Skessuhorn - 15.11.2017, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2017 27
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Fyrsta mót á Íslandsmeistaramóta-
röðinni í klifri lauk um helgina með
úrslitum í flokki 16-19 ára og 20+.
Í 16-19 ára flokki sigraði Brimr-
ún Eir Óðinsdóttir eftir spennandi
bráðabana á móti keppanda frá
Klifurfélagi Reykjavíkur. Landaði
hún þar með þriðju medalíu ÍA um
helgina. Fyrr hafði Sylvía Þórðar-
dóttir landað silfri í 11-12 ára flokki
og Hjalti Rafn Kristjánsson bronsi
í sama aldursflokki. Mótið var vel
sótt og voru um 200 klifrarar sem
mættu til leiks, þar af 25 iðkendur
frá ÍA.
Framundan er Íslandsmeistara-
mót í línuklifri sem haldið verður
í Björkinni í Hafnarfirði. Þar mun
ÍA mæta til leiks með gula og glaða
keppendur í 11-12 ára flokki og
16-19 ára flokki. þs
Brimrún Eir með gull fyrir ÍA
Brimrún Eir. Ljósm. úr safni.
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylf-
ingur úr Golfklúbbnum Leyni, lauk
auðfararnótt sunnudags keppni
í Hero Women‘s Indian Open
mótinu í Indlandi. Mótið er hluti
af Evrópumótaröð kvenna. Loka-
hringurinn var sá besti sem Valdís
spilaði í mótinu. Hann fór hún á 73
höggum, eða einu yfir pari. Samtals
lék Valdís á fimm höggum yfir pari
í mótinu og hafnaði jöfn í 49. sæti.
Næsta verkefni Valdísar er mót á
Evrópumótaröðinni sem fram fer
í Kína um næstu helgi; 17. til 19.
nóvember.
kgk
Valdís Þóra á fimm
yfir pari í Indlandi
Snæfell vann góðan útisigur á
Gnúpverjum, 95-110, í 1. deild
karla í körfuknattleik í á sunnudags-
kvöld.
Leikurinn fór fjörlega af stað,
mikill hraði og töluvert skorað. Lið-
in fylgdust að á stigatöflunni fram-
an af fyrsta leikhluta. Snæfell leiddi
með einu stigi um hann miðjan,
15-16. Það var síðan á seinni hluta
fjórðungsins að Christian Covile tók
leikinn algerlega yfir. Hann skoraði
hverja körfuna á fætur annarri og
heimamenn áttu engin svör. Covile
skoraði 24 stig í fyrsta leikhlutan-
um, jafn mörg og allt Gnúpverjalið-
ið. Snæfell leiddi eftir upphafsfjórð-
unginn með 17 stigum, 24-41. Snæ-
fell hélt uppteknum hætti í öðrum
leikhluta og komst mest 24 stigum
yfir, 30-54. En þá sneru heimamenn
vörn í sókn og með mikilli baráttu
náðu þeir að minnka forskot Snæ-
fells í 16 stig áður en flautað var til
hálfleiks. Staðan í hléinu var 47-63,
Snæfelli í vil.
Gnúpverjar mættu ákveðnir til
síðari hálfleiks og með mikilli seiglu
náðu þeir að pota muninum nið-
ur í þrettán stig um miðjan þriðja
leikhluta. Þá hrökk Snæfellsliðið
aftur í gang og með góðum leik-
kafla tryggðu þeir sér 23 stiga for-
ystu fyrir lokafjórðunginn, 65-88.
Gnúpverjar náðu aðeins að klóa í
bakkann í fjórða leikhluta en Snæ-
fellingar gættu þess að hleypa þeim
inn í leikinn að nýju og sigurinn var
í raun aldrei í hættu. Að lokum fór
svo að Snæfell hafði 15 stiga sigur,
95-110.
Áðurnefndur Christian Covile
átti stórleik fyrir Snæfell. Hann
skoraði 52 stig og tók 14 fráköst. Er
þetta í annað sinn í vetur sem Co-
vile skorar 52 stig í leik með Snæ-
felli í vetur.
Viktor Marinó Alexandersson
skoraði 16 stig og tók 6 fráköst og
Geir Elías Úlfur Helgason skoraði
16 stig einnig. Jón Páll Gunnars-
son skoraði 11 stig en aðrir höfðu
minna.
Stigahæstur heimamanna var
Everage Lee Richardsson sem gaf
stórleik Christian Covile lítið eftir.
Hann skoraði 51 stig og tók 9 frá-
köst.
Snæfell situr í fjórða sæti deildar-
innar með átta stig eftir fyrstu sjö
leiki vetrarins, tveimur stigum á eft-
ir næstu tveimur liðum fyrir ofan.
Næst leikur Snæfell sunnudaginn
19. nóvember næstkomandi þegar
liðið mætir Breiðabliki í Stykkis-
hólmi.
kgk
Covile skoraði 52 stig í góðum sigri
Christian Covile fór mikinn í sigir
Snæfells á Gnúpverjum.
Ljósm. úr safni/ Haukur Páll.
ÍA tók á móti Breiðabliki í 1. deild
karla í körfuknattleik að kvöldi síð-
asta föstudags. Skagamenn mættu
vængbrotnir til leiks, enda hafa
mikil áföll dunið á liðinu undan-
farið. Bandaríkjamaðurinn Derek
Shouse meiddist illa á æfingu í síð-
ustu viku og verður frá í allt að tvo
mánuði. Hann hefur náð samkomu-
lagi við ÍA um að snúa til heima-
landsins í endurhæfingu og mun því
ekki leika meira með Skagamönn-
um í vetur. Þá hefur reynsluboltinn
Fannar Freyr Helgason ekki getað
leikið með liðinu undanfarið vegna
meiðsla og óvíst er með framhald-
ið hjá honum. Að síðustu hefur hinn
leikreyndi Áskell Jónsson ákveðið
að ganga í raðir Skallagríms og mun
því ekki leika meira með ÍA í vetur.
