Skessuhorn - 13.12.2017, Qupperneq 4
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 20174
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Flóð eða lækjarspræna?
Sá undarlegi siður hefur í áratugi gilt hér á landi að gefa einkum út bæk-
ur í aðdraganda jóla. Sárafáar bækur koma út þess á milli. Auðvitað eru
höfundar og útgefendur að treysta á að bók sé laumað í jólapakkann.
Þetta er náttúrlega góð og gegn markaðsfræði og hefur vafalítið svínvirk-
að alla tíð enda afar auðvelt að pakka inn bók svo vel fari. Hins vegar hef-
ur þessi söluaðferð ýmsar hliðarverkanir. Þannig heyrði ég fyrir nokkr-
um árum af afa nokkrum sem var svo stálheppinn að hann fékk í jólagjöf
ekki færri en ellefu eintök af sömu bókinni eftir Arnald og fjögur af bók
Yrsu. Við Íslendingar erum nú einu sinni með ríka hjarðhegðun og það
hefur náttúrlega þótt skothelt að kaupa bækur þessara höfunda til gjafa.
Eitt árið enn virðist því eina spennan á bóksölumarkaðinum felast í því
hvort Arnaldur eða Yrsa vermi toppsæti metsölulistans og hvort þeirra
lendir í öðru sæti hans.
Eðli málsins samkvæmt varð uppi fótur og fit hjá helstu áhugamönnum
um sigurvegara í bóksölustríðum þegar bók eftir lífstílssnapparann Sól-
rúnu Díegó skaust óvænt í efsta sæti metsölulistans. Þessi ágæta kona
gaf í haust út bók sem byggir á áralangri reynsla hennar við að þrífa hús.
Þetta er náttúrlega ómetanlegt fræðirit sem vafalítið mun leiða til auk-
ins hreinlætis á heimilum og áhuga fyrir viðfangsefninu. Bók af þessu
kalíberi mun með tíð og tíma öðlast sambærilegan virðingarsess og mat-
reiðslubækur Helgu Sigurðar eða Gagn og gaman.
Sjálfur hef ég í tvígang staðið fyrir því að gefa út bækur. Þannig var
haldið upp á tíu ára afmæli Skessuhorns með útgáfu bókar og aftur á
fimmtán ára afmælinu. Báðar þessar bækur voru að ég held skammlausar
og áttu ekkert síður erindi til almennings en auðgleymanlegir reyfarar.
En salan var dræm og ástæðan nokkuð einföld. Við vorum ekki Yrsa, ekki
Arnaldur og bara alls ekki í vinahópi þess manns sem einráður er um
hvaða bókum er sagt frá í Ríkismiðlinum. Af þeim sökum á ég ennþá í
fórum mínum um fimm hundruð stykki af hvorri bók, nákvæmlega þann
fjölda sem mér hafði fyrirfram verið tjáð að myndu seljast út á kynningu
í Kiljunni. Eftir þessa reynslu ákvað ég, og hef staðið við, að gefa ekki
út fleiri bækur meðan þessi sami einráður stýrir þættinum. Það verður
því með öðrum hætti sem við höldum upp á tvítugs afmæli Skessuhorns
í byrjun næsta árs.
Síðastliðin fimm ár hef ég af þessum sökum haft ákveðna skömm á Kilj-
unni þrátt fyrir að hafa í aðra röndina gaman af bókmenntum. Af þeim
sökum er ég eðli málsins samkvæmt algjör auli um bókaútgáfu hverju
sinni og kemur það mér því alltaf jafn skemmtilega á óvart sá mikli fjöldi
bóka sem ég sé þegar ég álpast inn í bókabúðir á aðventunni. Þá blasa að
vísu við fólki í dyragættinni heilu brettastæðurnar af Arnaldi og Yrsu, en
eftir að búið er að ná að skáskjótast framhjá brettunum kemur í ljós að
ennþá er bókaútgáfa hér á landi í ótrúlegum blóma, þrátt fyrir að bóksal-
ar séu enn að greiða sama virðisaukaskatt og aðrir útgefendur!
Til að skekkja stöðu útgefenda enn meira hafa matvörumarkaðir um
árabil valið „rjómann“ af útgáfu hvers árs og bjóða bækur á mun lægra
verði en þær verslanir sem reyna allt árið að halda uppi viðunandi þjón-
ustustigi við unnendur bókmennta. Þar er valið úr útgáfu ársins þau rit
sem þykja söluvænleg og búið er að fjalla um í Kiljunni. Ekki bætir þetta
stöðu þeirra útgefenda sem ekki eiga upp á pallborðið hjá einvaldinum.
Hættan er því sú að góðar bækur eru gefnar út en fara síðan í plastinu á
haugana á nýju ári af því landsmenn vissu hreinlega ekki af tilurð þeirra.
Bækur sem jafnvel eru betri en bækur sem vinir þáttastjórnandans gefa
út.
Magnús Magnússon.
