Skessuhorn - 27.09.2017, Side 53
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2017 53
Ég lagði af stað fyrr
í sumar og heimsótti
timbursölu Húsasmiðj-
unnar vegna þess að ég
var að vinna í þakkant-
inum í húsinu mínu.
Hafði ég undirbúið mig
vel fyrir það, var með
allar mælingar (metra,
sentimetra og milli-
metra) á hreinu. Skrif-
aði það á blað eða öllu
heldur krotaði það því
yfirleitt þegar maður
skrifar lista yfir eitthvað
sem maður þarf þá hálf-
skrifar maður, vegna þess að maður
einn þarf að skilja þetta torf. Svona
líkt og innkaupalisti í læknaskrift;
200 m af bands. vatns., 100 met. af
bands. undrklæð o.s.frv. Þetta sem-
sagt þýddi 200 metra af bandsöguðu
með vatnsrásum og 100 metra af
bandsagaðri undirklæðningu. Töl-
urnar er ég að skálda núna því ég
man ekki hvað ég þurfti mikið.
Svo þegar ég mætti á vettvang
með listann í hendinni þá fór ég
strax að afsaka ritmálið og túlka
miðann fyrir starfsmanninn vegna
þess að hann tók miðann af mér og
vildi fá að sjá. Þetta er ekki ólíkt því
þegar maður hittir einhvern ógeðs-
lega frægan einstakling og maður
missir málið, ég fraus og byrjaði að
stama. Það þyrmdi yfir mig þegar ég
renndi augunum yfir timburstaflana
sem lágu á víð og dreif yfir svæðið.
Það var á þessu augnabliki sem ég
óskaði þess að ég hefði meiri þekk-
ingu á úrvalinu í timbursölunni og
hefði skrifað miðann í Word með
1,5 línubili, greinarmerkjum, ná-
kvæmum mælingum og myndaröð.
Eftir þessa ferð
mun ég hugsa um,
þegar ég keyri fyr-
ir aftan kerru eða
sendibíl með spýt-
um teipuðum með
Húsasmiðjuteipi,
sem persónulegan
sigur viðkomandi.
10 spýtur eða 100,
þetta krefst þolin-
mæði, þrautseigju,
góðra samskipta-
hæfileika og yfir-
gripsmikillar þekk-
ingar á mælieining-
unni tommu.
Eftir þetta þurfti ég að taka viku
hvíld uppi í Húsafelli. Sjokkið var
slíkt og fyrir aðra hefði þetta eflaust
endað verr, kannski sagt já við því að
taka stutta símakönnun og/eða allt í
einu fundið það út að það væri í lagi
að láta rista pylsubrauðið sitt í stað
þess að fá það hitað.
En ég heimsótti Surtshelli á
strigaskónum, reyndi að lyfta Húsa-
fellshellunni, týndist í þéttvaxnasta
birkiskógi á Íslandi, skoðaði Hraun-
fossa, túrista og fékk mér ís. Fann
það reyndar út að í Húsafelli má líka
finna pylsupúritana sem bjóða upp
á suðupottshituð brauð og alvöru
soðnar pylsur, búið að filtera vatnið
í pottinum í gegnum hraunið svo að
það er hreinara en annað vatn. Það
er kannski hægt að segja að pylsurn-
ar í Húsafelli séu Reyka vodkann í
pylsunum á Íslandi (lásuð það fyrst
hér).
Kveðja,
Axel Freyr Eiríksson
Skallagrímsgata 3 \ Sími 415 2200 \ flosi@opus.is
FYRSTA VIÐTAL FRÍTT
Flosi H. Sigurðsson hdl. veitir nú alla
almenna lögfræðiþjónustu á staðnum.
Flosi er einn af eigendum OPUS lögmanna
og hefur starfað við lögmennsku frá 2010.
OPUS LÖGMENN
VESTURLANDI
OPUS lögmenn hafa opnað útibú í Borgarnesi
Kristján Baldursson hdl. og löggiltur fasteignasali, eigandi Trausta
fasteignasölu, tekur til sölumeðferðar eignir í Borgarnesi og nágrenni.
Kristján Baldursson, eigandi Trausta fasteignasölu, er reyndur á sviði
fasteignasölu og hefur mikla reynslu af umsýslu fasteigna. Eins hefur
hann verið dómkvaddur matsmaður og flutt sem málflytjandi mörg
dómsmál, aðallega á sviði fasteignaréttar.
Þjónustustig Trausta er hátt og þegar eign er tekin til sölumeðferðar
bjóðum við upp á eftirfarandi:
Verðmat•
Ráðgjöf•
Opin hús•
Atvinnuljósmyndun•
Eftirfylgni•
Eign auglýst á netinu og í dagblöðum•
Trausti fasteignasala leggur metnað
sinn í vandaða og skjóta þjónustu, hátt
þjónustustig og að fylgja kaupendum
og seljendum af metnaði og nákvæmni
frá byrjun ferlisins til enda.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Hákon Guðmundsson
Aðstoðarmaður
fasteignasala.
S: 861-9240
Garðar Kjartansson
Aðstoðarmaður
fasteignasala
S: 853-9779
Gylfi Jens Gylfason
hdl., löggiltur fasteigna-,
fyrirtækja- og skipasali.
