Skessuhorn - 26.07.2017, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 26. JúLÍ 201720
Pennagrein
Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir, sett-
ur forstjóri Heilbrigðisstofnunar
Vesturlands, gerir í Skessuhorni þ.
19. júlí sl. athugasemdir við ýmis
orð, sem undirritaður lét falla í við-
tali, sem birt var þ. 12. júlí í tilefni
af sjötugsafmæli hans.
Undirritaður ætlar ekki að standa
í ritdeilu við stjórn stofnunarinnar
á þessum vettvangi, en vill þó færa í
letur nokkur atriði, í von um að les-
endur blaðsins verði einhvers vísari.
Rétt er að taka fram í upphafi, að
kjaramálin eru í höndum lögfræð-
ings Læknafélags Íslands, og verður
því ekki um þau fjölyrt hér.
Sameining sex stofnana á Vest-
urlandi, ásamt Hvammstanga og
Hólmavík, varð þ. 1. janúar 2010.
Engin stjórnunarstaða var auglýst,
heldur var Guðjóni Brjánssyni, þá-
verandi forstjóra á Akranesi „falið að
sjá um sameininguna,“ eins og hann
orðaði það sjálfur. Lagt var af stað
af hálfu stjórnar með miklum fag-
urgala og loforðum um „samráð“,
„samvinnu“, „tillitssemi“ og „virð-
ingu“ og forstjórinn tók skýrt fram
á fundi með starfsfólki Heilsugæslu
Stykkishólmshéraðs og St. Francis-
kusspítala: „Það er ekki meiningin
að sópa öllu niður á Akranes,“ svo
orðrétt sé eftir haft. Gekk starfsfólk
stofnananna í Stykkishólmi að sam-
einingunni með mjög svo jákvæðu
hugarfari, og á það ekki sízt við um
undirritaðan.
Forstjórinn skipaði svo aðra
stjórnendur, enn án auglýsinga, og
leit hópurinn þannig út, og gerir
enn. Hafi bætzt við nýir stjórnend-
ur, er þeirra ugglaust að leita í sama
bæjarfélagi:
Forstjóri: Akranes
Hjúkrunarforstjóri: Akranes•
Lækninga- og rekstrarfor-•
stjóri: Akranes
Fjármálastjóri: Akranes•
Yfirmaður innkaupa: Akran es•
Yfirmaður sjúkraflutninga: •
Akranes
Yfirlæknir sjúkraflutninga: •
Akranes
Yfirmaður tölvumála: Akranes•
Yfirmaður ritara: Akranes•
Ritstjóri Sögukerfis: Akranes•
Ritstjóri heimasíðu: Akranes•
Stýrihópur um rafræna sjúkra-•
skrá: Allir 3 á Akranesi
Verkefnastjóri tækni- og bún-•
aðarmála: Akranes
Verkefnastjóri þróunar- og •
gæðamála: Akranes
Áheyrnarfulltrúar í stjórn: •
Báðir frá Borgarnesi
Það er líklega engin þörf á að fara
mörgum orðum um þessa skipan.
Í aðdraganda hinnar svoköll-
uðu sameiningar sat undirritaður
í nefnd, sem gerði úttekt á starf-
semi sjúkrahúsa innan svæðisins, en
sjúkrahús með sérfræðiþjónustu eru
reyndar aðeins tvö, SHA og SFS.
Eftir hina formlegu sameiningu,
veitti undirritaður því athygli, að
meðal þeirra nefnda, sem áfram
skyldu vinna úr þeim efniviði, sem
safnazt hafði í nefndum fyrir sam-
einingu, var nefndina um sjúkra-
húsin ekki að finna. Fyrirspurn
undirritaðs til Guðjóns Brjánsson-
ar varðandi þessa nefnd var svarað í
tölvupósti þannig:
„Heill og sæll Jósef og þakka þér
fyrir skeytið. Nei, það er aldeilis
ekki búið að slá nefndina af, þetta
er merk nefnd með þungavigtar-
fólki innanborðs! Við ákváðum að
leggja ekki sérstaka pressu á þetta
núna í samrunafasanum, við telj-
um að þetta sé viðfangsefni sem
þurfi að fá ítarlega umfjöllun þeg-
ar við höfum fengið fulla yfirsýn
yfir nýja stofnun. Ég hef rætt þetta
við Björn núna í dag og sömuleiðis
Þóri og hann mun einnig setja sig
í samband við þig. Þetta eru mik-
ilvæg mál sem við þurfum að setj-
ast yfir og móta okkur sýn til ein-
hverrar framtíðar og ég held að það
sé betra að gefa sér góðan tíma og
umfjöllun til þess, það gerist ekk-
ert á augabragði í þessum efnum
en umræðan verður þó að eiga sér
stað.“
Þessi „umræða“ hefur aldrei far-
ið fram, þrátt fyrir ítrekuð tilmæli
og kvartanir fagfólks stofnananna
í Stykkishólmi. Allar, ég endurtek
ALLAR, ákvarðanir varðandi þær
stofnanir hafa verið teknar einhliða
af stjórn HVE og ekkert samráð haft
við faglega stjórnendur eða annað
starfsfólk þeirra. Þá hefur lítið borið
á „samvinnu“, „tillitssemi“ og „virð-
ingu“.
