Skessuhorn


Skessuhorn - 27.09.2017, Page 16

Skessuhorn - 27.09.2017, Page 16
 Matarauður MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 201716 Mikil umræða hefur verið á Vesturlandi, líkt og í öðrum lands- hlutum, um að efla matvælafram- leiðslu og þá sér- staklega framleiðslu minni framleið- enda sem oftar en ekki tengist ferða- þjónustu á svæðinu. Verkefnið hef- ur sterka tengingu við Sóknaráætl- un Vesturlands og sett markmið eru í takt við áætlunina og þá framtíðar- sýn Vestlendinga sem Sóknaráætlun endurspeglar. Markmið Matarauðs Vesturlands eru að; efla matvælaframleiðslu, • fullvinnslu hráefnis í héraði, • sölu beint frá býli, • hráefnisnotkun úr heimahéraði á • veitingastöðum og matartengda upplifun á Vestur-• landi. Vinna að ofangreindum markmið- um er í gangi og hefur verkefnastjóri Matarauðs Vesturlands ásamt verk- efnastjóra áfangastaðaáætlunar Vest- urlands og Matarauði Íslands, unnið að kortlagningu tækifæra og áskorana á Vesturlandi. Sú vinna mun halda áfram með heimsóknum til fram- leiðenda og veitingahúsa á Vestur- landi fram á haust. En við látum ekki þar við sitja. Matarauður Vesturlands stendur fyrir viðburðum og stefnu- móti ásamt fræðslu og samvinnu við ýmsa opinbera aðila til að vinna að settum markmiðum í vetur. Þú ert að lesa blað sem er liður í því að sýna hvað er í boði af mat og matartengdri upplifun á Vesturlandi. Hér eru því engan veginn gerð tæm- andi skil, en efnistök blaðsins eru fjöl- breytt og safarík eins og matarauður- inn okkar. Nýttu tækifærið og njóttu kræsing- anna og þeirra viðburða sem í boði verða og eru kynntir í blaðinu. Við hvetjum þig til að geyma blaðið og smjatta á innihaldinu út októbermán- uð eða eins lengi og þig lystir. Ef þú villt vita meira um verkefnið Matarauður Vesturlands þá er hægt að lesa um það á heimasíðu Sam- taka sveitarfélaga á Vesturlandi undir ahersluverkefni.ssv.is Með góðri kveðju fyrir hönd verkefnisstjórnar, Signý Óskarsdóttir Við njótum þeirrar gæfu að búa við matarauð sem byggir á dýrmætri frumkvöðulshefð sem gengið hef- ur kynslóða á milli. Tilgangur Mat- arauðs Íslands er að nýta matarauð- inn okkar sem sóknarfæri til frekari verðmætasköpunar t.d. í tengslum við matarferðaþjónustu, vöruþróun og ímyndaruppbyggingu með sjálf- bærni að leiðarljósi. Ætlunin er að draga Íslendinga og erlenda gesti að hlaðborði íslenskra krása, upplýsa um hollustu og heilnæmi þeirra og tefla fram sögu Íslendinga sem birt- ist í matarmenningu og hefðum. Matarhefðir, rétt eins og tungu- mál og trúarbrögð, spegla sérkenni hverrar þjóðar og eru samofin nátt- úru og tíðarfari. Þessi hefð í bland við aukna þekkingu og skapandi hugsun hefur leitt af sér úrval matar á heimsmælikvarða. Matarauður Íslands er verkefni sem heyrir undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og er ætlað að ljúka í desember 2021. Sjávarút- vegs- og landbúnaðarvörur eru und- irstaða Íslands sem matvælalands og gegna stóru hlutverki í sjálfbærri þróun. Án matar væri ekkert líf og eigum við bændum og sjómönnum mikið að þakka að brauðfæða þjóð- ina. Mikilvægi norðurslóða sem matvælauppspretta mun aukast á komandi árum og því er mikilvægt að við hlúum að þeim skilyrðum og auðlindum sem við búum við. Mat- væla- og landbúnaðarstofnun Sam- einuðu þjóðanna (FAO) telur að landbúnaðarframleiðslan verði að aukast um 60% á heimsvísu til að fæða jarðarbúa árið 2050. Sem þjóð er mikilvægt að búa að fjölbreyttu mannlífi og byggð um land allt og til að stuðla að at- vinnuþróun vilja stjórnvöld vinna þvert á greinar tengdum matarauði okkar því að samvinna og þekk- ingaryfirfærsla eru drifkraftar ný- sköpunar og framþróunar. Til að mynda hefur verkefnastjóri Mat- arauðs Vesturlands ásamt verkefna- stjóra áfangastaðaáætlunar Vestur- lands unnið að kortlagningu tæki- færa og áskorana með Matarauði Íslands. Er nokkuð víst að metnað- arfull verkefni munu fæðast upp úr því samstarfi. Matur er öflugt markaðsafl og mikilvægt að nýta aukinn áhuga á matarferðaþjónustu með því að setja meiri slagkraft í uppbyggingu og markaðssetningu þeirra matarsér- stöðu sem hver landshluti býr yfir. Ef gert er ráð fyrir að tvær milljón- ir erlendra ferðamanna sæki Ísland heim og hver dvelur að meðaltali í sjö daga og borðar tvisvar á dag má reikna með að daglega bætast 77.000 máltíðir við neyslu Íslendinga. Orðræðan um íslensk matvæli þarf að hverfast meira um stolt og þekkingu. Verð