Skessuhorn - 29.11.2017, Side 24
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 201724
fimmtudaginn 7. desember klukkan 20. Að-
gangseyrir er 2.000 kr. og 1.500 kr. fyrir aldr-
aða og öryrkja og frítt fyrir 16 ára og yngri.
Hátíðartónleikar Eyþórs Inga verða haldnir
í Grundarfjarðarkirkju föstudaginn 15. des-
ember klukkan 20. Um er að ræða hugljúfa
jólastund. Að tónleikum loknum ætlar Eyþór
að koma við á 59 Bistro bar. Jólatónleikarnir
„Jól með Jóhönnu“ verða í Grundarfjarðar-
kirkju föstudaginn 22. desember klukkan 20.
Þar mun söngkonan Jóhanna Guðrún koma
fram ásamt Davíð Sigurgeirssyni gítarleik-
ara. Á tónleikunum ætla þau að skapa nota-
lega jólastemningu og flytja sín uppáhalds
jólalög í glænýjum útsendingum fyrir gítar
og söng. Miðaverð 2.990 kr. Miðvikudaginn
20. desember klukkan 15 verður útskriftarhá-
tíð Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundar-
fjarðarkirkju.
Setbergsprestakall
Sr. Aðalsteinn Þorvaldsson
3. desember – Fyrsti sunnudagur í aðventu:
Guðsþjónusta á fyrsta sunnudegi aðventunn-
ar klukkan 11 í Grundarfjarðarkirkju.
4. desember – Mánudagur: Morgunsöngur
klukkan 10 í Grundarfjarðarkirkju.
6. desember – Miðvikudagur: Kirkjuskóli
klukkan 16:20 og jólatónleikar Tónlistar-
skóla Grundarfjarðar klukkan 20 í Grundar-
fjarðarkirkju.
7. desember – Fimmtudagur: Tónleikar
Söngsveitarinnar Blær klukkan 20 í Grund-
arfjarðarkirkju.
11. desember – Mánudagur: Morgunsöngur
klukkan 10 í Grundarfjarðarkirkju.
12. desember – Þriðjudagur: Aðventu-
kvöld með Kirkjukór og Karlakórnum Kára
í Grundarfjarðarkirkju.
13. desember – Miðvikudagur: Kirkjuskóli
klukkan 16:20 í Grundarfjarðarkirkju.
18. desember – Mánudagur: Morgunsöngur
klukkan 10 í Grundarfjarðarkirkju.
24. desember – Aðfangadagur: Beðið eftir
jólunum. Barnastund klukkan 11 í Grundar-
fjarðarkirkju.
24. desember – Aðfangadagur: Guðsþjón-
usta klukkan 18 í Grundarfjarðarkirkju.
25. desember – Jóladagur: Guðsþjónusta
klukkan 14 í Setbergskirkju.
31. desember – Gamlársdagur: Guðsþjón-
usta klukkan 16 í Grundarfjarðarkirkju.
Stykkishólmur
Líkt og annarsstaðar á Vesturlandi er ýmis-
legt á döfinni í Stykkishólmi á aðventunni.
Þeir Andrés Þór Gunnlaugsson, Karl Olgeirs-
son og Jón Rafnsson halda tónleika á morgun,
fimmtudag, í Stykkishólmskirkju klukkan 20.
Kvenfélagið Hringurinn verður með sinn ár-
lega jólabasar sunnudaginn 3. desember í Safn-
aðarheimili Stykkishólmskirkju frá klukkan
15-17. Þar verða fallegir handgerðir munir til
sölu. Söngsveitin Blær verður með jólatónleika
í Stykkishólmskirkju sunnudaginn 3. desember
klukkan 20. Aðgangseyrir er 2.000 kr. og 1.500
kr. fyrir aldraða og öryrkja og frítt fyrir 16 ára
og yngri.
Jólatónleikar í sal tónlistarskólans verða
fimm talsins þetta árið, mánudaginn 4. des-
ember klukkan 18 og 18:45, þriðjudaginn 5.
desember klukkan 18 og miðvikudaginn 6.
desember klukkan 18 og 18:45 Allir eru hjart-
anlega velkomnir á tónleikana og frítt inn. Þá
vilja nemendur og kennarar Tónlistarskóla
Stykkishólms bjóða bæjarbúum og nágrönnum
að njóta með þeim notalegrar stundar fimmtu-
daginn 14. desember á tónleikum þar sem
fjöldi nemenda ætlar að spila og syngja jólalög
og aðra hátíðlega skemmtilega tónlist.
