Skessuhorn - 15.11.2017, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 201716
Haustfundur Hrossaræktarsambands
Vesturlands var haldinn á Hótel
Borgarnesi á sunnudaginn. Líkt og
venja er til voru veitt verðlaun fyr-
ir efstu kynbótahrossin í hverjum
flokki og Ræktunarbú Vesturlands
2017 heiðrað. Þá voru veitt heiðurs-
merki Hrossaræktarsamband Vest-
urlands til einstaklinga sem hafa lagt
sitt af mörkum til félags- og ræktun-
arstarfs í þágu hestamennskunnar á
starfssvæði sambandsins.
Skipaskagi er hrossaræktarbú
Vesturlands árið 2017. Það eru hjón-
in Jón Árnason og Sigurveig Stefáns-
dóttir sem standa að búinu. Þetta er
í fjórða skipti sem Skipaskagi hampar
titlinum, gerði það síðast árið 2016.
Þrír einstaklingar voru sæmd-
ir heiðursmerki HrossVest fyrir vel
unnin félagsstörf á vettvangi hesta-
mannafélaganna. Þetta eru þau Gísli
Guðmundsson í Hömluholti, Ingi-
bergur Jónsson á Akranesi og Mar-
grét Birna Hauksdóttir á Skáney.
Hrun í aðsókn að
stóðhestum á vegum
sambandsins
Hrossaræktarsamband Vesturlands
er 53 ára félag með yfir fimmtán
hundruð félagsmenn, sjö búnaðar-
félög og sjö hestamannafélög. Starf-
semi félagsins felst fyrst og fremst í
að bjóða upp á sem besta stóðhesta
á sambandssvæðinu og standa að því
sem best með góðri þjónustu. Sökum
mikils framboðs af góðum stóðhest-
um í eigu einkaaðila er útlit fyrir að
meginhlutverk HrossVest taki breyt-
ingum. Í erindi Unnsteins Snorra
Snorrasonar formanns HrossVest
á fundinum kom fram að aðsókn í
stóðhesta á vegum sambandsins hafi
ekki staðist væntingar á síðasta sumri.
Í samráði við eigendur stóðhesta var
ákveðið að fjórir af fimm stóðhestum
myndu ekki koma í girðingu vegna
lítillar aðsóknar. Aðeins voru fjór-
ar hryssur hjá einum hesti. Til sam-
anburðar kom 51 hryssa undir hesta
á vegum sambandsins árið 2016.
„Mikilvægt er að félagsmenn láti í
ljós skoðun sína varðandi áframhald
á þessari starfsemi,“ sagði Unnsteinn
og varpaði fram spurningum á borð
við hvort halda eigi áfram starfsemi
með óbreyttum hætti og hvort sam-
bandið gæti tekið að sér önnur verk-
efni. Í erindi hans kynnti hann einnig
fjölda fæddra folalda á starfssvæðinu.
Hefur þeim smám saman fækkað úr
650-1000 á ári og einungis hafa ver-
ið skráð um 300 fædd folöld á þessu
ári.
Meðfylgjandi er listi yfir þrjú efstu
kynbótahross í hverjum flokki.
Stóðhestar 7 vetra og eldri
Logi frá Oddsstöðum.
Aðaleinkunn 8,62
Skörungur frá Skáney.
Aðaleinkunn 8,48
Múli frá Bergi. Aðaleinkunn 8,44
Stóðhestar 6 vetra
Flygill frá Stóra-Ási.
Aðaleinkunn 8,58
Goði frá Bjarnarhöfn.
Aðaleinkunn 8,57
Hængur frá Bergi.
Aðaleinkunn 8,55
Stóðhestar 5 vetra
Sægrímur frá Bergi.
Aðaleinkunn 8,71
Meitill frá Skipaskaga.
Aðaleinkunn 8,55
Gyrðir frá Einhamri 2.
Aðaleinkunn 8,45
Stóðhestar 4 vetra
Svartur frá Skipaskaga.
Aðaleinkunn 8,25
Huginn frá Bergi.
Aðaleinkunn 8,19
Hængur frá Bergi.
Aðaleinkunn 8,16
Hryssur 7 vetra og eldri
Hafdís frá Bergi.
Aðaleinkunn 8,25
Kleópatra frá Laugavöllum.
Aðaleinkunn 8,22
Aska frá Brautarholti.
Aðaleinkunn 8,18
Hryssur 6 vetra
Flauta frá Einhamri 2.
Aðaleinkunn 8,40
Fluga frá Einhamri 2.
Aðaleinkunn 8,21
Buska frá Bjarnastöðum.
Aðaleinkunn 8,19
Hryssur 5 vetra
Lukkudís frá Bergi.
Aðaleinkunn 8,44
Sinfónía frá Stóra-Ási.
Aðaleinkunn 8,36
Úa frá Efri-Hrepp.
Aðaleinkunn 8,34
Hryssur 4 vetra
Krús frá Skipaskaga.
Aðaleinkunn 8,28
Bifröst frá Skrúð.
Aðaleinkunn 8,22
Viðja frá Borgarnesi.
Aðaleinkunn 8,11
mm/ Ljósm. hh.
Viðurkenningar á haustfundi HrossVest
Skipaskagi er ræktunarbú ársins á Vesturlandi annað árið í röð
Hæst dæmdi fjögurra vetra stóðhesturinn á Vesturlandi er Svartur frá Skipaskaga.
Hjónin Lára og Kolbeinn í Stóra-Ási tóku við viðurkenningu fyrir Flygil frá
Stóra-Ási sem stóð efstur í flokki fimm vetra stóðhesta árið 2017. Flygill er sonur
heiðursverðlauna hryssunnar Nótu frá Stóra-Ási.
Þrír voru sæmdir heiðursmerki HrossVest fyrir vel unnin félagsstörf á vettvangi
hestamannafélaganna. F.v. Birna Hauksdóttir Skáney, Ingibergur Jónsson
Akranesi og Gísli Guðmundsson Hömluholti. Það var Máni Hilmarsson sem tók
við verðlaunum fyrir hönd Gísla.
Jón Árnason tók við viðurkenningu fyrir hæst dæmda fjögurra vetra
stóðhest á Vesturlandi 2017, Svart frá Skipaskaga. Með honum er
Hrefna Bryndís Jónsdóttir.
Þau Anna Dóra og Jón Bjarni, hrossabændur að Bergi á Snæfells-
nesi áttu farsælt ár í sinni hrossarækt. þau tóku á móti nokkrum
viðurkenningum.
Hjörleifur Jónsson tók við viðurkenningu úr hendi Hrefnu B Jóns-
dóttur fyrir hryssuna Flautu frá Einhamri 2, hæst dæmdu sex vetra
hryssu ársins. Fluga frá Einhamri 2 var næsthæst í þessum aldurs-
flokki.
Á þessu stöplariti sést að verulega hefur dregið úr fjölda fæddra folalda á starfssvæðinu á liðnum árum. Athygli er engu að
síður vakin á því að ekki eru marktækar tölur fyrir yfirstandandi ár þar sem eftir er að skrá inn hluta fæddra folalda.
Heimild: HrossVest.