og gæði þurfa að haldast í hendur og bregðast þarf við aukinni gæða- og umhverfisvitund neytenda í matvörum. Aukin krafa er um lífræna ræktun, rekjanleika og upprunavottun og meiri ásókn er í svæðisbundin matvæli sem gefa af sér minna sótspor. Við njótum öll góðs af því að deila reynslu, þekkingu og sögum hvert með öðru og sameiginlega styrkjum við ímynd íslensks matar og matar- menningar. Matarauðurinn er okkar, okkur að góðu. Brynja Laxdal, verkefnastjóri (Erum á Facebook og Instagram og fljótlega fer vefurinn okkar í loftið). Matarauður Íslands Á myndinni er brot af úrvali mat- ar af Vesturlandi. Meðal annars ærkjöt frá Ytra-Hólmi I, þorsk- ur frá G.Run í Grundarfirði, kræklingur og þang frá Bláskel í Stykkishólmi, smágúrkur frá Laugalandi, salat og jarðarber frá Sólbyrgi, lífrænt súrdeigs- brauð frá Matarbúri Kaju, bygg frá Ásgarði og sitthvað fleira. Um matseld sá veitingastaðurinn Galitó á Akranesi en hönnun og framsetningu Emilía Ottesen og Guðbjörg Ólafsdóttir. Gefið út í samstarfi Skessu- horns og verkefnisstjórnar Matar- auðs Vesturlands / Sóknaráætlun- ar Vesturlands. Ábm. Signý Ósk- arsdóttir verkefnisstjóri. Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson. Matarauður Vesturlands Heimasíða Matarauðs Vesturlands fer í loftið í lok árs og á þeirri síðu verður hægt að markaðssetja mat- armenningu og matarupplifun á Vesturlandi. Einnig verða á þeirri síðu upplýsingar um matarmarkaði og viðburði sem tengjast á einhvern hátt mat úr héraði. Öllum sem tengjast matvælaframleiðslu, full- vinnslu hráefnis í héraði, sölu beint frá býli, hráefnisnotkun úr heima- héraði á veitingastöðum og matar- tengdri upplifun á Vesturlandi er boðið að vera með á síðunni. Heimasíðan kemur til með að efla markaðssetningu á vörum úr héraði og mun haldast í hendur við mark- aðssetningu Matarauðs Íslands. Heimasíða Matarauðs Vesturlands Við Samkomuhúsið á Arnarstapa. Matarauður Vesturlands Í febrúar 2015 skrifuðu Sam- tök sveitarfélaga á Vesturlandi undir samning við stjórnvöld um Sóknaráætl- un Vesturlands fyrir árin 2015-2019. Markmið sóknaráætlunar er að ráð- stafa þeim fjármunum sem varið er af ríkinu til atvinnu-, byggða- og menn- ingarmála á Vesturlandi í samræmi við stefnu sem landshlutinn mótar sjálfur á þessum sviðum. Sóknaráætlun á að stuðla að já- kvæðri samfélagsþróun, treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni Vesturlands. Vinnan við sóknaráætl- un er þríþætt; að móta framtíðarsýn, markmið og aðgerðir fyrir Vestur- land sem ráðstöfun fjármuna tekur mið af, að setja upp uppbyggingarsjóð sem styður við nýsköpun í atvinnu- lífi og menningarmálum og að skil- greina áhersluverkefni fyrir Vestur- land sem endurspegla framtíðarsýn- ina og markmiðin. Framtíðarsýn Vestlendinga er grunnurinn í sóknaráætlun, sem öll önnur verkefni byggja á. Sýnin er út- færð með markmiðum og aðgerðar- áætlun. Kjarninn í þeirri sýn sem unn- ið er eftir, og stefnu sóknaráætlunar í heild sinni, eru áherslur sem komu fram á stórum fundi sem haldinn var í Hjálmakletti í Borgarnesi vorið 2015. Tæplega 100 aðilar á Vesturlandi, frá öllum sveitarfélögum og úr hinum ýmsu starfsgreinum komu að mótun stefnunnar. Verkefnið „Matarauður Vestur- lands“ sem sérstaklega er kynnt í þessu blaði er eitt af fimm áherslu- verkefnum sem unnið er að á árinu 2017. Hin verkefnin eru; Nýsköpun, frumkvöðlar og • tækninám Efling ferðaþjónustu• Samstarf og markaðssetning • safna á Vesturlandi Ungmennaþing • Öll eiga þessi verkefni sér grunn í að- gerðaráætlun Sóknaráætlunar Vestur- lands og eru í raun ákveðin útfærsla á þeim aðgerðum sem Vestlendingar telja mikilvægar til þess að stuðla að jákvæðri samfélagsþróun og aukinni samkeppnishæfni. Uppbyggingarsjóður Vesturlands sem er þriðja stoð sóknaráætlunar hefur starfað frá því vorið 2015. Sjóð- urinn úthlutar styrkjum til verkefna sem lúta að nýsköpun í atvinnumál- um og eflingu menningarlífs á Vest- urlandi. Sjóðurinn hefur úthlutað um 160 m.kr. til á þriðja hundrað verk- efna frá stofnun. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi halda utan um rekstur Sóknaráætlun- ar Vesturlands, en samráðsvettvangur Vesturlands sem í sitja 30 aðilar vítt og breytt úr landshlutanum eru ráð- gjafandi varðandi áætlunina og val á áhersluverkefnum. Páll S Brynjarsson. Sóknaráætlun Vesturlands Matarauður Vesturlands

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.