Þann 4. nóvember 2010 héldu
svo Þórir Bergmundsson og Guð-
jón Brjánsson fund með starfs-
fólki í matsal SFS. Þar beindi Þór-
ir þeim tilmælum, ef ekki skipun,
til fagfólksins, að sem minnst skyldi
leggja inn af sjúklingum á SFS og
enga bráðasjúklinga. Gerði Þórir í
máli sínu lítið úr starfsemi spítalans
og reyndar úr starfi þeirra lækna af
Snæfellsnesi, sem sent hafa til hans
sjúklinga. „Þetta eru bara einhverjar
kennitölur,“ svo orðrétt sé eftir haft.
Þórir minntist ekki á þann, sem hér
ritar, en kennitala undirritaðs hefur
ekki tekið teljandi breytingum gegn-
um tíðina. Hin faglegu rök voru þau,
að „styrkja bæri stöðu sjúkrahússins
á Akranesi sem bráðasjúkrahúss, til
að það geti verið varasjúkrahús fyrir
Reykjavíkursvæðið“. Varasjúkrahús
Landspítala/Háskólasjúkrahúss heit-
ir Sjúkrahúsið á Akureyri, og í þau
örfáu skipti sem spítalinn á Akranesi
hefur tekið við sjúklingum af LSH,
hafa það verið langlegusjúklingar,
sem beðið hafa á LSH eftir hjúkrun-
arplássi annars staðar, og er þar spít-
alinn á Akranesi í raun í sama flokki
og SFS, en Stykkishólmur hefur
einnig tekið við þess háttar sjúkling-
um af LSH til að létta álagið á þessu
flaggskipi íslenzkrar læknisfræði.
Um leið tilkynnti Þórir að aflagð-
ar yrðu vaktir lífeindafræðings, en
SFS býr yfir afar góðum tækjakosti
á rannsóknarstofu og hefur alla tíð
notið frábærs fagfólks á sviði rann-
sókna og sömuleiðis tveggja sjúkra-
liða, sem þjálfaðir höfðu verið í töku
röntgenmynda.
Framangreindum ákvörðunum
var harðlega mótmælt af fagfólki
stofnunarinnar og undir þau mót-
mæli tekið skriflega af öllum heilsu-
gæzlulæknum svæðisins; í Ólafsvík,
Grundarfirði, Stykkishólmi og Búð-
ardal, en þeim mótmælum var í engu
sinnt í verki.
Það hefur engum dulizt, sem til
þekkir, að SFS hefur í augum stjórnar
HVE verið vandræðagripur, einkum
þó Háls- og bakdeild spítalans, en
deildin á 25 ára afmæli í haust. Ferill
hennar hefur verið afar farsæll. Það
staðfesta ekki færri en þrjár rann-
sóknir og gríðarlegt magn tilvísana
heilsugæzlulækna og sérfræðinga
alls staðar á þessu landi - og á deild-
inni unnið mikið brautryðjenda-
starf í því erfiða verkefni sem háls-
og bakvandamál eru. Nýtur deildin
mikils álits meðal fagfólks bæði hér á
landi og erlendis og hefur hlotið lof
í gegnum tíðina, þ.e.a.s. af hálfu allra
nema stjórnar HVE!
Svo mikil voru vandræði stjórn-
arinnar, að ráðuneyti velferðarmála
kom á fót samstarfshópi um „endur-
skoðun starfsemi Heilbrigðisstofn-
unar Vesturlands í Stykkishólmi“.
