Skessuhorn - 27.09.2017, Síða 32
Matarauður - Veisla á Vesturlandi MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 201732
Kaffi Emil er fjölskyldurekið kaffihús, staðsett í Sögumið-
stöðinni sem er miðsvæðis í Grundarfirði. Einnig er í hús-
inu upplýsingamiðstöð og Bókasafn Grundarfjarðar.
„Við leggjum áherslu á notalegt umhverfi þar sem
gestir okkar geta fengið léttar veitingar, gripið í hljóð-
færi eða bækur. Gestir okkar geta fengið upplýsingar um
sögu og menningu svæðisins á meðan safnið er skoðað,
ásamt almennum upplýsingum og þá sérstaklega um
Snæfellsnes.
Fiskisúpan okkar hefur hlotið góða dóma og er mjög
vinsæl enda gott hráefni af svæðinu.
Við erum með létta rétti, súpur, heimabakaðar kökur
og drykki.
Námsmenn eru í auknu mæli að koma til okkar þar
sem þau vinna verkefni, hlusta á fyrirlestra og taka próf.
Einnig erum við að fá skemmtilega fararstjóra sem nota
tækifærið og grípa í hljóðfæri og syngja fyrir farþegana
sína.
Kaffi Emil tekur þátt í Súpuslóð um Snæfellsnes sem hefst
í október.
Kaffi Emil í
Grundarfirði
Ljómalind er verslun í Borgarnesi, þar sem til sölu er
varningur sem framleiddur er af íbúum Vesturlands.
“Komið og smakkið nautakjötið frá Mýranauti laugar-
daginn 14. október í verslun okkar í Borgarnesi.”
Ljómalind
Hreðavatnsskáli og Grábrók gistihús er eini staðurinn á
landinu þar sem framleiðsla á lífrænt vottuðu pasta fer
fram. Í boði eru fjórar bragðtegundir; hreint pasta, engifer,
sítrónu og eldpipar (chili), kókos og karrý pasta. Núna er
unnið að tilraunaframleiðslu á glúteinfríu pasta og vegan
pasta.
Í Hreðavatnsskála eru heimagerð brauð og deigið í pizz-
urnar er líka heimalagað. Lamba- og nautakjöt er fengið
frá Mýranauti og í október verður boðið upp á skinku og
beikon sem kem-
ur af þeirra eigin
svínum og egg-
in eru að stórum
hluta úr þeirra eig-
in framleiðslu.
Allur matur á
matseðli er gerður
eftir pöntun til að
tryggja ferskleika
matarins.
Hreðavatnsskáli
Norðurárdal í Borgarfirði
Mýranaut er fjölskyldubú á Leirulæk á Mýrum sem hef-
ur framleitt úrvals nautakjöt undir merkjum Beint frá býli
síðan 2007.
Mýranaut mun bjóða upp á smakk í verslun Ljómalindar
í Borgarnesi laugardaginn 14. október.
Mýranaut
Í Langaholti er rekið heimilislegt gistihús og borinn fram
ljúffengur kvöldmatur, staðgóður morgunverður með
stórbrotna náttúru Snæfellsness allt um kring. Veitinga-
staðurinn er opinn allt árið fyrir gesti og gangandi. Aðal-
áherslan er á sjávarfang af Snæfellsnesi og erum við stolt
af þeim fjölda rétta sem við fullvinnum í eldhúsi okkar
og þeim kræsingum sem bjóðast af nægtarborði náttúr-
unnar á hverjum tíma.
Fiskisúpan í Langaholti er okkar helsta stolt, gerð úr
fiskisoði frá grunni og hefur margan ferðalangann glatt.
Langaholt tekur þátt í Súpuhring um Snæfellsnes sem
hefst í október og þann 21. okt. verður bjúgnahátíð.
Langaholt
Hjá Ferðaþjónustunni Lýsuhóli er opnunartími alla virka
daga frá klukkan 12 til 14 og 18:30 til 20:30 í október.
Lokað er um helgar.
Boðið er upp á heima-
lagaða októbersúpu
með glænýjum fiski
frá Snæfellsnesi og
heimabakað brauð
með.
Lýsuhóll í Staðarsveit
Café Kaja er lífrænt kaffihús og verslun á Akranesi sem
býður upp á lífrænar hrátertur allan októbermánuð.
Café kaja/
Matarbúr Kaju
Matarframleiðendur á Snæfellsnesi koma saman og
standa fyrir Matarmarkaði á Breiðabliki, Snæfellsnesi
sunnudaginn 29. október frá kl. 13 – 17.
Matarmarkaður á
Breiðabliki, Snæfellsnesi