Skessuhorn - 15.11.2017, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 201726
Skallagrímur sigraði Snæfell,
108-97, þegar liðin mættust í Vest-
urlandsslag í 1. deild karla í körfu-
knattleik. Leikurinn fór fram í
Borgarnesi á fimmtudagskvöld og
andrúmsloftið í húsinu var raf-
magnað. Dómarar leiksins fundu
ekki taktinn og höfðu aldrei stjórn
á leiknum og blaðamaður fékk það
á tilfinninguna að soðið gæti upp
úr á hverri stundu. Leikurinn var
hraður, liðin létu finna fyrir sér
og oft féllu undarlegir dómar sem
síst voru til þess fallnir að lækka
spennustigið í húsinu.
Heimamenn sterkari í
fyrri hálfleik
En að leiknum sjálfum og fram-
vindu hans. Skallagrímsmenn
höfðu heldur yfirhöndina framan
af fyrsta leikhluta en Snæfelling-
ar fylgdu fast á eftir. Heimamenn
voru sex stigum yfir eftir sjö mín-
úturnar, 23-17. Eftir það náðu þeir
góðri rispu og höfðu tólf stiga for-
skot að fyrsta leikhluta loknum,
36-24. Snæfellingar hugðust svara
fyrir sig í upphafi annars leikhluta.
Þeir minnkuðu muninn lítið eitt
en komust ekki lengra því Skalla-
grímsmenn gerðu annað áhlaup
og náðu 15 stiga forskoti. Snæfell
tók leikhlé og breytti til í vörn-
inni en Skallagrímsmenn leystu
það án mikilla vandkvæða og opn-
uðu vörn gestanna nokkuð auð-
veldlega. Undir lok fyrri hálfleiks
fékk Ingi Þór Steinþórsson, þjálf-
ari Snæfells, sína aðra tæknivillu
og var sendur inn í klefa. Snæ-
fellingar voru allt annað en sáttir,
þótti síðari tæknivillan gefin fyr-
ir litlar sakir og fleiri voru á sama
máli. Skallagrímsliðið hélt áfram
að bæta við þar til hálfleiksflaut-
an gall og hafði 21 stigs forskot í
hléinu, 61-40.
Snæfell gafst aldrei upp
Skallagrímsliðið byrjaði síðari hálf-
leikinn af krafti og náðu að auka
muninn í 28 stig seint í þriðja leik-
hluta, 81-53. Snæfell náði þá smá
rispu og tókst aðeins að laga stöð-
una fyrir lokafjórðunginn, 85-65.
Heimamenn í vænlegri stöðu fyr-
ir fjórða leikhluta en verulega á
brattann að sækja fyrir Snæfell.
En Hólmarar voru ekki á því
að leggja árar í bát. Þeir byrjuðu
lokafjórðunginn af miklum krafti.
Þeir hittu vel úr skotum sínum og
minnkuðu muninn í ellefu stig á
fyrstu þremur mínútum leikhlut-
ans. Snæfell skipti í svæðisvörn sem
gerði heimamönnum erfitt fyrir.
Stemningin var Snæfellsmegin og
Skallagrímsmenn áttu erfitt upp-
dráttar. Gestirnir minnkuðu mun-
inn í níu stig þegar fimm mínútur
lifðu leiks en fengu síðan dæmda
á sig tæknivillu í næstu vörn. Þar
með komust Skallagrímsmenn aft-
ur á bragðið. Þeir héldu Snæfelli
í skefjum síðustu mínúturnar og
höfðu að lokum ellefu stiga sigur,
108-97.
Stigahæstu menn
Zac Carter var stigahæstur Skalla-
gríms með 34 stig en Eyjólfur Ás-
berg Halldórsson skoraði 21 stig,
tók 16 fráköst og gaf 6 stoðsend-
ingar. Bjarni Guðmann Jónsson
var með 17 stig og 8 fráköst og
Kristófer Gíslason var með 10 stig
og 5 fráköst.
Hjá Snæfelli var Christian Co-
vile atkvæðamestur. Hann skoraði
35 stig, tók 9 fráköst, gaf 5 stoð-
sendingar og var með 5 stolna
bolta. Geir Elías Úlfur Helgason
skoraði 23 stig, tók 9 fráköst og gaf
5 stoðsendingar. Þorbergur Helgi
Sæþórsson skoraði 11 stig og tók 6
fráköst og Sveinn Arnar Davíðsson
var með 10 stig. kgk
Christian Covile fór fyrir Snæfelli þegar liðið gerði harða atlögu að forystu Skalla-
gríms undir lokin. Hann treður hér með látum yfir Atla Aðalsteinsson.
Kristófer Gíslason gerist hér aðgangsharður við körfu Snæfellinga.
Skallagrímur sigraði Snæfell í Vesturlandsslag
Zac Carter skorar hér tvö af 34 stigum sínum fyrir Skallagrím með laglegu „tear-
drop“ skoti.
Körfuknattleiksmaðurinn Áskell
Jónsson hefur gengið til liðs við
Skallagrím frá ÍA. Áskell er 31 árs
gamall, leikur stöðu bakvarðar og
hefur verið einn af lykilmönnun-
um í liði ÍA í 1. deildinni undan-
farin ár.
