Skessuhorn - 29.11.2017, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 201730
K n a t t s p y r n u k o n a n
Unnur Ýr Haraldsdótt-
ir hefur samið að nýju
við ÍA og mun leika
með liðinu í 1. deild
kvenna næsta sumar.
Unnur er 23 ára göm-
ul og hefur leikið allan
sinn feril með ÍA. Hún
steig sín fyrstu skref
með meistaraflokki árið
2009, þá ekki orðin 15
ára gömul. Síðan þá
hefur hún leikið óslitið
með liði Skagakvenna
að frátöldu tímabilinu
2016 þegar hún var
barnshafandi. Á þeim
tíma hefur Unnur leik-
ið 114 leiki og skorað í
þeim 33 mörk. „Við hjá
KFÍA fögnum þessum
nýja samningi og trú-
um því að Unnur Ýr
styrki liðið mikið í bar-
áttunni um 1. deildina í
sumar,“ segir í tilkynn-
ingu á vef KFÍA.
kgk
Unnur Ýr endurnýjar
samning sinn við ÍA
Unnur Ýr Haraldsdóttir fagnar marki í leik með ÍA á
liðnu sumri.
Ljósm. úr safni/ gbh.
Inga Elín Cryer sundkona frá Akra-
nesi keppti á Íslandsmeistaramótinu
í sundi í 25 m laug fyrr í þessum
mánuði. Á mótinu synti hún 100
m flugsund og varð Íslandmeist-
ari á tímanum 1.02.26. Bætti hún
tíma sinn um eina sekúndu og náði
jafnframt lágmarki á Norðurlanda-
meistaramótið sem haldið verður í
Reykjavík dagana 1. til 3. desemb-
er nk. Einnig synti Inga Elín 50 m
flugsund á sunnudeginum og varð í
2. sæti, einungis þremur hundruð-
ustu frá gullinu.
mm
Tekur þátt í Norðurlanda-
meistaramótinu um næstu helgi
Knattspyrnufélagið Valur á Hlíðar-
enda í Reykjavík samdi í liðinni viku
við þrjár öflugar knattspyrnukon-
ur til næstu þriggja ára. Þetta voru
þær Elín Metta Jensen, Mist Edvar-
dsdóttir og síðast en ekk síst skaga-
konan Hallbera Guðný Gísladóttir
sem brátt lætur af atvinnumennsku,
en hún lék síðast með Djurgården í
Svíþjóð. Hallbera er 31 árs og hefur
spilað 90 landsleiki. Hún er fædd og
uppalin á Akranesi en hefur spilað
með Val og Breiðabliki hér heima.
mm
Hallbera Guðný til Vals
Varnarmaðurinn Tomasz Luba í
knattspyrnuliði Víkings Ólafsvík
hefur lagt skóna á hilluna. Hann
var nýverið ráðinn þjálfari meist-
araflokks kvenna hjá Víkingi Ó. „Á
sama tíma og við bjóðum Tomasz
velkominn til starfa á nýjum vett-
vangi innan félagsins þökkum við
Birni Sólmari Valgeirssyni fyrir
gríðarlega vel unnin störf í þágu
kvennaboltans í Ólafsvík undan-
farin ár,“ segir í tilkynningu frá fé-
laginu.
Tómas hefur spilað með Víkingi
Ó síðan 2010 og hefur því spilað
með þau þrjú ár sem liðið hefur
verið í Pepsí deildinni. Í 162 deild-
ar- og bikarleikjum skoraði Tom-
asz alls fimm mörk á ferli sínum
með Víkingi. Hann spilaði 21 leik
með liðinu í Pepsídeildinni síðasta
sumar. Kvennalið Víkings Ólafs-
víkur hafnaði í 9. sæti í 1. deild-
inni síðasta sumar og leikur því í 2.
deild á komandi tímabili.
mm/þa
Luba tekur við þjálfun
kvennaliðs Víkings
Aðaltvímenningi Bridgefélags
Borgarfjarðar lauk á mánudags-
kvöldið. Í mótinu tóku þátt sext-
án pör. Líkt og oft á undanförnum
árum voru það félagarnir Svein-
björn Eyjólfsson og Lárus Péturs-
son sem báru sigur úr býtum með
60,9% skor, komu sjóðheitir til
leiks eftir sigur á Þorsteinsmóti
á laugardaginn. Í öðru sæti urðu
Heiðar Baldursson og Logi Sig-
urðsson með 59,3% og Sigurður
Már Einarsson og Stefán Kalmans-
son þriðju með 56%. Meðfylgjandi
mynd tók Ingimundur Jónsson að
móti loknu.
mm
Sveinbjörn og Lárus
tvímenningsmeistarar
Frjálsíþróttaráð HSH stóð fyrir
jólamóti í frjálsum íþróttum inn-
anhúss í íþróttahúsi Snæfellsbæjar,
laugardaginn 25. nóvember síðast-
liðinn. Rúmlega 40 keppendur af
Snæfellsnesi tóku þátt og voru þeir
á aldrinum 3ja til 82ja ára.
Á mótinu kepptu átta ára og
yngri í langstökki með og án at-
rennu og 35 m hlaupi. Keppend-
ur 9-10 ára kepptu í sömu greinum
að viðbættu hástökki. Ellefu ára og
eldri kepptu í sömu greinum að
viðbættu kúluvarpi. „Gamalreynd
frjálsíþróttakempa, Kristófer Jón-
asson frá Ólafsvík, heiðraði okkur
með þátttöku í mótinu, en hann
hljóp 35 m og stökk langstökk án
atrennu. Kristófer hefur æft og
keppt í frjálsum íþróttum frá unga
aldri og sett fjölda meta í mismun-
andi aldursflokkum. Á myndunum
hér meðfylgjandi sést hann annars
vegar með hlaupafélögum sínum
og hins vegar með yngsta kepp-
andanum, honum Magna Rúnari
3ja ára,“ segir Björg Ágústsdóttir
formaður frjálsíþróttaráðs HSH.
Mótsgestir höfðu verið hvatt-
ir til að mæta í skrautlegum og
skemmtilegum sokkum og voru
veitt „verðlaun“ fyrir frumlegustu
og jólalegustu sokkana. „Krakk-
arnir stóðu sig síðan með prýði á
mótinu og stemningin var mjög
góð. Allir fengu í lokin þátttöku-
verðlaun frá HSH, handklæði
með merki HSH, sem Krums –
handverk og hönnun í Grundar-
firði hafði útbúið fyrir félagið.
Árangur í keppnisgreinum verður
skráður á næstu dögum og kynnt-
ur á vef HSH,“ segir Björg.
„HSH þakkar keppendum fyr-
ir þátttökuna og aðstandendum
sem aðstoðuðu á mótinu. Þjálfur-
um sem héldu utan um skráningu
keppenda og sjálfboðaliðum sem
komu að öðrum undirbúningi er
sömuleiðis þakkað fyrir.“
mm/ Ljósm. bá.
Áttatíu ára aldursbil á
Jólamóti HSH í frjálsum