Skessuhorn - 29.11.2017, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 201716
Krakkarnir á Eldhömrum í
Grundarfirði, sem er elsta deild
leikskólans, brutu upp hefð-
bundna skólaviku á dögunum
og héldu sjóræningjadag. Þá
buðu þau ættingjum og vinum
að koma og skoða afraksturinn
sem var glæsilegur. Búið var að
föndra stórt sjóræningjaskip á
einn vegginn og allir krakkarn-
ir voru búin að gera sína eigin
sjóræningjasögu sem hægt var
að lesa á veggjum deildarinn-
ar. Föndraðar voru fjársjóðskist-
ur, augnleppar og margt fleira.
Flott framtak hjá þessum dug-
legu krökkum.
tfk
Sjóræningjadagur á Eldhömrum
Aron Hjaltason er hérna stoltur með fjársjóðskistuna sína og að sjálfsögðu með
lepp fyrir auganu eins og sönnum sjóræningja sæmir.
Ísey Káradóttir var kát og glöð er hún flaggaði forláta sjóræningjafána fyrir ljós-
myndara Skessuhorns.
Vinkonurnar Líf Lárusdóttir og
Díana Bergsdóttir opnuðu laugar-
daginn 11.11 klukkan 11 vefsíðuna
framinn.is, þar sem þær hyggjast
birta jákvæðar og hvetjandi grein-
ar fyrir alla sem huga að sínum
frama. „Hugmyndin hefur verið að
malla í nokkuð langan tíma en við
sáum alltaf fyrir okkur vefsíðu þar
sem fjallað væri á hvetjandi hátt um
öll þau málefni sem tengjast kon-
um. Hugmyndin var að birta helst
eingöngu fræðilegar greinar frek-
ar en greinar sem skrifaðar eru út
frá persónulegri reynslu eða skoð-
unum. En við enduðum svo á að
hafa fræðilegar greinar í bland við
annað efni, þá helst uppskriftir eða
skemmtilegar hugmyndir og svo
mánaðarlega viðtal við eina frama-
konu, en við ætlum að halda okkur
frá persónulegum skrifum,“ segir
Líf þegar blaðamaður settist niður
með þeim vinkonum í liðinni viku.
Hafa verið
mjög samstíga
Vefsíðan er ekki það fyrsta sem Líf
og Díana gera saman en þær hafa
verið mjög samstíga í lífinu. Þær
eru báðar 26 ára og eru báðar í sam-
búð með Skagamönnum sem báð-
ir heita Ragnar. Þá eignuðust þær
líka báðar dætur fyrr á þessu ári auk
þess sem þær bjuggu á sama tíma í
Huntsville Alabama þegar menn-
irnir þeirra spiluðu þar fótbolta frá
2011-2012. Líf starfar í dag í mark-
aðsdeild hjá Gámaþjónustunni en
hún hefur gegnt ýmsum störfum
þar í og með skóla frá 2013. Hún er
viðskiptafræðingur að mennt ásamt
því að hafa lokið framhaldsnámi í
markaðsfræði frá háskóla í Barce-
lona og diplomanámi í viðburða-
skipulagningu. Díana starfar hjá
auglýsingastofunni HN Markaðs-
samskipti en hún lærði Branding
and marketing management í VIA
University College í Danmörku
með áherslu á tísku og hönnun.
„Konur eru í raun mjög duglegar
að standa saman og við viljum sýna
það í verki að við getum allar ver-
ið frábærar og stutt hverja aðra. Á
vefsíðunni vonumst við til þess að
byggja upp gagnagrunn fyrir konur
sem vinna að markmiðum sínum.
Þar sem þær geta nálgast uppbyggj-
andi greinar, fengið innblástur og
ráð frá öðrum konum sem hafa elt
drauma sína. Það getur verið erf-
itt að vera stelpa eða kona í dag
og þekkjum við flestar þá pressu
að þurfa að standa okkur vel í öllu.
