Skessuhorn


Skessuhorn - 29.11.2017, Síða 20

Skessuhorn - 29.11.2017, Síða 20
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 201720 Fyrirmyndardagurinn var síðastliðinn föstudag, en þenn- an dag gefst atvinnuleitendum og einstaklingum með skerta starfsorku tækifæri til að heimsækja hina ýmsu vinnustaði og kynnast starfseminni þar. Margir brugðu sér þá í það hlutverk að verða gestastarfsmenn í einn dag, eða hluta úr deginum. Fyrirmyndardagurinn er því mikilvægur til að auka möguleika fólks með skerta starfsgetu til fjölbreyttari atvinnuþátttöku. Með því fá gestastarfsmenn innsýn í fjölbreytt störf og starfs- menn fyrirtækja kynnast styrkleikum atvinnuleitenda. Hér á Vesturlandi tók Vinnumálastofnun höndum saman með Starfsendurhæfingu Vesturlands og starfsfólki vinnu- og hæfingarstaða við undirbúning og framkvæmd dagsins. Að sögn Guðrúnar Sigríðar Gísladóttur, forstöðumanns Vinnu- málastofnunar á Vesturlandi, tókst föstudagurinn mjög vel. „Við erum mjög ánægð hversu margir á Vesturlandi tóku þátt, bæði einstaklingar og fyrirtæki. Gestastarfsmennirnir voru 41 að þessu sinni og fyrirtækin sem tóku á móti þeim voru 33. Á landinu öllu voru 124 gestastarfsmenn skráðir og 120 fyrirtæki. Þátttaka var því með besta móti hér á Vestur- landi. Skipulag dagsins og umgjörðin öll var unnin í samstarfi við Starfsendurhæfingu Vesturlands, Fjöliðjuna á Akranesi, Ölduna í Borgarbyggð, Ásbyrgi í Stykkishólmi og Smiðjuna í Snæfellsbæ. Víða var gestastarfsmönnunum svo boðið upp á veitingar á eftir þar sem rætt var hvað dagurinn hafði gefið fólki í reynslubankann,“ sagði Guðrún Sigríður í samtali við Skessuhorn. Meðfylgjandi myndir voru teknar á Fyrirmyndardeginum á nokkrum stöðum á Vesturlandi. Sýna þær glöggt hversu fjöl- breytt og skemmtileg störf fólk fékk að kynnast á Fyrirmynd- ardeginum. mm Fyrirmyndardagurinn tókst vel víðsvegar um Vesturland Davíð Einar var gestastarfsmaður hjá B.Sturlusyni í Stykkishólmi. Hann Ásþór í Krónunni á Akranesi tók vel á móti Ívari sem fékk að kynnast starfseminni í versluninni. Áslaug Elva var gestastarfsmaður hjá Gissuri tómstundafulltrúa í félagsstarfi aldraðra í Setrinu í Stykkishólmi. Pizzuveisla á Akranesi að loknum góðum degi. Ívar og Erlingur Birgir í Fjöliðjunni á Akranesi. Hressir starfsmenn á Ásbyrgi.Laufey María og Emma fóru á Höfða og eru hér ásamt Ingigerði Höskuldsdóttur. Helgi Jóhann var gestastarfsmaður hjá Lindu Ómarsdóttir í félags- starfi á Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi. Ólafía Sæunn var gestastarfsmaður hjá Íslandspósti í Stykkishólmi. Rúna Ösp Unnsteinsdóttir var gestastarfsmaður í sundlauginni í Stykkishólmi. Hann Þorvaldur fékk að kynnast starfinu í Vínbúðinni á Akranesi. Elli og Kristinn eru hér með henni Lilju í Gámaþjónustu Vesturlands á Akranesi. Máni og Róbertó með Guðbjörgu í Húsasmiðjunni. Ásta Birna og Allý voru gestastarfsmenn í Ráðhúsinu í Borgarbyggð.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.