Skessuhorn - 13.12.2017, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 20178
Bræður
lesa og árita
BORGARNES: Bræðurnir
Guðni Líndal og Ævar Þór Bene-
diktssynir munu mæta í Land-
námssetrið í Borgarnesi næst-
komandi mánudag milli klukkan
18 og 19 og lesa upp úr bókum
sínum fyrir börnin. Þeir munu
síðan árita bækur og plaköt að
lestri loknum. „Upplagt er að
mæta aðeins fyrr og ná sér í kakó
með rjóma á kaffihúsinu,“ segir
í tilkynningu frá bræðrunum frá
Stað, sem bjóða alla velkomna,
en frítt er inn á viðburðinn. -mm
Fótur af klaufdýri í
innfluttum spæni
LANDIÐ: Lífland hefur inn-
kallað spæni frá Staben í Svíþjóð
eftir að fótur af klaufdýri fannst
í einum bagga síðdegis á mánu-
dag á alifuglabúi hér á landi.
Líklega er um fót af dádýri að
ræða. „Dýrahræ geta borið með
sér smitefni og sem varúðarráð-
stöfun hefur fyrirtækið innkall-
að alla sendinguna af spæninum
og stöðvað dreifingu,“ segir í til-
kynningu frá Matvælastofnun.
Í kjölfar þess að fóturinn fannst
var brugðist við, svæðið sótt-
hreinsað þar sem spænirinn var
og stöðvuð dreifing á spæni úr
gámnum sem hann var fluttur í
til landsins. Hringt var í þá að-
ila sem vitað var að hefðu keypt
úr gáminum og varan innköll-
uð. Ein hestavöruverslun á höf-
uðborgarsvæðinu hafði fengið
spæni úr viðkomandi sendingu
sem hún hafði í almennri sölu.
Nokkurn tíma tók að hafa uppi
á öllum kaupendum, en tekist
hefur að ná í þá alla. -mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
dagana 2. - 8. desember
Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu:
Akranes: 1 bátur.
Heildarlöndun: 838 kg.
Mestur afli: Þura AK: 838 kg í
einum róðri.
Arnarstapi: Engar landanir á
tímabilinu.
Grundarfjörður: 6 bátar.
Heildarlöndun: 223.470 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
66.074 kg í einni löndun.
Ólafsvík: 14 bátar.
Heildarlöndun: 181.834 kg.
Mestur afli: Tryggvi Eðvarðs
SH: 38.657 kg í fjórum róðrum.
Rif: 15 bátar.
Heildarlöndun: 383.892 kg.
Mestur afli: Rifsnes SH: 72.126
kg í einni löndun.
Stykkishólmur: 5 bátar.
Heildarlöndun: 64.946 kg.
Mestur afli: Hannes Andrésson
SH: 24.750 kg í fjórum róðrum.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Rifsnes SH - RIF:
72.126 kg. 6. desember.
2. Hringur SH - GRU:
66.074. 6. desember.
3. Örvar SH - RIF:
63.892 kg. 5. desember.
4. Saxhamar SH - RIF:
48.367 kg. 3. desember.
5. Helgi SH - GRU:
44.347 kg. 3. desember.
-kgk
Vinna við áfangastaðaáætlun á
Vesturlandi (DMP – Destination
Management Plan) gengur vel, að
sögn Margrétar Bjarkar verkefnis-
stjóra og ráðgjafa hjá SSV. Verk-
efni þetta felur í sér stöðugrein-
ingu, stefnumótun og aðgerðaáætl-
un fyrir þróun ferðamála á Vestur-
landi. Ein áfangastaðaáætlun verður
gerð fyrir allt Vesturland og á hún
að verða tilbúin í maí á næsta ári.
Áfangastaðaáætlunin mun byggja á
gögnum og vinnu sem unnin er á
fjórum svæðum á Vesturlandi, þ.e.
fyrir Akranes og Hvalfjarðarsveit,
Borgarbyggð og Skorradalshrepp,
fimm sveitarfélög á Snæfellsnesi
og loks fyrir Dalabyggð. Vinna
við verkefnið er að mestu unnin
af verkefnisstjórum en með aðstoð
vinnuhópa á hverju svæði auk þess
sem leitað er eftir aðkomu almenn-
ings og umsögnum frá ýmsum aðil-
um á verkefnistímanum.