Félagaskiptin gengu í gegn síð-
astliðinn fimmtudag, 9. nóvember,
en Áskell lék þó ekki með Borg-
arnesliðinu í Vesturlandsslagnum
gegn Snæfelli þá um kvöldið. Finn-
ur Jónsson, þjálfari Skallagríms,
kvaðst hæstánægður að fá Áskel til
liðs við Skallagrím og vonaðist til að
hann yrði klár í slaginn með liðinu
innan tíðar. „Ég er mjög ánægður
að fá Áskel til liðs við okkur. Hann
kemur með aukna dýpt í liðið og
dýrmæta reynslu. Áskell er frábær
strákur og góður körfuboltamað-
ur,“ sagði Finnur Jónsson í samtali
við Skessuhorn. kgk
Áskell fer frá ÍA
í Skallagrím
Áskell Jónsson í leik með ÍA.
Ljósm. úr safni/ jho.
Þessa vikuna stendur undirbúningur
fyrir Íslandsmeistaramót í 25m laug
sem hæst hjá Sundfélagi Akraness,
en mótið fer fram 17. - 19. nóvem-
ber. Krakkarnir hafa æft vel í haust
og þetta árið eru ellefu sundmenn
sem munu taka þátt en það eru:
Ágúst Júlíusson, Sævar Berg Sig-
urðsson, Atli Vikar Ingimundarson,
Sindri Andreas, Erlend Magnússon,
Enrique Snær Llorens, Una Lára
Lárusdóttir, Brynhildur Trausta-
dóttir, Eyrún Sigþórsdóttir, Ásgerð-
ur Jing Laufeyjardóttir og Ragn-
heiður Ólafsdóttir. Þess má geta
að þau Enrique og Ragnheiður eru
í fyrsta skipti að taka þátt á þessu
móti. Úrslit frá mótinu verða birt á
facebooksíðu Sundfélgsins en und-
anrásir hefjast kl. 09.30 alla dagana
og úrslit kl. 16.30.
-fréttatilkynning
Á leið á Íslandsmeistara-
mót í 25m laug
Tvær knattspyrnukonur af Akranesi
fögnuðu á dögunum sæti með sín-
um liðum í úrslitakeppni NCAA-
háskólaboltans, en það er efsta
deild háskólaíþrótta í Bandaríkun-
um. Þetta eru þær Guðrún Valdís
Jónsdóttir og Aníta Sól Ágústsdótt-
ir. Guðrún varð á dögunum Ivy-
league meistari með liði Prince-
ton-háskólans og Aníta Sól varð
síðan meistari í Sun Belt-deildinni
með liði South Alabama háskólans.
Hlutu þær þar með báðar þátttöku-
rétt í úrslitakeppni NCAA með lið-
um sínum.
kgk
Skagakonur
á leið í úrslita-
keppni NCAA Guðrún Valdís Jónsdóttir og Aníta Sól Ágústsdóttir.
Sameiginlegt lið Skallagríms og
Vestra í 10. flokki drengja í körfu-
knattleik tryggði sér efsta sæti A rið-
ils í annarri umferð Íslandsmóts sem
fram fór á Ísafirði um helgina. Gest-
irnir voru KR, Stjarnan, Fjölnir og
Keflavík en síðastnefnda liðið féll
niður í B riðil eftir tap í öllum leikj-
um sínum. Þrjú efstu liðin, Skalla-
grímur/Vestri, KR og Stjarnan, sigr-
uðu öll þrjá leiki hvert en innbyrðis
viðureignir réðu því að sameiginlegt
lið Skallagríms og Vestra hampaði
fyrsta sætinu. kgk
Drengirnir í Skallagrími/
Vestra sigruðu á Ísafirði
Sameiginlegt lið Skallagríms og Vestra í 10. flokki drengja ásamt þjálfurum
sínum, þeim Nebojsa Knezevic vinstra megin og Pálma Þór Sævarssyni til hægri.
Ljósm. vestri.is.
Ejub Purisevic hefur skrifað und-
ir nýjan samning við Víking Ólafs-
vík um þjálfun karlaliðs félagsins.
Samningurinn nær til tveggja ára
og verður Ejub því við stjórnvölinn
þegar Víkingur mætir til leiks í 1.
deild karla næsta sumar. „Ejub hef-
ur stýrt liði Víkings með eftirtektar-
verðum árangri um árabil og er það
félaginu gleðiefni að hafa tryggt sér
áframhaldandi þjónustu hans,“ segir
í fréttatilkynningu frá Víkingi Ólafs-
vík.
Ejub tók við liði Víkings árið 2003
og hefur stýrt því allar götur síðan,
að frátöldu keppnistímabilinu 2009
þegar hann tók sér árs
hlé. Á þeim tíma hefur
Ejub komið liðinu úr
neðstu deild Íslands-
mótsins og upp í þá
efstu, en Víkingur lék
öðru sinni í Pepsi deild karla í knatt-
spyrnu á liðnu sumri. Liðið féll úr
deild þeirra bestu að loknu síðasta
sumri, eftir harða fallbaráttu und-
ir lok móts. „Framundan er barátta
í Inkasso deildinni næsta sumar og
eru leikmannamál félagsins í góðri
vinnslu. Frekari frétta af því má
vænta fljótlega,“ segir í tilkynningu
frá félaginu. kgk/ Ljósm. úr safni.
Ejub verður áfram með
Víking Ólafsvík