Miðvikudaginn 6. desember frá klukkan
17-19 verður myndlistarsýningin „Dáleiðandi
mandölur og glaðlynd furðudýr“ opin í Norska
húsinu í Stykkishólmi. Þar sýna mæðgurnar
Menja von Schmaiensee og Ísól Lilja Róberts-
dóttir nokkur af sínum verkum. Matar- og
handverks pop-up markaður á Narfeyrarstofu
verður laugardaginn 9. desember frá klukkan
13-16. Jólaljúfmetsmarkaður Stykkishólmz-
Bitter sunnudaginn 10. desember í Nýræktinni
frá klukkan 14-16. Jólakökubasar Lionsklúbbs-
ins Hörpu í Bónus verður fimmtudaginn 14.
desember. Jólamarkaðir verða opnir í Norska
húsinu 14. og 21. desember frá klukkan 20-22.
Friðarganga verður farin á Þorláksmessukvöli
frá Hólmagarði að Ráðhúsinu, lagt verður af
stað klukkan 18.
Stykkishólmsprestakall
Sr. Gunnar Eiríkur Hauksson
3. desember – Fyrsti sunnudagur í aðventu:
Kirkjuskóli í Stykkishólmskirkju klukkan 11.
5. desember – Þriðjudagur: Kirkjuheimsókn-
ir leik- og grunnskólans, helgileikur klukkan
10:30. Helgistund og súpa fyrir 60 ára og eldri
klukkan 12.
10. desember – Annar sunnudagur í aðventu:
Kirkjuskóli í Stykkishólmskirkju klukkan 11.
Aðventustund í Helgafellskirkju klukkan 17.
Guðsþjónusta í Gömlu kirkjunni í Stykkishólmi
klukkan 20.
24. desember – Aðfangadagur: Aftansöngur
klukkan 18 í Stykkishólmskirkju.
25. desember – Jóladagur: Hátíðarguðsþjón-
usta í Helgafellskirkju klukkan 14.
26. desember – Annar dagur jóla: Guðsþjón-
usta í Breiðabólstaðarkirkju klukkan 14.
27. desember – Miðvikudagur: Helgistund á
St. Franciskusspítalanum klukkan 14. Helgi-
stund á Dvalarheimilinu klukkan 16.
31. desember – Gamlársdagur: Aftansöngur í
Stykkishólmskirkju klukkan 17.
Dalabyggð
Von er á Guðna Th Jóhannessyni forseta Íslands
í opinbera heimsókn í Dalabyggð miðvikudag-
inn 6. desember og fimmtudaginn 7. desemb-
er. Forsetinn mun heimsækja og kynna sér ýmsa
áhugaverða staði í Dalabyggð, svo sem Auðar-
skóla, Laugar í Sælingsdal og fleiri staði. Í til-
efni heimsóknarinnar verður haldin fjölskyldu-
skemmtun í Dalabúð fimmtudaginn 7. desember
frá klukkan 17-18:30.
Þá verður dagskrá hefðbundin þegar ljósin
verða tendruð á jólatrénu í Búðardal, þar sem
boðið verður upp á heitt kakó og jólasveinar láta
sjá sig.
Dalaprestakall
Sr. Anna Eiríksdóttir
3. desember – Fyrsti sunnudagur í aðventu:
Sameiginlegt jólaball sunnudagaskóla Dala-
og Reykhólaprestakalls í Tjarnarlundi klukk-
an 11. Helga Möller mætir og syngur jóla-
lög og Ingimar Ingimarsson organisti spilar
undir. Einnig mætir kátur jólasveinn.
Fjölskyldukaffi á Fellsenda klukkan 14 í boði
kvenfélagsins Fjólunnar, sem sér um kaffi-
veitingar. Kveikt verður á aðventukransin-
um, lesin jólahugvekja og sungin jólalög.
Nikkólína mætir með nikkurnar og Helga
Möller syngur nokkur jólalög.
Aðventukvöld í Hjarðarholtskirkju klukkan
20 með fjölbreyttri dagskrá. Börn úr kirkju-
skólanum kveikja á fyrsta aðventukertinu,
fermingarkrakkar lesa ritningalestra og
stelpur úr söngskólanum ætla að flytja nokk-
ur jólalög. Hjördís Kvaran flytur hugvekju.
Kirkjukór Dalaprestakalls syngur jóla-
sálma undir stjórn Halldórs Þorgils Þórð-
arsonar og Helga Möller, söngkona, syng-
ur sín þekktustu jólalög. Í lokin verður ljós-
ið borið um kirkjuna um leið og sungið er
Heims um ból. Allir velkomnir.