Munar aldeilis um minna og var á
brattann að sækja fyrir Skagamenn,
sem máttu sætta sig við stórt tap,
45-75, á móti Breiðabliki. Þrátt fyrir
stórsigur þá héldu Skagamenn í við
gestina lengi vel og það var fyrst og
fremst afleitur þriðji leikhluti sem
gerði út af við heimamenn í leikn-
um.
Leikurinn var hægur og stigaskor-
ið lágt. Blikar höfðu yfirhöndina og
leiddu 11-17 eftir upphafsfjórðung-
inn. Skagamenn héldu áfram í við
gestina meira og minna og Breiða-
blik hafði ellefu stiga forskot í hálf-
leik, 23-34.
Það var síðan í þriðja leikhluta að
leiðir skildu. Skagamönnum gekk
afleitlega og hefðu ekki getað keypt
sér körfu fyrir allt heimsins prjál.
Þeir skoruðu aðeins fimm stig all-
an fjórðunginn á móti 22 stigum
gestanna. Blikar náðu þar afgerandi
forystu, 56-28 og höfðu sigurinn í
hendi sér. Lokafjórðungurinn varð
fyrir vikið lítið spennandi. Blikar
héldu Skagamönnum í skefjum og
höfðu að lokum stórsigur, 45-75.
Sigurður Rúnar Sigurðsson var
stigahæstur Skagamanna með 10
stig og tók hann 7 fráköst að auki.
Ármann Örn Vilbergsson og Andri
Jökulsson skoruðu 9 stig hvor en
aðrir höfðu minna.
Jeremy Smith var atkvæðamestur
í liði Breiðabliks með 26 stig og 12
fráköst.
Skagamenn sitja á botni 1. deild-
ar án stiga eftir sex leiki, rétt eins og
lið FSu en eiga leik til góða á Sunn-
lendinga. Þessi tvö lið mætast einmtt
í botnslag í næstu umferð. Leikur
þeirra fer fram á Akranesi næstkom-
andi föstudag, 17. nóvember. kgk
Skagamenn töpuðu stórt fyrir Breiðabliki
Björn Steinar Brynjólfsson og liðs-
félagar hans í ÍA máttu sætta sig við
stórt tap gegn Breiðabliki. Ljósm. jho.
Skallagrímur tapaði fyrir Breiðabliki,
102-92, þegar liðin mættust í topps-
lag 1. deildar karla í körfuknattleik á
mánudagskvöld. Leikurinn fór fram í
Kópavogi. Með sigrinum urðu Blik-
ar fyrsta liðið til að sigra Skallagrím
í vetur, en Borgnesingar höfðu unnið
fyrstu sex leiki sína í deildinni.
Heimamenn mættu gríðarlega
ákveðnir til leiks og skoruðu fyrstu
sjö stigin áður en gestirnir úr Borg-
arnesi komust á blað. Blikar skor-
uðu tvær körfur til viðbótar en þá var
Finni Jónssyni, þjálfara Skallagríms
nóg boðið og tók leikhlé í stöðunni
11-2 til að fara yfir málin með sínum
mönnum. Það skilaði ekki tilætluð-
um árangri því Blikar réðu áfram lög-
um og lofum á vellinum og höfðu 18
stiga forskot að loknum fyrsta leik-
hluta, 33-15.
Skallagrímsmenn voru aðeins beitt-
ari í öðrum fjórðungi og náðu að saxa
á forskot Blika, einkum á fyrri hluta
hans. Um miðjan leikhlutann höfðu
þeir minnkað muninn í ellefu stig,
40-29. Heimamenn voru ívið sterkari
þegar leið nær hálfleik og leiddu með
16 stigum í hléinu, 52-36.
Breiðablik var sterkara liðið á vell-
inum eftir hléið og náði að auka for-
skot sitt í 25 stig seint í þriðja leik-
hluta. Skallagrímsmenn náðu smá
rispu undir lok leikhlutans og minnk-
uðu muninn í 17 stig, 78-61 fyrir
lokafjórðunginn. Þar gerðu Skalla-
grímsmenn síðustu atlögu að forystu
heimamanna en komust aldrei nær
en í leikslok þegar munaði tíu stigum
á liðunum. Blikar sigruðu með 102
stigum gegn 92.
Hjalti Ásberg Þorleifsson var stiga-
hæstur Skallagrímsmanna með 24
stig og tók hann 6 fráköst að auki.
Zac Carter var með 18 stig, Bjarni
Guðmann Jónsson 15 stig og Eyjólf-
ur Ásberg Halldórsson 15 stig og 5
fráköst.
Atkvæðamestur heimamanna var
Jeremy Smith með 34 stig og 13 frá-
köst og Ragnar Jósef Ragnarsson
skoraði 30 stig.
Eftir leikinn er Skallagrímur í öðru
sæti deildarinnar með tólf stig eftir
fyrstu sjö leiki vetrarins. Liðið er jafnt
Breiðabliki sem situr í fyrsta sæti en
tveimur stigum á undan Vestra í því
þriðja. Í næstu umferð mætast ein-
mitt Skallagrímur og Vestri. Sá leik-
ur fer fram í Borgarnesi á morgun,
fimmtudagin 16. nóvember.
kgk
Skallagrímur tapaði toppslagnum
Eyjólfur Ásberg Halldórsson á mikilli siglingu í leiknum gegn Breiðabliki.
Ljósm. Skallagrímur Körfubolti.