Leiðari Hvalaskoðunarskipið Íris er farið
að sigla með farþega um Grund-
arfjörð og nágrenni enda háhyrn-
ingarnir farnir að láta sjá sig aft-
ur á Breiðafirði. Hvalaskoðunar-
vertíðin mun standa eitthvað fram
á næsta ár og munu bátarnir frá
Láka Tours eflaust hafa í nógu að
snúast næstu misserin. tfk
Vertíðin hafin í hvalaskoðun
Starfshópur um byggingu búsetu-
kjarna fyrir fatlað fólk á Akranesi
hefur skilað lokaskýrslu sinni til
bæjaryfirvalda. Var hún lögð fram
á fundi bæjarráðs síðasta dag nóv-
embermánaðar. Hlutverk hópsins
var í megindráttum að meta þörf á
byggingu búsetukjarna fyrir fatlað
fólk á Akranesi, kanna möguleika
varðandi fjármögnun og rekstrar-
form slíks kjarna, vinna verk- og
kostnaðaráætlun fyrir byggingu
búsetukjarnans, gera rekstrar-
áætlun fyrir hann og leita sam-
ráðs og samstarfs við hagsmuna-
aðila. Í skýrslunni er að finna tvær
útfærslur á tillögum um búsetu-
kjarna fyrir fatlað fólk á Akranesi.
Annars vegar kjarna í Skógarhverfi
I, við Asparskóga eða Akralund, en
hins vegar kjarni á Dalbrautarreit.
Búsetukjarni í Skógarhverfi yrði
inni í almennri íbúabyggð og á
svæði þar sem frekari uppbygging
er fyrirhuguð. Þá er hugsanlegt að
samnýta megi starfsfólk og starfs-
mannaaðstöðu í búsetukjarna fyr-
ir aðra þjónustuþega í nágrenninu.
Starfshópurinn sá enga ókosti við
að reisa búsetukjarna við Aspar-
skóga eða Akralund.
Helstu kostirnir sem starfshóp-
urinn sá við búsetukjarna við Dal-
braut er að staðsetningin er mið-
svæðis, inni í almennri íbúabyggð
nálægt allri þjónustu, þ.m.t. Fjöl-
iðjunni og verslunum. Vegna stað-
setningar mætti ef til vill áætla að
síður þyrfti ferðaþjónustu á nálæg-
ar stofnanir og í verslanir. Búsetu-
kjarni á Dalbrautarreit byði einn-
ig upp á samnýtingu starfsmanna-
halds, rétt eins og ef hann risi í
Skógarhverfi. Aftur á móti er Dal-
brautarreitur dýr byggingarreitur
vegna kröfu um bílakjallara og út-
lit húss.
Heildarkostnaður
um 460 m.kr.
Um kostnað við byggingu búsetu-
kjarna segir í skýrslunni að reikna
megi með því að hann verði mun
hærri við Dalbrautarreit en á Asp-
arskógum og Akralundi, vegna
ofangreindra ástæðna. Kostnað-
aráætlun tekur mið af þeim fer-
metrafjölda sem áætlað er að Akra-
neskaupstaður hafi til umráða við
byggingu á Dalbraut 4, eða 1300
fermetrar. Sá fermetrafjöldi hef-
ur hingað til verið skilgreindur
fyrir þjónustumiðstöð fyrir aldr-
aða. „Áætlaður heildarkostnaður
við húsnæði verði um 460 millj-
ónir kr. og það verði fullbúið árið
2020. Þessi forsenda byggir á því
að Akraneskaupstaður fái á árinu
2018 viðunandi tilboð í bygging-
arrétt vegna uppbyggingar lóð-
anna við Dalbraut 4 og 6 og lóð-
anna Þjóðbraut 3 og 5,“ segir í
skýrslunni.
Starfshópurinn leggur því til í
lokaorðum skýrslunnar að eftirfar-
andi ráðstafanir verði gerðar til að
mæta fyrirsjáanlegri þörf á búsetu-
úrræðum fyrir fatlað fólk á Akra-
nesi:
1. Leitað verði samráðs við fatl-
aða, talsmenn þeirra og starfsmenn
sem koma að þjónustu við fatlaða á
Akranesi, við uppbyggingu íbúð-
arhúsnæðis fyrir fatlað fólk.
2. Hafist verði handa við upp-
byggingu á sértæku húsnæðisúr-
ræði fyrir fatlað fólk á árinu 2018,
þannig að tryggt verði að eigi síð-
ar en á árinu 2019, verði tekið í
notkun sértækt húsnæðisúrræði til
að uppfylla nauðsynlega þörf sem
liggur fyrir nú þegar.
3. Teknar verði frá að minnsta
kosti tvær fjölbýlishúsalóðir í
Skógarhverfi og/eða Lundarhverfi
fyrir íbúðarhúsnæði fyrir fatlað
fólk.
4. Gert verði ráð fyrir íbúðar-
húsnæði fyrir fatlað fólk í fjölbýlis-
húsum sem fyrirhugað er að reisa á
Dalbrautarreit.
5. Hugað verði að því að á Sem-
entsreitnum verði gert ráð fyrir
íbúðarhúsnæði fyrir fatlað fólk.
Bæjarráð þakkaði starfshópn-
um þeirra störf og greinargóða
skýrslu. Var bæjarstjóra falin frek-
ari úrvinnsla málsins, en gert er
ráð fyrir að það verði tekið fyrir að
nýju á fundi bæjarráðs á nýju ári,
fimmtudaginn 25. janúar.
kgk
Sambýlið við Laugarbraut á Akranesi. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki með
beinum hætti.
Telja búsetukjarna fyrir fatlaða
í Skógarhverfi góðan kost
Skýrsla starfshóps á Akranesi til
umfjöllunar í bæjarráði