Skessuhorn - 29.11.2017, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 201714
Hjónin Rán Kristinsdóttir og
Fannar Baldursson færðu Björgun-
arsveitinni Lífsbjörgu í Snæfellsbæ
nýverið gjafabréf fyrir sjúkraböru-
skel. Er þessi nýja skel úr harðplasti
með axlaböndum fyrir burðar-
menninga sem gerir allan burð með
börurnar auðveldari. Tilefni þess-
arar góðu gjafar er að Björgunar-
sveitin Lífsbjörg sér um vatnapósta
í hinu árlega Snæfellsjökulshlaupi
sem þau standa fyrir. Þess má geta
að sveitin fékk böruhjól, sem notað
er undir börurnar, að gjöf frá þeim
hjónum á síðasta ári. þa
Færðu Lífsbjörgu sjúkrabörur
Laugardaginn 6.
janúar klukkan 20,
stendur Kór Akra-
neskirkju fyrir ný-
árstónleikum í Bíó-
höllinni á Akranesi.
Á efnisskránni verða
m.a. íslensk dægur-
lög en einnig verð-
ur fluttur lagaflokkur
sem kallast Feel the
spirit og inniheldur
sjö afrísk-ameríska
söngva. Þessi laga-
flokkur hefur ekki
áður verið fluttur
hérlendis. Kórfélag-
ar verða ekki einir
á ferð því sett hefur
verið saman kammersveit sem skip-
uð er hljóðfæraleikurum sem koma
að miklu leyti frá Akranesi eða eiga
tengingu við Akranes. Stjórnandi
á þessum tónleikum verður Guð-
mundur Óli Gunnarsson og um ein-
söng sér Auður Guðjohnsen mezzo-
sópran.
„Það er tilvalið að fagna nýju ári
með þessum glæsilegu tónleikum og
miði á tónleikana er góð gjöf í jóla-
pakkann. Forsala hefst í versluninni
Bjargi við Stillholt, föstudaginn 1.
desember. Miðaverð er kr. 4.500,“
segir í fréttatilkynningu.
mm
Kór Akraneskirkju
stefnir á nýárstónleika
Fiskvinnslan Norðursýn ehf. er
nýtt fyrirtæki á Akranesi. Starfsemi
þess hófst í síðasta mánuði þegar
fyrstu afurðunum var pakkað í um-
búðir. „Undirbúningur hefur stað-
ið yfir nokkuð lengi en við gát-
um loksins byrjað í október þegar
fyrstu fiskarnir voru flakaðir. Mán-
uðina þar á undan hafði verið unn-
ið hörðum höndum að því að gera
húsnæðið klárt,“ segir Alexander
Eiríksson í samtali við Skessuhorn.
Alexander er eigandi Norðursýnar
en það eru hann og fjölskylda hans
sem stendur að fyrirtækinu. „Hér
leggjum við áherslu á að kaupa
línufisk af smábátasjómönnum,
enda er það að mínu viti albesta
hráefnið. Öllum fiski sem veidd-
ur er á línu er landað samdægurs
og aflinn fer strax til vinnslu,“ seg-
ir hann. „Hér bjóðum við því bæði
ferskan fisk og frystan, en höfum
þó vera meira í frystum afurðum
til að byrja með, einkum lausfryst-
um þorski sem við seljum í fimm
kílógramma pakkningum. Sú vara
hefur fengið góðar viðtökur. Fólki
vill gjarnan eiga slíka pakka í fryst-
inum, enda gerist fiskurinn varla
betri,“ bætir hann við.
Sala á ferskum
fiski í deiglunni
Alexander segir að Norðursýn
flytji einnig inn rækju frá Royal
Greenland sem seldar eru í tveggja
kílógramma neytendapakkning-
um. „Síðan sjáum við fyrir okkur
að bæta smám saman við vöruúr-
valið. Ætlunin er að bjóða til dæm-
is ferska bleikju og frysta og jafn-
vel reyktar afurðir, til viðbótar við
þorsk, ýsu og rækjur,“ segir hann.
„Síðan er í deiglunni að selja fersk-
an fisk beint til einstaklinga. Þá
myndum við hafa einhvern ákveð-
inn tíma sem fólk getur komið til
okkar og keypt glænýjan línufisk,“
segir hann en kveðst þó eiga eftir
að útfæra betur hvaða háttur verður
hafður þar á. „Markaðurinn okkar
er fyrst og fremst einstaklingar og
fyrirtæki hér í þéttbýlinu á Akranesi
en einnig bændur og íbúar í dreif-
býlinu hér í kring. Yfirleitt eigum
við rækju og frosinn þorsk á lag-
er þannig að fólk getur þá kom-
ið við og keypt fisk hjá okkur. En
svo á fyrirtækið bíl sem er útbú-
inn bæði frysti og kæli sem gefur
okkur möguleika á að aka afurðun-
um okkar heim að dyrum hjá fólki.
