Skessuhorn - 29.11.2017, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2017 13
Velkomin í sund!
Opnunartími um jól og áramót í sundlaugum Borgarbyggðar 2017
Sundlaugin í Borgarnesi
23. des. Þorláksmessa, opið 6:00-18:00
24. des. aðfangadagur, opið 9:00-12:00
25. des. jóladagur, lokað
26. des. annar í jólum, lokað
31. des., 9:00-12:00
1. jan. 2017, lokað
Sundlaugin Kleppjárnsreykjum
23. des. Þorláksmessa, lokað
24. des. aðfangadagur, lokað
25. des. jóladagur, lokað
26. des. annar í jólum, lokað
31. des., lokað
1. jan. 2017, lokað
Sundlaugin á Varmalandi er
lokuð yfir vetratímann
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Aðventustemning
í Akranesvita í desember
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Jólatónar alla laugardaga kl. 14:00
2. desember• - Tónlistarfólkið
Valgerður Jónsdóttir og Þórður Sævarsson
9. desember • - Hanna Þóra Guðbrandsdóttir
sópran og Birgir Þórisson
16. desember• - Jónína Björg Magnúsdóttir
söngkona
23. desember • - Rakel Pálsdóttir söngkona og
Birgir Þórisson
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis
Opnunartími í desember
Akranesviti er opinn þriðjudaga til laugardaga
frá kl. 11-17 allan desember
Eftir vikulangar viðræður Sjálf-
stæðisflokks, Vinstri hreyfingar-
innar græns framboðs og Fram-
sóknarflokks dró loks til tíðinda í
gær. Þá veitti Guðni Th. Jóhann-
esson, forseti Íslands, Katrínu Jak-
obsdóttur formanni VG form-
legt umboð til stjórnarmyndunar.
Guðni telur að ríkisstjórn Vinstri
grænna, Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks undir forsæti Katrín-
ar geti tekið við á ríkisráðsfundi á
morgun, fimmtudag. Guðni sagði
við fréttamenn á fundi sem hann
hélt á Bessastöðum í gærmorg-
un að stjórnarsáttmáli liggi fyrir í
megindráttum og að hann leyfði
sér að vera bjartsýnn á að stjórnar-
samstarfið myndi halda.
„Það er í verkahring stjórnmála-
mannanna að mynda hér ríkis-
stjórn. Þeir eru langt komnir með
það núna leiðtogar þriggja flokka,“
sagði Guðni. „Það er alveg sama
hverjir hefðu tekið það verkefni að
sér og leitt til lykta – ég hefði verið
bjartsýnn fyrir þeirra hönd,“ sagði
forsetinn.
Ekkert hefur enn komið fram
um ráðherraskipan, að öðru leyti
en því að Katrín verður forsætis-
ráðherra. Gert er ráð fyrir að ríkis-
stjórn verði skipuð ellefu ráðherr-
um og að skipting ráðuneyta verði
með svipuðum hætti og hjá síðustu
ríkisstjórn. Sjálfstæðisflokkur fá
ifimm ráðherra og hinir flokkarnir
þrjá hvor.
mm
Ný ríkisstjórn að verða til
www.skessuhorn.is