Skessuhorn - 29.11.2017, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 48. tbl. 20. árg. 29. nóvember 2017 - kr. 750 í lausasölu
Lúsina burt!
Augndropar!
Jólagjöf sem
allir geta notað
Gjafakort Arion banka er hægt að nota hvar sem er.
Þú velur fjárhæðina, þiggjandinn velur gjöfina.
Gjafakortið fæst í öllum útibúum Arion banka.
Til alþingismanna
Tökum upp
US Dollar
Pétur Geirsson
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Pantanir: veislur@vogv.is
Aðrar uppl. í síma: 431-4343
Jólahlaðborð
Laus sæti
2.desember
Í Skessuhorni í dag fylgja upplýs-
ingar um dagskrá á aðventu víðs-
vegar um Vesturland; á vegum
sveitarfélaga, í sóknum eða hjá fé-
lögum og fyrirtækjum. Fjölbreytt
menning er framundan og ættu all-
ir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Á meðfylgjandi mynd er kirkjan
á Innra-Hólmi í Hvalfjarðarsveit.
Kirkjubyggingin er illa farin og
peninga skortir til að hefja nauð-
synlegar viðgerðir. Fjallað er um
það í annarri frétt í blaðinu í dag.
mm
Dagskrá
á aðventu
Eins og greint hefur verið frá í
Skessuhorni varð alvarleg vélarbilun
í Breiðafjarðarferjunni Baldri í byrj-
un síðustu viku og hefur ferjan verið
fjarri góðu gamni síðan. Í fyrstu var
búist við að skipið yrði ekki sjófært
í nokkra daga en við nánari athug-
un reyndist bilunin mun alvarlegri
en talið var í fyrstu og áætlaður við-
gerðartími er nokkrar vikur. Aðalvél
skipsins er biluð og reyndist útilok-
að annað en taka hana upp og flytja
til viðgerðar hjá Framtaki í Garða-
bæ. Að óbreyttu kemst því skipið
ekki í siglingar að nýju fyrr en í byrj-
un næsta árs. Stjórn Sæferða ákvað
að farþegaskipið Særún muni sigla
frá Stykkishólmi í Flatey tvisvar í
viku meðan Baldur er í viðgerð. Far-
ið verður föstudaga og sunnudaga á
meðan viðgerð á Baldri stendur yfir.
Stöðvun á siglingum Baldurs var
til umræðu á fundi bæjarstjórnar
Stykkishólmsbæjar fimmtudaginn
23. nóvember. Þar samþykkti bæjar-
stjórn bókun þar sem skorað er á Sæ-
ferðir að hraða viðgerð eða tryggja
annað skip til siglinga svo fljótt sem
kostur er. „Siglingar Baldurs gegna
mikilvægu og sívaxandi hlutverki í
samgöngukerfinu sem þjónar Vest-
fjörðum og Breiðafjarðarsvæðinu
og þar með Stykkishólmi. Rekstur
ferjuhafnarinnar er stór liður í rekstri
Stykkishólmshafnar og ferðaþjónust-
an treystir á siglingar ferjunnar all-
an ársins hring svo ekki sé talað um
þýðingu ferjusiglinganna fyrir ein-
staklinga, heimilin og atvinnulífið
á sunnanverðum Vestfjörðum. Bæj-
arstjórn Stykkishólmsbæjar skorar á
stjórn Sæferða og stjórnendur Eim-
skipafélags Íslands, sem eiganda ferj-
unnar, að leita allra leiða til þess að
hraða viðgerð á vélbúnaði ferjunnar,
eða tryggja annað skip til siglinga um
Breiðafjörð svo fljótt sem kostur er.
Stöðvun ferjusiglinganna er alvarlegt
tjón fyrir samfélagið við Breiðafjörð
og á Vestfjörðum og því nauðsynlegt
að bregðast hratt við og tryggja að
ferja sigli að nýju svo komið verði í
veg fyrir alvarleg skakkaföll og efna-
hagsleg áföll hjá þeim sem njóta
þjónustu ferjunnar,“ segir í bókun
bæjarstjórnar sem verður komið til
stjórnenda Sæferða. kgk
Skora á Sæferðir að hraða viðgerð eða fá annað skip
Nýverið var gerð videóupptaka af nýju jólalagi eftir Valgerði Jónsdóttur tónlistarkonu af Akranesi. Lagið er við sálm eftir Brynju Einarsdóttur og nefnist Jólasálmur.
Barnakór úr Grundaskóla og Karlakórinn Svanir sungu en um undirleik sáu þau Flosi Einarsson og Sigrún Þorbergsdóttir. Valgerður stjórnaði kórunum en Bergur Líndal
Guðnason kvikmyndagerðarmaður tók upp. Upptökunni verður streymt á Yotutube fyrir næstu helgi, eða um svipað leyti og aðventan gengur í garð. Sjá nánar á bls. 18.
Ljósm. mm.
Aðalvél Baldurs er biluð og þarf að taka hana úr skipinu og flytja til viðgerðar í Garðabæ.
Ekki er líklegt að skipið farið í siglingar fyrr en í byrjun næsta árs.