Sátu í nefndinni tveir fulltrúar ráðu-
neytis, tveir úr stjórn HVE, tveir frá
SFS og tveir frá bæjarstjórn Stykkis-
hólms. Nokkur atriði úr niðurstöð-
um hópsins, en hann skilaði af sér í
júní 2011:
„Hægt er að hugsa sér að efla al-
menna sjúkrahúsþjónustu í Stykkis-
hólmi með því að beina þangað inn-
lögnum af þessu tagi af öllu Snæfells-
nesi. Vegna samgangna er ekki raun-
hæft að gera ráð fyrir Dalamönnum
í þessu líkani. Upptökusvæði yrði
þá með um 4.000 íbúa sem þyrftu
samkvæmt landsviðmiði sex almenn
sjúkrarými“
„Til langs tíma litið væri hyggi-
legt að nýta reynslu og þekkingu
fagteymisins til að efla þekkingu og
þjálfun heilbrigðisstarfsfólks á lands-
vísu. Öflugast væri að gera deildina
að landsmiðstöð, eins konar „Na-
tional Spine Institute“, sem hefði
það hlutverk í samvinnu við sér-
fræðinga Landspítalans, aðrar heil-
brigðisstofnanir, háskóla og vísinda-
samfélagið að koma á verkferlum á
sviði greiningar og meðferðar háls-
og bakvandamála og standa fyrir
rannsóknum. Slík stofnun myndi
sinna ráðgjöf til handa fagfólki og
skipuleggja menntun og þjálfun, en
stofnunin kennir nú þegar nemum í
sjúkraþjálfun og læknisfræði.“
„Almenn sjúkrahúsþjónusta verði
efld í Stykkishólmi með því að beina
þangað innlögnum af öllu Snæfells-
nesi í þeim tilfellum sem við á sam-
kvæmt læknisfræðilegu mati. Áætl-
að er að til að þjónusta þetta svæði
þurfi sex almenn sjúkrarými. Til að
manna þessa þjónustu þarf meðal
annars lækni í sem svarar 60% starfs-
hlutfalli eða fleiri en einn sem skipta
með sér þessu starfi á móti starfi við
heilsugæslu á svæðinu.“
„Rekstrargrundvöllur háls- og
bakdeildar SFS verði endurskoð-
aður með eflingu starfseminnar að
markmiði. Starfsemi deildarinnar
verði að hluta til fjármögnuð með
sérstökum lið á fjárlögum þar sem
starfsemi hennar nær yfir allt landið
og er ekki fyrir hendi á öðrum stofn-
unum. Athuga þarf vandlega sér-
tekjumöguleika deildarinnar en þeir
eru líklega umtalsverðir, til dæmis
með samstarfi við VIRK eða hlið-
stæðar stofnanir, með samningum
um greiningu og meðhöndlun er-
lendra sjúklinga (en fyrir því er viss
reynsla), með þjónustu við fyrirtæki
og stofnanir og við stofnanir ferða-
þjónustu á svæðinu.“
Ekkert, ekki eitt einasta, af þessum
atriðum hefur verið tekið til skoð-
unar, hvað þá framkvæmda, af hálfu
stjórnar. Skrifuðu þó Þórir Berg-
mundsson, framkvæmdastjóri lækn-
inga og rekstrar, og Steinunn Sig-
urðardóttir, þáv. hjúkrunarforstjóri,
bæði undir framangreindar niður-
stöður. Jóhönnu Fjólu þykir „dapur-
legt að sjá að í lok hennar (greinar-
innar/viðtalsins - innskot undirrit-
aðs) að stjórnendum sé ekki treyst-
andi fyrir framtíð HVE í Stykkis-
hólmi“. Depurðin er svo sannarlega
gagnkvæm!
Jóhanna Fjóla skrifar: „Háls- og
bakdeildin er ekki eina deildin í
HVE þar sem óánægju gætir með
að ekki hefur fengist aukið fjármagn
í reksturinn...“ Deildin er hins vegar
sú eina innan HVE, sem þjónar öllu
landinu og sú eina, sem er með á átt-
unda hundrað manns á biðlista. Þeg-
ar fagfólkið hefur ítrekað bent Guð-
jóni, Jóhönnu Fjólu og Þóri á þessa
staðreynd, hve gríðarlegur kostnað-
ur fylgir því að láta verkjasjúklinga
bíða lengi og hve neikvæð áhrif bið-
in hefur á batahorfur, svo ekki sé
minnst á þá þjáningu, sem viðkom-
andi sjúklingar mega búa við í þess-
ari löngu bið, þá rýna þau í atriði
4) hér að ofan um rekstrargrund-
völl deildarinnar og nota þá setn-
ingu sem afsökun til að ræða málið
ekki frekar. Það mál er löngu útrætt
af hálfu ráðuneytis heilbrigðismála,
og auk þess hefur aldrei tekizt að
fá upplýsingar frá stjórn HVE um
kostnaðinn við rekstur deildarinnar,
þrátt fyrir ítrekuð tilmæli yfirsjúkra-
þjálfara deildarinnar, Hrefnu Frí-
mannsdóttur.
Hér er aðeins farið yfir örfá at-
riði, en dapurlegir stjórnunarhættir
stjórnar HVE væru efni í heila bók,
og eru jafnvel efni í stjórnsýslu- og
eineltiskæru. Í ljósi þessa þarf eng-
an að undra, þótt fagfólk SFS og
Heilsugæslu Stykkishólmshéraðs
beri ekkert traust til stjórnar Heil-
brigðisstofnunar Vesturlands.
Það á enginn að þurfa að skrifa
grein sem þessa, en því miður verður
ekki orða bundizt, þegar komið er af
illvilja og óbilgirni fram við hörku-
duglegt, vel menntað og metnað-
arfullt fagfólk og annað starfsfólk
stofnunar, sem leggur sig fram um
að hækka stöðugt gæðastaðal starf-
seminnar í þágu sjúklinganna ein-
göngu en ekki úreltrar, ófaglegrar
byggðastefnu.
Jósep Ó. Blöndal
Höf. er fráfarandi yfirlæknir
sjúkrasviðs Heilbrigðisstofnunar Vest-
urlands í Stykkishólmi.
Lítilla sanda... lítilla sæva...
Örfáar athugasemdir við grein Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur 19. júlí sl.