna og sömuleiðis tveggja sjúkra- liða, sem þjálfaðir höfðu verið í töku röntgenmynda. Framangreindum ákvörðunum var harðlega mótmælt af fagfólki stofnunarinnar og undir þau mót- mæli tekið skriflega af öllum heilsu- gæzlulæknum svæðisins; í Ólafsvík, Grundarfirði, Stykkishólmi og Búð- ardal, en þeim mótmælum var í engu sinnt í verki. Það hefur engum dulizt, sem til þekkir, að SFS hefur í augum stjórnar HVE verið vandræðagripur, einkum þó Háls- og bakdeild spítalans, en deildin á 25 ára afmæli í haust. Ferill hennar hefur verið afar farsæll. Það staðfesta ekki færri en þrjár rann- sóknir og gríðarlegt magn tilvísana heilsugæzlulækna og sérfræðinga alls staðar á þessu landi - og á deild- inni unnið mikið brautryðjenda- starf í því erfiða verkefni sem háls- og bakvandamál eru. Nýtur deildin mikils álits meðal fagfólks bæði hér á landi og erlendis og hefur hlotið lof í gegnum tíðina, þ.e.a.s. af hálfu allra nema stjórnar HVE! Svo mikil voru vandræði stjórn- arinnar, að ráðuneyti velferðarmála kom á fót samstarfshópi um „endur- skoðun starfsemi Heilbrigðisstofn- unar Vesturlands í Stykkishólmi“. Sátu í nefndinni tveir fulltrúar ráðu- neytis, tveir úr stjórn HVE, tveir frá SFS og tveir frá bæjarstjórn Stykkis- hólms. Nokkur atriði úr niðurstöð- um hópsins, en hann skilaði af sér í júní 2011: „Hægt er að hugsa sér að efla al- menna sjúkrahúsþjónustu í Stykkis- hólmi með því að beina þangað inn- lögnum af þessu tagi af öllu Snæfells- nesi. Vegna samgangna er ekki raun- hæft að gera ráð fyrir Dalamönnum í þessu líkani. Upptökusvæði yrði þá með um 4.000 íbúa sem þyrftu samkvæmt landsviðmiði sex almenn sjúkrarými“ „Til langs tíma litið væri hyggi- legt að nýta reynslu og þekkingu fagteymisins til að efla þekkingu og þjálfun heilbrigðisstarfsfólks á lands- vísu. Öflugast væri að gera deildina að landsmiðstöð, eins konar „Na- tional Spine Institute“, sem hefði það hlutverk í samvinnu við sér- fræðinga Landspítalans, aðrar heil- brigðisstofnanir, háskóla og vísinda- samfélagið að koma á verkferlum á sviði greiningar og meðferðar háls- og bakvandamála og standa fyrir rannsóknum. Slík stofnun myndi sinna ráðgjöf til handa fagfólki og skipuleggja menntun og þjálfun, en stofnunin kennir nú þegar nemum í sjúkraþjálfun og læknisfræði.“ „Almenn sjúkrahúsþjónusta verði efld í Stykkishólmi með því að beina þangað innlögnum af öllu Snæfells- nesi í þeim tilfellum sem við á sam- kvæmt læknisfræðilegu mati. Áætl- að er að til að þjónusta þetta svæði þurfi sex almenn sjúkrarými. Til að manna þessa þjónustu þarf meðal annars lækni í sem svarar 60% starfs- hlutfalli eða fleiri en einn sem skipta með sér þessu starfi á móti starfi við heilsugæslu á svæðinu.“ „Rekstrargrundvöllur háls- og bakdeildar SFS verði endurskoð- aður með eflingu starfseminnar að markmiði. Starfsemi deildarinnar verði að hluta til fjármögnuð með sérstökum lið á fjárlögum þar sem starfsemi hennar nær yfir allt landið og er ekki fyrir hendi á öðrum stofn- unum. Athuga þarf vandlega sér- tekjumöguleika deildarinnar en þeir eru líklega umtalsverðir, til dæmis með samstarfi við VIRK eða hlið- stæðar stofnanir, með samningum um greiningu og meðhöndlun er- lendra sjúklinga (en fyrir því er viss reynsla), með þjónustu við fyrirtæki og stofnanir og við stofnanir ferða- þjónustu á svæðinu.“ Ekkert, ekki eitt einasta, af þessum atriðum hefur verið tekið til skoð- unar, hvað þá framkvæmda, af hálfu stjórnar. Skrifuðu þó Þórir Berg- mundsson, framkvæmdastjóri lækn- inga og rekstrar, og Steinunn Sig- urðardóttir, þáv. hjúkrunarforstjóri, bæði undir framangreindar niður- stöður. Jóhönnu Fjólu þykir „dapur- legt að sjá að í lok hennar (greinar- innar/viðtalsins - innskot undirrit- aðs) að stjórnendum sé ekki treyst- andi fyrir framtíð HVE í Stykkis- hólmi“. Depurðin er svo sannarlega gagnkvæm! Jóhanna Fjóla skrifar: „Háls- og bakdeildin er ekki eina deildin í HVE þar sem óánægju gætir með að ekki hefur fengist aukið fjármagn í reksturinn...“ Deildin er hins vegar sú eina innan HVE, sem þjónar öllu landinu og sú eina, sem er með á átt- unda hundrað manns á biðlista. Þeg- ar fagfólkið hefur ítrekað bent Guð- jóni, Jóhönnu Fjólu og Þóri á þessa staðreynd, hve gríðarlegur kostnað- ur fylgir því að láta verkjasjúklinga bíða lengi og hve neikvæð áhrif bið- in hefur á batahorfur, svo ekki sé minnst á þá þjáningu, sem viðkom- andi sjúklingar mega búa við í þess- ari löngu bið, þá rýna þau í atriði 4) hér að ofan um rekstrargrund- völl deildarinnar og nota þá setn- ingu sem afsökun til að ræða málið ekki frekar. Það mál er löngu útrætt af hálfu ráðuneytis heilbrigðismála, og auk þess hefur aldrei tekizt að fá upplýsingar frá stjórn HVE um kostnaðinn við rekstur deildarinnar, þrátt fyrir ítrekuð tilmæli yfirsjúkra- þjálfara deildarinnar, Hrefnu Frí- mannsdóttur. Hér er aðeins farið yfir örfá at- riði, en dapurlegir stjórnunarhættir stjórnar HVE væru efni í heila bók, og eru jafnvel efni í stjórnsýslu- og eineltiskæru. Í ljósi þessa þarf eng- an að undra, þótt fagfólk SFS og Heilsugæslu Stykkishólmshéraðs beri ekkert traust til stjórnar Heil- brigðisstofnunar Vesturlands. Það á enginn að þurfa að skrifa grein sem þessa, en því miður verður ekki orða bundizt, þegar komið er af illvilja og óbilgirni fram við hörku- duglegt, vel menntað og metnað- arfullt fagfólk og annað starfsfólk stofnunar, sem leggur sig fram um að hækka stöðugt gæðastaðal starf- seminnar í þágu sjúklinganna ein- göngu en ekki úreltrar, ófaglegrar byggðastefnu. Jósep Ó. Blöndal Höf. er fráfarandi yfirlæknir sjúkrasviðs Heilbrigðisstofnunar Vest- urlands í Stykkishólmi. Lítilla sanda... lítilla sæva... Örfáar athugasemdir við grein Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur 19. júlí sl.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.