Skessuhorn


Skessuhorn - 26.07.2017, Síða 23

Skessuhorn - 26.07.2017, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 26. JúLÍ 2017 23 Krossgáta Skessuhorns Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Auk þess birtum við lausn á krossgátu síðustu viku. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánudögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta, Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verður úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn bókargjöf frá Skessuhorni. Alls bárust 49 lausnir við krossgátunni í blaðinu í síðustu viku. Lausnin var: „Rómantík.“ Vinningshafi er Jóna Kristrún Sigurðardóttir, Höfðagrund 14c, 300 Akranesi. Máls- háttur Viðbót Næði Aldur Ról Til Strax Hnýti Dag- leið Étandi Farm- rúm Gróður Yrkja Stríðir Ras Eld- stæði Metnar Gáll Tónn Öf.tvíhlj Kássa Borð- stokkur Mjög Ötular Vel- gengni Glæran 5 8 Tóm Krúsin Ójafna Slæm Fæddu Sumbl Skortur Skæði Geta Góður Hvílir Samhlj. Otar fram Skán Kögur Temur Linir Æstar Ilmjurt Hraði 7 Skýr Teppi Plat Hlýt Á fæti 2 Ágóða Dimma Óvild Kona Bundið Terta 100 4 Glufan Röstin Þátt- taka Grá Heitir Skylda Sálir Eind Beljak- ar Læti Form Kúla Loft-teg Sýl Úlf Vökvar Greiða Tölur Hélt Átt Hól 6 Tölur Hafrót Tangi 1 Ílát Vesæll Karl Eink.st. Berg- mála 50 Koss Taut Korn Rödd Svik Tónn Sk.st. Þjappa Lögg Sæti Sunna Slöpp 3 Eins 150 Sæti Ílát Afinn Vigt- aði Hita- svækja Veð 3 Viðmót Átt Hvíldi 1 2 3 4 5 6 7 8 S J A R M E R A N D Á L A A F A R E I Y L U R T R A F R A S K I L R Á S G Ð A T R I Ð I N A N D I E I R Æ L L U N I M Ó R A L M I K I L R Ó T A T A A F T A N U T A N T L A G Ó A R T N R M Á T A D A L A R Ú F U R T A A Ð A E I R A Á S A T S A G A P Ó N T R É N A K K S L Ó A D A M R Ú R A K L A E I M A R L I A A B E R A F T U R E L D I N G B Ó G Í A G L Æ S I L E G T N A T I N N L Ó M Ó A R O R Ð G Á L L S K I L R V R Ó M A N T Í K L A U S N Ú R S ÍÐ A S T A B L A Ð I Vísnahorn Enn hef ég ekki fengið nein viðbrögð við beiðni minni um vísur eftir Dala Jóa eða Jóhann Kristjáns- son frá Bugðustöðum. Veit þó að töluvert er til eftir hann af hesta- vísum og örugglega eitthvað af annars konar kveðskap sem nú gæti verið í glathættu. Hér koma samt nokkrar hestavísur eftir Jóa ef þær gætu orðið til að hreyfa við einhverjum: Fremur stutt ég fer á Gorm. Finnst hann vanta þorið. En gaman væri að fá í form folann undir vorið. Svo nálgast vorið og breytingarnar láta ekki á sér standa: Það er að heyra af hófagamm heldur meira fer hann, komin eyrun eru fram eitthvað fleira sér hann. Upplitið er orðið kátt ekkert fát við tauminn, ófeiminn með höfuð hátt horfir beint í glauminn. Og svo ein vetrarlegri: Makkann hringar, hækkar brá hátt við syngur skóinn. Svellin springa, flísar frá falla kringum jóinn. Heiti ég nú á aldraða Dalamenn og aðra þá sem yfir fróðleik kynnu að búa að duga mér nú drengilega og láta ekki kveðskap Jóa glat- ast. Pétur Georg var um skeið í útvarpsráði. Eitt- hvað fannst honum stundum orðalag í til- kynningum og fleiru undarlegt og nýtti sér það til framleiðslu eftirfarandi vísu: Samkvæmt heimild háeff Ver Hörður emmbé fundinn er, sást frá essess Esjunni, ennennvaff af Straumnesi. Ýmsir hafa spreytt sig á sléttuböndum í tím- ans rás og vafalaust misjafn árangur eins og gengur. Þessi eru eftir Pétur Sigurðsson og engin ástæða til að finna neitt að þeim: Stækkar njóli, hlíðar hól heiðblá fjóla klæðir, hækkar sóley, bygðar ból blessuð sólin græðir. Margir kannast eða að minnsta kosti könnuð- ust við orðalagið „Maður guðs og lifandi“. Nú hef ég enga hugmynd um hvernig það er til komið en til er gömul vísa þar sem þetta kem- ur fyrir og kveðið um konu sem notaði þetta orðalag ósparlega: Heyra myndirðu hjá mér orð, hefði ég verið skrifandi. Margoft sagði menjaskorð: „Maður Guðs og lifandi.