Skilaboðin verða oft þau að við
þurfum að bæta okkur. Við viljum
sýna konum að við erum allar ansi
frábærar eins og við erum ólíkar og
að við þurfum ekkert endilega að
bæta okkur til að uppfylla óraun-
hæfa staðla sem settir eru. Við
eigum aðeins að bæta okkur fyrir
okkur sjálfar, ef við viljum það, “
segir Díana. „Það að við eignuð-
umst báðar dætur hefur vissulega
haft áhrif á okkur í þessu ferli en
við viljum skapa vettvang sem ger-
ir fræðilegar greinar aðgengilegri
ásamt því að stuðla að hvetjandi
samfélagi fyrir stelpurnar okkar að
alast upp í,“ bætir Líf við.
Fá konur með reynslu
eða menntun
Aðspurðar hvort síðan myndi flokk-
ast sem hefðbundið blogg segja þær
svo ekki vera. „Við myndum frek-
ar skilgreina hana sem veftímarit
því þar kemur aðeins inn fræðslu-
efni eða viðtöl, ekki persónulegar
færslur. Eins og staðan er núna, eru
með okkur í þessu verkefni fimm
flottar konur sem skrifa greinar
fyrir okkur, Hildur Rut Ingimars-
dóttir er mikill matarunnandi og
áhugakona um matargerð. Hún gaf
til að mynda út matreiðslubókina
Avocado fyrir jólin í fyrra. Hún sér
því að mestu um að setja inn upp-
skriftir á vefinn. Aníta Sif Elídóttir
skrifar greinar um næringu en hún
er næringafræðingur og starfar sem
slíkur á Heilsuborg og Landspít-
alanum. Hafdís Bergsdóttir skrif-
ar greinar þar sem hún kemur með
ýmis góð ráð og skemmtilegar hug-
myndir, en hún er grunnskólakenn-
ari í Brekkubæjarskóla auk þess sem
hún er með sveinspróf í kjólaklæð-
skurði. Eyrún Reynisdóttir íþrótta-
fræðingur ætlar að fræða okkur um
hreyfingu og að lokum er svo Arn-
björg Baldvinsdóttir, sem starfar í
markaðsdeildinni hjá WOW air að
skrifa greinar fyrir okkur, en hún
er menntuð í margmiðlunarhönn-
un frá Danmörku, “ segja þær Líf
og Díana.
Viðtal við framakonu
Eins og fram hefur komið stefna
þær Líf og Díana að birta á síðunni
viðtal við eina framakonu í hverj-
um mánuði. Aðspurðar hvað ein-
kenni framakonur horfa þær hvor
á aðra og brosa. „Við skulum alveg
viðurkenna að við vorum hræddar
um að þetta myndi misskiljast og að
fólk héldi að okkur þætti við sjálfar
vera svo miklar framakonur, “ seg-
ir Líf og hlær. „En til þess að vera
framakona þarftu ekki að vera for-
stjóri í fyrirtæki eða gegna mikil-
vægri stöðu í banka. Við óttuðumst
líka að fólk myndi kannski skilja
þetta á þann veg. Okkar hugmynd
um framakonu er einhver sem set-
ur sér markmið og vinnur að þeim,
markmiðin geta verið hvað sem er.
Framakona getur verið kennari, at-
vinnumaður í íþrótt, húsmóðir, eig-
andi fyrirtækis eða hvað sem er. Við
erum fyrst og fremst að hugsa um
að taka viðtöl við konur sem hafa átt
drauma sem þær létu verða að veru-
leika. Okkur langar að sjá hvernig
viðkomandi konur unnu að sínum
markmiðum og eltu drauma sína.
Það mun svo vonandi vera hvatning
fyrir aðrar konur að vinna að því
að láta sína drauma rætast, “ bæt-
ir Díana við. Þær segja viðtökurn-
ar hafa verið mjög góðar og að þær
séu nú þegar komnar með nokkrar
konur á lista sem hugsanleg viðtals-
efni. „Það er svo gaman að fá þessi
frábæru viðbrögð og sjá hversu
margar konur hafa elt drauma sína.
Það er líka gaman að segja frá því
að við erum nú þegar búin að finna
framakonu desembermánaðar, eina
mjög flotta Skagakonu, “ segja þær
báðar og brosa. arg
Vilja stuðla að hvetjandi samfélagi fyrir konur
Framakonur langar að sjá hvernig konur vinna að markmiðum sínum og elta draumana
Díana Bergsdóttir og Líf Lárusdóttir opnuðu vefsíðuna Framinn.is 11.11 klukkan 11. Ljósm. Gunnar Jóhann Viðarsson.