Skessuhorn - 29.11.2017, Qupperneq 4
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 20174
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Tepptar samgöngur
Á dagskrá Stöðvar 2 á sunnudaginn var sýndur býsna fróðlegur þátt-
ur um uppbyggingu atvinnulífs á suðurfjörðum Vestfjarða. Kristján
Már Unnarsson þáttagerðarmaður ræddi þar við fjölda fólks um þá
miklu uppbyggingu sem er að verða í atvinnulífinu á Patreksfirði,
Tálknafirði og Bíldudal. Í fyrstu var það bygging kalkþörungaver-
smiðjunnar sem sneri við öfugri byggðaþróun sem verið hafði um
árabil, en nú á síðari árum hefur mesta byltingin orðið vegna fisk-
eldis í sjó. Á undraskömmum tíma hefur verið byggt upp laxeldi af
þeirri stærðargráðu að Vestfirðingar tala um stjóriðju, slík eru áhrif-
in. Fram kom í þættinum að laun eru nú orðin samkeppnishæf við
suðvesturhornið enda forsenda fyrir því að fólk sé tilbúið að flytja
búferlum og setjast að í þessum fallegu sjávarplássum að eftir ein-
hverju sé að slægjast. Nú er svo komið að einkum tvennt hamlar
auknum vexti. Annars vegar er það skortur á íbúðarhúsnæði en hins
vegar eru það vegasamgöngur.
Varðandi uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á suðurfjörðunum þurfa
menn tæpast að hafa áhyggjur til langs tíma litið. Ef áfram verð-
ur vöxtur í fyrrnefndum atvinnugreinum og þær þess megnugar að
greiða samkeppnishæf laun, verður ekki langt í að menn hefji bygg-
ingu íbúðarhúsnæðis. Markaðsöflin munu þar ráða för. Hins vegar
eru það samgöngumálin sem hafa verður áhyggjur af. Ekki einvörð-
ungu að ríkisvaldið hefur með óskiljanlegum hætti dregið lappirn-
ar í uppbyggingu þjóðvegarins vestur í Barðastrandarsýslu, heldur
munu á næstu vikum og jafnvel mánuðum að óbreyttu liggja niðri
sigling Baldurs yfir Breiðafjörð. Alvarleg bilun varð í aðalvél skips-
ins í síðustu viku og nær öruggt að viðgerð á eftir að taka tvo eða
þrjá mánuði. Það er fyrirtækið Sæferðir sem heldur úti daglegum
siglingum milli Stykkishólms og Brjánslækjar með viðkomu í Flat-
ey. Ferðirnar byggja á samningi við Vegagerðina en ríkið styður við
þennan mikilvæga legg í almenningssamgöngum vestur.
Það er mitt mat að við aðstæður eins og nú hafa skapast verður að
leggja þá kröfu á Sæferðir, e.t.v. með sérstökum stuðningi ríkisins,
að nú þegar verði leitað hófanna með leigu á skipi erlendis frá til að
leysa Baldur af. Íbúar og ekki síst atvinnulífið á sunnanverðum Vest-
fjörðum og á Snæfellsnesi má ekki við því að verða án siglinga yfir
Breiðafjörð svo vikum eða mánuðum skiptir. Margt bendir til þess
að í hönd fari umhleypingasamur vetur með tilheyrandi erfiðleikum
í samgöngum. Ég tek því undir skrif þeirra Bergþórs Ólasonar og
Sigurðar Páls Jónssonar, þingmanna Miðflokksins í Skessuhorni í
dag, þar sem þeir kalla eftir tafarlausum lausnum á þeirri stöðu sem
upp er komin í samgöngum við landshlutann.
Fátt kemur í veg fyrir að ný ríkisstjórn taki við völdum í þessari
viku. Allir þrír flokkarnir sem standa að hinni nýju stjórn höfðu á
stefnuskrá sinni fyrir kosningar að bæta samgöngur sem nauðynleg-
an þátt í því sem kalla mætti eðlilega innviðauppbyggingu. Ég held
að það yrði farsæl ákvörðun hjá ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur
að hafa það sem fyrsta verk sitt að taka samgöngumál á vestanverðu
landinu til alvarlegrar skoðunar. Ríkisvaldið hefur dregið lappirnar
of lengi og nú kallar samfélagið á aðgerðir.
Magnús Magnússon
Leiðari
Í auglýsingu í Skessuhorni vikunn-
ar kallar Ungmennasamband Borg-
arfjarðar eftir umsóknum um starf
framkvæmdastjóra sambandsins.