“ Hinsvegar veit ég ekki betur en það hafi verið Anna frá Steðja sem orti: Það er margt sem móti blæs, maður lifandi. Ég er orðin illa læs og ekki skrifandi. Guðjón á Hermundarstöðum var um tíma vinnumaður norður í Hrútafirði á yngri árum. Þar var samtíða honum stúlka sem Guðrún hét og hafði á orði að aldrei myndi hún gift- ast Sunnlendingi hvað sem á dyndi. Af því til- efni kvað Guðjón: Af kærleiksbrunni beyskist öl baugarunnum slyngum, ef hún Gunna er ekki föl okkur Sunnlendingum. Þessi mun líka vera eftir Guðjón en ekki skal ég fullyrða neitt um það hvort hún hefur fæðst af sama tilefni eða þá hver alvara hefur fylgt hafi svo verið: Enginn skal neitt á mér sjá, eða merki finna, þó ég horfi hrundar á hallir vona minna. Einu sinni var það talið gáfumerki að hafa hátt enni. Svo getur þó farið að ennið hækki örlítið með árunum jafnvel án þess gáfurn- ar vaxi merkjanlega en það er þó erfiðara að standa uppi í hárinu á viðkomandi. Sigurjón Þorgrímsson skaut eftirfarandi vísu að sessu- naut sínum á fundi en gáfulegur maður var í ræðustól: Varaðu þig á beiti brands, við brögðin er hann kenndur og framan til á höfði hans í hárinu enginn stendur. Eftirfarandi vísur eru æði gamlar orðnar en í fullu gildi enn og geta sem best átt við bæði þá sem einhverra hluta vegna hafa náð sér í sinn ríflega skerf af gjaldmiðlum heimsins nú eða bara þá sem eru orðnir leiðir á rigningunni. Höfundur mun vera Júlíus Rafn Símonarson: Marga sá ég meinakind metum ná hjá flónum uppi á háum heillatind hampa gljáum krónum. Met ég fátt við mannkynið, má þó sáttur una, mér er grátt í geði við guð og - náttúruna. Nú eru flestir hættir að yrkja rímur en einn þátturinn í þeim menningararfi var mansöng- urinn sem var á undan efnisþætti hverrar rímu fyrir sig. Svona sambærilegt við auglýsingar á milli þátta í sjónvarpinu nema skáldið ávarp- aði þar nærliggjandi heimasætur og vinnukon- ur og reyndi kannske örlítið að spreka þeim til – Ef ske kynni? Eftirfarandi mansöngur mun þó vera til þess að gera nýlegur og eftir Þórar- inn M Baldursson: Ef þú vildir vera svo væn að þagna góða, eg skal kveða á við tvo obba minna ljóða. Gleðja mun þig mærin best minna stefja kliður ef þú gætir aðeins sest örstund hjá mér niður. Brátt frá mansöng mér ég vík, mína spyr ég vinu: Væri hugmynd slæm, sem slík, að slökkva á sjónvarpinu? Heyrðu bjarta baugalín, byrjar núna ríman. Litla hjartans ljúfan mín, leggðu frá þér símann. Ég hef verið beðinn um að spyrjast fyrir hvort nokkur kannist við eftirfarandi vísu og viti þá um höfund? Ætli við látum það ekki verða lokaorðin að sinni: Þú sem málar mærðarklið mann ókenndan viður, stattu á nálum firrtur frið, fáðu sálar kafaldið. Með þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Hrísum, 320 Reykholt S 435 1189 og 849 2715 dd@simnet.is Litla hjartans ljúfan mín - leggðu frá þér símann!

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.