Skessuhorn - 15.11.2017, Síða 21
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2017 21
Opið hús var í starfsstöð Hafrann-
sóknastofnunar í Ólafsvík fimmtu-
daginn 9. nóvember síðastliðinn.
Þar gafst gestum kostur á að kynn-
ast starfseminni og þeim rannsókn-
um sem stundaðar eru á svæðinu. Á
opna húsinu tók starfsfólk á móti
gestum og kynnti fyrir þeim hvað
það er sem starfað er við og sýndu
hvernig sumt af því fer fram. Fyrr
um daginn höfðu starfsmenn far-
ið út með sviffangara og sett hann
í höfnina. Einnig sýndu starfsmenn
ýmsar tegundir fiska svo sem karfa,
skarkola, skötusel og þorsk ásamt
fleiri tegundum fiska. Hægt var að
skoða myndband þar sem sýnt var
hvernig hin ýmsa starfsemi gengur
fyrir sig eins og togararall, netarall
og fleira. Var vel mætt á opna húsið
og þeir sem mættu áhugasamir um
starfsemina. þa
Opið hús hjá
Hafró í Ólafsvík
Það er alltaf líf og fjör hjá krökk-
unum í Barna- og skólakór Snæ-
fellsbæjar. Æfingar eru einu sinni í
viku hjá þeim undir stjórn Veronicu
Osterhammer kórstjóra og Nönnu
Aðalheiði Þórðardóttur undirleik-
ara. Kórinn kemur fram við ýmis
tækifæri og gerir margt skemmti-
legt. Mánudaginn 30. október fór
hópurinn á Dvalar- og hjúkrunar-
heimilið Jaðar þar sem þeir æfðu
sig og skemmtu í leiðinni heim-
ilisfólki. Þótti heimilis- og starfs-
fólki vænt um þessa skemmtilegu
heimsókn og nutu þau þess að
hlusta á þessi duglegu kórbörn æfa
skemmtileg lög.
þa
Sungu fyrir íbúa á Jaðri
Anna G Torfadóttir, myndlist-
arkona í Hvalfjarðarsveit, opn-
aði um helgina sýningu á grafík-
verkum í sal Ásatrúarfélagins að
Síðumúla 15 í Reykjavík. Verður
sýningin opin daglega út árið frá
klukkan 12:30 til 16:30. Sýningin
ber nafnið „Það sem ekki sést.“
Anna er fædd í Stykkishólmi
1954 en ólst að mestu upp í Reykja-
vík. „Ég stundaði nám í Mynd-
lista- og handíðaskóla Íslands og
útskrifaðist úr grafíkdeild árið
1987. Fyrir fjórum árum flutti ég í
Melahverfið í Hvalfjarðarsveit þar
sem ég er með vinnustofu, en áður
var ég með vinnustofu á Korp-
úlfsstöðum,“ segir Anna. Hún er
starfandi grafíkmyndlistakona og
vinnur í tré og málma, ásamt því
að smíða skartgripi úr silfri. „Ég
er starfandi myndlistakona og því
alltaf með eitthvað í gangi. Auk
sýningarinnar í
Reykjavík eru opn-
ar sýningar með
verkum eftir mig
bæði í Danmörku
og Búlgaríu. Þar
sem ég er í graf-
íklist er auðvelt að
senda myndir út,
því ég þarf ekki að
ramma myndirnar
inn,“ segir Anna.
arg/ Ljósm. úr
einkasafni
Opnaði listasýningu
Anna G Torfadóttir opnaði sýningu á
grafíkverkum í sal Ásatrúarfélagsins í
Reykjavík.
Listaverk eftir Önnu. HELGA skrifað með rúnaletri.
Hið árlega Æskulýðsball fyrir ung-
linga á elsta stigi grunnskólanna
á Vesturlandi var haldið í Hjálm-
akletti í Borgarnesi síðastliðið
fimmtudagskvöld. Það er félags-
miðstöðin Óðal sem stendur fyr-
ir dansleiknum á ári hverju og þar
koma saman unglingar frá öllum
félagsmiðstöðvum á Vesturlandi og
víðar.
Þátttakan var að vanda mjög góð
að sögn Sigríðar Dóru Sigurgeris-
dóttur, tómstundafulltrúa Borg-
arbyggðar, og skemmtunin öll til
fyrirmyndar. „Þetta voru um 350
unglingar sem skemmtu sér þarna.
Æskulýðsballið fór mjög vel fram
í alla staði. Þessir unglingar eru til
fyrirmyndar og engar uppákom-
ur urðu á ballinu. Þetta hefði ekki
getað gengið betur,“ segir Sigríður
Dóra í samtali við Skessuhorn.
DJ Snorri Ástráðs og félagarnir
Jói P og Króli tróðu upp við mik-
inn fögnuð viðstaddra. Tæknimál
á ballinu var í höndum þeirra Ax-
els og Halldórs úr félagsmiðstöð-
inni Óðali og segir Sigríður Dóra
ástæðu til að hrósa tæknimönnun-
um sérstaklega. Þeir hafi staðið sig
með stakri prýði og létu ekki slá sig
út af laginu að þurfa að skipta um
hljóðkerfi á miðju balli. Það gerðu
þeir án þess að nokkur fyndi fyrir
því og án þess að gera þyrfti hlé á
skemmtuninni.
kgk
Unglingar skemmtu sér á Æskulýðsballi
Spurningakeppnin Bókaorm-
ar Brekkubæjarskóla er orðin fast-
ur liður í skólastarfi í 4. - 7. bekk
skólans. Er þetta í fimmta skiptið
sem keppnin fer fram. Undirbún-
ingur hennar hefst að vori með því
að nemendur í 3. - 6. bekk fá lista
yfir þær bækur sem spurt verður úr
og þeir sem áhuga hafa geta byrj-
að að undirbúa sig. Þetta undirbún-
ingsferli er í samstarfi við Bókasafn
Akraness því þar er listinn ásamt
eintökum af bókunum. Þegar þessi
sömu nemendur mæta í skólann um
haustið, komin í 4. - 7. bekk, halda
þeir áfram að lesa en keppnin hefst
um miðjan október.
Úrslitaviðureignin að þessu sinni
var á milli sjöunda og sjötta bekkj-
ar. Sjötti bekkur hafði titil að verja
því hann vann keppnina á síðasta
ári, þá sem fimmti bekkur. Þessi
lið komust bæði áfram í úrslit á ein-
ungis einu stigi og segir það allt
um hversu spennandi keppnin var.
Úrslitin urðu þau að sjöundi bekk-
ur vann með þremur stigum. Lið-
ið skipuðu Anna K. Guðráðsdóttir,
Ísak E. Sveinsson, Rakel H. Harð-
ardóttir og Hekla Kristleifsdóttir,
sem var leikari hópsins.
Lestur er lærdómsins lykill.
Áfram bókaormar!
Hallbera Jóhannesdóttir,
skólasafni Brekkubæjarskóla.
Bókaormar Brekku-
bæjarskóla 2017