Um fullt stöðugildi er að ræða og í
boði fjölbreytt starf á sviði íþrótta-
og æskulýðsmála í héraðinu. Pálmi
Blængsson viðskiptafræðingur hef-
ur sinnt starfinu undanfarin fjög-
ur ár en hann hefur nú ráðið sig til
starfa hjá bifreiðaumboðinu Heklu
frá næstu áramótum og er því á
förum úr Borgarnesi. Aðspurður
segir Pálmi að starf framkvæmda-
stjóra UMSB sé mjög fjölbreytt.
Fyrir um fjórum árum hafi UMSB
og Borgarbyggð gert með sér sam-
starfssamning sem fól í sér að við
starf framkvæmdastjóra UMSB var
hnýtt ýmsum verkefnum á sviði
íþrótta- og æskulýðsmála þannig að
um fullt starf yrði að ræða. Meðal
þeirra verkefna má nefna umsjón
með íþróttamannvirkjum, útdeil-
ing styrkja og verðlaunaveiting-
ar, rekstur þjónustumiðstöðvar og
upplýsingagjöf,
æfingaplön og
ýmis samþætting
í málaflokknum.
Þau verkefni hafi
komið til við-
bótar yfirumsjón
með rekstri hér-
a ð s s a m b a n d s -
ins sem í eru
19 aðildarfélög
sem teygja sig
yfir þrjú sveitar-
félög. Í auglýs-
ingunni er m.a.
kallað eftir há-
skó lamenntun
sem nýtist í starfi
og að reynslu
af stjórnun og
rekstri auki hæfi
u m s æ k j e n d a .
Umsóknarfrest-
ur er til 7. des-
ember nk.
mm
Ungmennasamband Borgarfjarðar er 105 ára, stofnað 1912.
Á þeim tíma hefur starf sambandsins verið gríðaröflugt,
meðal annars að standa fyrir landsmótum ungmennafélaga,
en þessi mynd var einmitt tekin við upphaf Unglinga-
landsmóts UMFÍ sem haldið var í Borgarnesi 2010.
UMSB auglýsir starf framkvæmdastjóra
Það var létt yfir starfsmönnum
Steypustöðvar Skagafjarðar fyrr í
vikunni þegar þeir voru að vinnu
við Ytri-Búðá, rétt utan við Grund-
arfjörð. Þar voru þeir að undir-
búa lagningu rörs sem munu hýsa
Grundarfjarðarlínu. Verkinu mið-
ar þokkalega áfram en búið er að
setja niður strenginn að Búlands-
höfða og nú er unnið við lagningu
í Grundarfirði. Stefnt er á að fram-
kvæmdum ljúki sumarið 2018.
tfk
Lagning Grundarfjarðarlínu gengur vel
Starfsmenn Steypu-
stöðvar Skagafjarðar að
störfum í kuldanum.
Í bréfi sem Félag slökkviliðsmanna
á Akranesi sendi bæjarráði Akra-
neskaupstaðar í síðustu viku er
lýst þungum áhyggjum af skorti á
nýliðun í Slökkviliði Akraness og
Hvalfjarðarsveitar. Í bréfinu sem
Leiknir Sigurbjörnsson formaður
félagsins skrifar segir m.a.: „Árið
2007 voru síðast ráðnir inn nýliðar
í Slökkvilið Akraness og Hvalfjarð-
arsveitar. Kláruðu fimm slökkvi-
liðsmenn nýliðaþjálfun og urðu
fullgildir slökkviliðsmenn. Starf-
andi slökkviliðsmenn voru 30 eft-
ir þá ráðningu á Akranesi en leit-
ast hefur [verið] eftir því í gegn-
um árin að fjöldi starfandi slökkvi-
liðsmanna í liðinu sé ekki undir 28
manns.“
Þá segir að fækkað hafi í liðinu
eftir þetta, bæði vegna brottflutn-
ings og vegna aldurs. Ekki hafi
verið ráðið í störfin að nýju. Starf-
andi slökkviliðsmenn eru því 24
nú, einn hættir um næstu áramót
vegna aldurs og fyrirséð að á næstu
árum fækki um fleiri sem eru að
nálgast starfslokaaldur. „Á sama
tíma og þessi fækkun hefur orðið
í slökkviliðinu þá hefur íbúum á
Akranesi fjölgað og fyrirtækjum á
starfssvæði slökkviliðsins einnig.“
Að endingu segir í bréfi Leiknis:
„Félag slökkviliðsmanna á Akra-
nesi treystir því að bæjarfulltrúar
á Akranesi bregðist við og tryggi
að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir
árið 2018 verði gert ráð fyrir ráðn-
ingu og þjálfun nýliða hjá slökkvi-
liðinu svo fjöldi starfandi slökkvi-
liðsmanna fylli aftur þrjá tugi.
mm
Skora á bæjaryfirvöld að tryggja
nýliðun í slökkviliðinu
Slökkviliðið að störfum. Ljósm. úr safni Skessuhorns.