S: 822-5124
Sólveig Regína Biard
Aðstoðarmaður
fasteignasala
S: 869-4879
Bryndís Bára
Eyjólfsdóttir
Sölufulltrúi.
Er í námi til löggildingar
fasteigna-, fyrirtækja-
og skipasölu.
S: 616-8985
Bára Daníelsdóttir
Skrifstofustjóri
S: 693-1837
Kristján Baldursson
hdl., löggiltur fasteigna-,
fyrirtækja- og skipasali,
löggiltur leigumiðlari.
S: 867-3040
Bergþóra Heiða
Guðmundsdóttir
Lögfræðingur - löggiltur
fasteigna-, fyrirtækja-
og skipasali.
S: 779-1929
Einar P. Pálsson
löggiltur fasteigna-,
fyrirtækja- og skipasali
S: 857-8392
Guðbjörg
Matthíasdóttir.
hdl. Sölufulltrúi.
Er í námi til löggildingar
fasteigna-, fyrirtækja-
og skipasölu.
S: 899-3984
Guðbjörg G.
Sveinbjörnsdóttir
Sölustjóri. Viðskiptafr.,
lögg. fasteigna-,
fyrirtækja- og skipasali,
leigumiðlari.
S: 899-5949
VIÐ ERUM
TRAUSTI
Frekari upplýsingar hjá Kristjáni
í síma: 867-3040 eða hjá
kristjan@trausti.is
Þessir litlu sigrar
PISTILL
Næstkomandi þriðjudag 3. október
klukkan 20:30 verður sýnd kvik-
mynd um Snorrahátíðina 1947 í
hátíðarsal gamla Héraðsskólans í
Reykholti. Kvikmyndin var unnin
fyrir Snorrastofu og stendur saman
af gömlum myndbrotum frá Snor-
rahátíð 1947 í Reykholti og lýs-
ir einnig för norsku gestanna sem
hingað komu fyrir 70 árum. Hátíð-
arhöldin í framhaldi af Snorrahá-
tíð í Reykholti stóðu í heila viku.
Hér er um að ræða lengri gerð af
myndinni sem Kvikmyndasafn Ís-
lands og Óskar Guðmundsson
unnu í tilefni af sjötíu ára afmælinu
fyrr í sumar.
Til Íslands kom floti norskra
skipa og sendinefnd undir forystu
Ólafs krónprins í júlíumánuði 1947.
Norðmennirnir áttu ævintýralega
viku í vændum og margir urðu til
að festa viðburði á filmur sem þessi
mynd nýtur góðs af. Kvikmyndin
er þögul en Óskar Guðmundsson
kynnir efnið og segir frá því sem
fyrir augu ber. Þá verða að vanda
umræður og boðið upp á kaffiveit-
ingar fyrir 500 krónur.
Með bíósýningunni hefst vetr-
ardagskrá Snorrastofu, sem verð-
ur að vanda með fjölbreyttum og
ánægjulegum samverustundum.
Fyrsta Prjóna-bóka-kaffi vetrar-
ins verður fimmtudaginn 5. októ-
ber og fornsagnanámskeið stofn-
unarinnar, Landnámsseturs og
Símenntunarmiðstöðvarinnar á
Vesturlandi hefst þriðjudaginn 10.
október. Nánar greinir frá þessu
á heimasíðu Snorrastofu og við-
burðaskrá, sem dreift verður til
heimila í Borgarfirði í október-
byrjun. -fréttatilkynning
Snorrahátíðin 1947
í lifandi myndum
Óskar Guðmundsson í Véum. Í baksýn er svipmynd frá Snorrahátíðinni 1947.
Íbúar Snæfellsbæjar hafa ekki far-
ið varhluta af auknum ferðamanna-
straumi til landsins, frekar en aðrir
landsmenn. Mikil fjölgun var á tjald-
stæðunum í Snæfellsbæ á milli ára. Í
því samhengi má nefna að í maí árið
2016 komu 380 gestir en í ár voru
þeir 1145. Í júní árið 2016 komu
2396 gestir en á sama tíma í ár voru
þeir 3946. Í júlí komu 6200 gestir en
í fyrra voru þeir 5800.
Sömu sögu er þó ekki að segja um
aðsókn í sundlaugarnar í Snæfellsbæ
en tvær laugar eru í sveitarfélaginu;
á Lýsuhóli og í Ólafsvík. Gestafjöldi
þar er svipaður milli ára. Sundlaug-
argestir á Lýsuhóli voru 9336 tíma-
bilið júní, júlí og ágúst árið 2016 en
9841 sama tímabil í ár. Í sundlaug
Ólafsvíkur komu 8775 í júní, júlí og
ágúst á þessu ári en á sama tímabili
í fyrra voru þeir 8973 og eru þeir
því aðeins færri þetta sumarið. Samt
sem áður hefur aðsókn í sundlaugina
í Ólafsvík verið betri fyrri hluta árs
en í fyrra þó sumarið hafi ekki ver-
ið eins gott, að sögn Sigrúnar Ólafs-
dóttur íþrótta- og æskulýðsfulltrúa
Snæfellbæjar.
þa
Fjölgun á tjaldstæðin en sundlaugargestir álíka margir