Fólk getur þá hringt og pantað eða
sent okkur skilaboð t.d. á Facebook
og við keyrum vörunni heim. Það
er mjög gott, ekki síst því við vilj-
um sinna markaðnum í dreifbýlinu
líka,“ segir hann.
Gaman að vera
við höfnina
Alexander steig sín fyrstu skref á
vinnumarkaðnum í fiski þegar hann
var unglingur, eins og svo marg-
ir aðrir. Síðan þá hefur hann feng-
ist við ýmislegt, var lengi í tölvu-
geiranum en er nú kominn aftur í
fiskinn. „Ég hef alltaf haft mikinn
áhuga á sjávarútvegi, hef til dæmis
átt bát með pabba og bróður mín-
um síðan 2008 og róið á strandveið-
um og þá hef ég undanfarin miss-
eri aðeins átt við sölu á sjávarafurð-
um til Bretlands. Ég hef alltaf haft
gaman af því að vera niðri við höfn-
ina og ég veit að það hafa fleiri. Það
er í blóðinu hjá mörgum Íslending-
um. Hugmyndin að því að stofna
þetta fyrirtæki er einhvern veginn
sprotinn úr þessum jarðvegi,“ seg-
ir Alexander. „Ég ákvað að koma
þessu fyrirtæki á fót hér í mínum
heimabæ, láta á það reyna hvort
starfsemi sem þessi gangi ekki upp
á Akranesi. Síðan verður framtíðin
bara að skera úr um hvernig þetta
kemur til með að ganga,“ bætir
hann við.
Bjartsýnn á framtíð
fiskmarkaðar
Akranes er rótgróinn sjávarúvegs-
bær þó útgerð hafi dregist verulega
saman frá því sem áður var. „Akra-
nes var líklega þriðja stærsta ver-
stöð landsins fyrir ekki meira en 15
til 20 árum, eða svo. Síðan þá hefur
útgerð farið verulega minnkandi og
margir þættir sem vinna þar sam-
an. Smábátútgerð hefur sömuleið-
is dregist saman síðustu ár og eru
ákveðnar blikur á lofti hvað það
varðar hér á Skaga. Fiskmarkaðn-
um var til dæmis lokað 15. októ-
ber sem er auðvitað ekki gott,“ seg-
ir Alexander, en rekstur Norður-
sýnar byggir m.a. á því að kaupa
fisk af markaði. Hann kveðst engu
að síður bjartsýnn á að lausn finn-
ist í því máli. „Mér heyrist bæjaryf-
irvöld, Faxaflóahafnir og aðrir vera
allir af vilja gerðir að beita sér fyrir
því að hér verði fiskmarkaður starf-
ræktur í framtíðinni. Ég held að all-
ir vilji hafa líf á hafnarsvæðinu og
grunnurinn að því er auðvitað fisk-
markaður, bæði fyrir báta að landa
aflanum og eins fyrir fiskverkun til
að kaupa fisk eða þá fá hann send-
an og afgreiddan í gegnum mark-
aðinn hér. Ég er bjartsýnn á farsæla
lendingu í þessu máli því mér heyr-
ist allir vera sammála um nauðsyn
þess að hafa hér fiskmarkað,“ seg-
ir hann.
Sígandi lukka er best
Aðspurður segir Alexander að starf-
semi Norðursýnar verði smá í snið-
um til að byrja með. Þar eru nú
eitt til tvö stöðugildi eftir atvikum
og þannig verður það áfram fyrst
um sinn. „En það er áhugi fyrir því
að efla fyrirtækið með tíð og tíma.
Það verður að haldast í hendur við
það hvernig fólki líkar við vöruna
og það verður bara að koma í ljós,“
segir hann og kveðst munu fara sér
að engu óðslega í upphafi. „Þeg-
ar fram í sækir horfum við auðvitað
til útflutnings líka en fyrst um sinn
munum við einbeita okkur að inn-
anlandsmarkaði. Ætlunin er að fara
varlega af stað og auka starfsemina
svo hægt og rólega eftir atvikum,“
segir Alexander að endingu. kgk
Fiskvinnslan Norðursýn hóf nýverið starfsemi á Akranesi
„Ætlunin að fara varlega af stað
og auka starfsemina hægt og rólega“
Fyrstu þorskarnir voru flakaðir í fiskvinnslunni Norðursýn í síðasta mánuði. Hér eru
feðgarnir Alexander og Eiríkur faðir hans.
Alexander Eiríksson, eigandi Norðursýnar.
„Hér leggjum við áherslu á að kaupa
línufisk af smábátasjómönnum,
enda er það að mínu viti albesta
hráefnið,“ segir Alexander í samtali við
Skessuhorn.