Skessuhorn - 29.11.2017, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2017 11
Jólaljósin tendruð í Skallagrímsgarði kl. 17.00
Ljósin verða tendruð á jólatré
Borgarbyggðar í Skallagrímsgarði.
Þar mun Gunnlaugur A. Júlíusson sveitarstjóri
flytja ávarp og tendra jólaljósin.
Jólalög verða sungin af Barnakór
Borgarness undir stjórn Steinunnar
Árnadóttur við undirleik Halldórs Hólm.
Einnig mun Andrea Jónsdóttir spila á saxafón.
Nemendur Grunnskólans í Borgarnesi bjóða
upp á heitt kakó. Jólasveinar mæta á svæðið
og dansað verður í kringum jólatréð.
Aðventustemning verður í bænum.
Gleðilega hátíð!
Upphaf aðventu í Borgarbyggð
sunnudaginn 3. desember 2017
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Síðdegis á þriðjudaginn í liðinni
viku kom bæjarstjórn unga fólks-
ins á Akranesi saman í bæjarþings-
al Akraneskaupstaðar. Fundinn
sátu einnig bæjarfulltrúar Akra-
neskaupstaðar og bæjarstjóri. Það
var Sigríður Indriðadóttir, forseti
bæjarstjórnar, sem stjórnaði fund-
inum.
Í bæjarstjórn unga fólksins eiga
sæti þau Selma Dögg Þorsteins-
dóttir og Gylfi Karlsson f.h. Arn-
ardalsráðs, Birta Björgvinsdóttir
og Ella Eir Ágústsdóttir f.h. Hvíta
húss ráðs, Aron Kristjánsson f.h.
nemendafélags Brekkubæjarskóla,
Guðjón Snær Magnússon f.h. nem-
endafélags Fjölbrautaskóla Vestur-
lands, Jón Hjörvar Valgarðsson,
ungmennaráði og áherynarfulltrúi
í skóla- og frístundaráði og Ísak
Örn Elfarsson f.h. nemendafélags
Grundaskóla. Ísak Örn gat ekki
verið viðstaddur fundinn vegna
veikinda en Jón Hjörvar tók að sér
að flytja hans mál.
Lof og ábendingar
Krakkarnir nýttu tækifærið til að
ræða um hvaðeina sem viðkemur
ungu fólki á Akranesi. Hrósað var
fyrir það sem vel er gert og bent á
það sem ungmennin töldu að bet-
ur mætti fara. Félagsmiðstöðv-
arnar Arnardalur og Hvíta húsið
fengu lof fyrir gott starf og kallað
var eftir því að opnunartími þeirra
yrði rýmkaður. Einnig lýsti unga
fólkið ánægju með gott samstarf
félagsmiðstöðva á Vesturlandi.
Bæjaryfirvöldum var hrósað fyr-
ir Akranesstrætóinn sem nýtist
krökkum vel á leið til skóla eða æf-
inga. Hins vegar var kallað eftir því
að breyting frá vetrarakstri vagns-
ins yfir í sumarakstur mætti miðast
við skólaslit. Eins og skiptingunni
er háttað núna tekur sumarakstur
við áður en skóla lýkur. Tvær ferð-
ir sem falla niður á sumrin nýtast
því ekki grunnskólabörnum síð-
ustu kennsludaga skólanna.
Bæjaryfirvöldum var hrósað fyr-
ir að útvega grunnskólabörnum
námsgögn. Látið var vel af netmál-
um í Grundaskóla en kallað eft-
ir bættu neti í Brekkubæjarskóla.
Kallað var eftir fjármálakennslu í
grunnskólunum eða í Fjölbrauta-
skóla Vesturlands, til dæmis sem
viðbót í lífsleiknikennslu.
Allir sem vöktu máls á gatna-
framkvæmdum í bænum lýstu yfir
ánægju sinni með þær og voru
bæjaryfirvöld hvött til að halda
uppteknum hætti. Rætt var um
þrengsli líkamsræktarsalsins á Jað-
arsbökkum og bæjaryfirvöld hvött
til að ráða bót í máli. Einnig voru
þau hvött til að hita Akraneshöll-
ina betur yfir vetrartímann, það
myndi skila sér í betri nýtingu og
draga úr líkum á meiðslum.
Að lokum var varpað fram þeirri
hugmynd að standa að uppbygg-
ingu stúdentagarða eða lítilla
leiguíbúða á Akranesi. Bærinn væri
ekki inni í myndinni sem búseta
fyrir fólk sem stefnir á háskólanám
vegna þess að hagstætt húsnæði sé
vandfundið í bænum. Akranes sé
hins vegar vel staðsett og hægt að
taka strætó alla leið í Háskóla Ís-
lands. Því væri færi til uppbygg-
ingar stúdentagarða sem myndi
auka líkur á því að ungt fólk snúi
heim að námi loknu.
kgk
Ungir Akurnesingar láta sig bæjarmálin varða