24. desember – Aðfangadagur: Helgistund á
Fellsenda klukkan 14. Hátíðarguðsþjónusta í
Hjarðarholtskirkju klukkan 18.
25. desember – Jóladagur: Hátíðarguðsþjón-
usta í Staðarfellskirkju klukkan 14. Helgistund
á Silfurtúni klukkan 17.
26. desember – Annar dagur jóla: Hátíðarguð-
sþjónusta í Snóksdalskirkju klukkan 11. Há-
tíðarguðsþjónusta í Stóra- Vatnshornskirkju
klukkan 14.
28. desember – Fimmtudagur: Kertamessa í
Kvennabrekkukirkju klukkan 20.
31. desember – Gamlársdagur: Hátíðarguð-
sþjónusta í Hvammskirkju klukkan 14.
Reykhólar
Hið árlega fullveldiskaffi verður í Reykhóla-
skóla föstudaginn 1. desember. Sýningin hefst
klukkan 19:30 og skemmtun lýkur klukkan 22.
Miðaverð er 1.500 kr. fyrir fullorðna, 500 kr.
fyrir 6-16 ára og frítt fyrir 5 ára og yngri.
Þá verður árlegur jólamarkaður Handverks-
félagsins Össu í Króksfjarðarnesi fyrstu að-
ventuhelgina, 2. og 3. desember á milli kl 12 og
17 báða dagana. Hægt verður að versla ýmislegt
skemmtilegt fyrir jólin auk þess sem Kvenfé-
lagið Katla mun selja kaffi og meðlæti. Laugar-
daginn 2. desember kemur Harmonikkufélagið
Nikkólína klukkan 15 og spilar fyrir markaðs-
gesti. Sunnudaginn 3. desember mun Helga
Möller taka nokkur lög klukkan 12:30 og klukk-
an 14 munu mæðgurnar frá Mýrartungu kynna
bókina Hugdettur og heilabrot.
Reykhólaprestakall
Sr. Hildur Björk Hörpudóttir
3. desember – Fyrsti sunnudagur í aðventu:
Jólaball sameiginlegs sunnudagaskóla Dala og
Reykhólaprestakalls í Tjarnalundi klukkan 11.
Söngkonan Helgar Möller kemur og syngur
með börnunum og jólasveinar mæta á svæðið.
Aðventustund í Barmahlíð klukkan 14:45.
14. desember – fimmtudagur: Aðventukvöld í
Staðarhólskirkju klukkan 18 og Pálínuboð á eft-
ir. Aðventukvöld í Garpsdalskirkju klukkan 20.
17. desember – Þriðji sunnudagur í aðventu:
Aðventumessa í Gufudalskirkju klukkan 18.
25. desember – Jóladagur: Hátíðarguðsþjón-
usta í Reykhólakirkju klukkan 11 og hátíðarguð-
sþjónusta í Garpsdalskirkju klukkan 13.
26. desember – Annar dagur jóla: Hátíðarguð-
sþjónusta í Staðarhólskirkju klukkan 14:30 og
hátíðarguðsþjónusta í Skarðskirkju klukkan
17.
Síðastliðinn sunnudag var hinn árlegi jólamarkaður haldinn á Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi. Þar mátt sjá úrval af handverki og mat þannig að borð svignuðu undan krásunum. Meðfylgjandi myndir
tók Iðunn Silja Svansdóttir við þetta tilefni. mm
Héldu árlegan jólamarkað á Breiðabliki
Foreldrafélag Grunnskóla Grundarfjarðar hélt árlegt jólaföndur fyrir börn og fullorðna fimmtudaginn 23. nóvember síðastliðinn. Góð mæting var á föndrið og gátu allir fundið sér eitthvað til dundurs.
Afraksturinn var hinn glæsilegasti og mun eflaust prýða hillur á heimilum eða jafnvel laumast í jólapakkann. 9. bekkur sá að vanda um vöfflubakstur og kakógerð fyrir gesti en það er liður í fjáröflun fyrir
ferðalag næsta vor. tfk
Jólaföndur í Grunnskóla Grundarfjarðar
Þessi unga dama rétt gaf sér tíma til að brosa til ljósmyndara en hún var mjög upptekin við músa-
stigagerð ásamt ömmu sinni.
Einbeitningin skín úr andliti þessa unga manns sem málaði krukku undir dyggri leiðsögn móður
sinnar.