Vel mætt á undirbún-
ingsfundi
Ferðamálastofa stendur fyrir þessu
verkefni í samstarfi við allar Mark-
aðsstofur á Íslandi sem allar vinna
áfangastaðaáætlun fyrir sín svæði.
„Tilgangur verkefnisins er að móta
heildstætt ferli þar sem litið er til
skipulags, samhæfingar í þróun
og stýringu þeirra þátta sem geta
haft áhrif á upplifum af ferðamál-
um á svæðinu. Markmiðið er m.a.
að stýra þróun ferðamála á svæðinu
yfir ákveðinn tíma, en unnið er með
þriggja ára áætlun í þessari fyrstu
áætlanagerð. Nú í nóvember voru
haldnir opnir fundir á öllum svæð-
unum fjórum hér á Vesturlandi, þar
sem kallað var eftir aðkomu allra sem
áhuga höfðu á að leggja verkefninu
lið við að stilla upp framtíðarsýn til
næstu þriggja ára fyrir ferðaþjónustu
á Vesturlandi,“ segir Margrét Björk.
Hún segir að á hvern fund á svæð-
inu hafi 20-25 manns mætt og var
þátttakendum skipt í hópa sem unnu
saman að helstu áherslum varðandi
framtíðarsýn ferðaþjónustunnar og
þróun hennar næstu þrjú árin.
Margt bar á góma
„Þetta voru mjög vinnusamir og
góðir fundir þar sem margt áhuga-
vert og gagnlegt kom fram. Fyrsta
tilfinning varðandi niðurstöður þess-
ara funda er að fólk er almennt mjög
ánægt með þá framþróun sem hefur
orðið síðastliðin ár í ferðaþjónustu
á Vesturlandi, bæði varðandi fjölg-
un ferðamanna og aukið framboð
á gistingu, dægradvöl og veiting-
um. En betur má ef duga skal. Eins
og við var að búast var mikil áhersla
lögð á að bæta þyrfti uppbyggingu
og gæði innviða sem lúta að að-
gengi, upplýsingum, öryggi og upp-
lifun fólks, sem og þolmörkum nátt-
úru og samfélags. Í því sambandi var
talað um umferð, vegi og útivistar-
stíga, fjarskiptasamband og raforku-
öryggi, merkingar og upplýsinga-
gjöf, almenningssamgöngur, vetr-
arþjónustu vega og einbreiðar brýr,
löggæslu og heilbrigðisþjónustu, al-
mennt þjónustuframboð, verðlagn-
ingu, gjaldtöku og gestrisni. Einnig
var mikið rætt um dreifingu ferða-
manna um landið, áherslur í mark-
aðssetningu og mismunandi að-
stæður og aðstöðu á milli staða og
svæða o.m.fl.“
Skapa þarf sátt
Margrét Björk segir að öll séu
framangreind atriði þekkt áherslu-
atriði varðandi framþróun byggð-
ar jafnt og uppbyggingu ferða-
þjónustu. „Því þarf að greina bet-
ur og staðsetja nánar þörfina fyr-
ir úrbætur varðandi þessa innviða-
uppbyggingu á Vesturlandi. En það
sem vakti mesta athygli var mikill
samhljómur á öllum þessum fund-
um þar sem fundamenn kölluðu
eftir samtali, skilningi og stýringu
sem gæti skapað sátt um ferðaþjón-
ustuna í landinu. Í þeirri umræðu
var áhersla á að stjórnvöld þurfi
að efla skilning sinn á eðli ferða-
þjónustunnar og þörfum hennar.
Það var ákall eftir samtali á milli
ferðaþjónustugreinarinnar og ráða-
manna varðandi lagaumgjörð, eftir-
lit, stefnumótun og stýringu. Einn-
ig eftir meira samráði á milli mark-
aðsgeirans, ferðaskipuleggjenda og
ferðaþjónustuaðila. Þá var talað
um aukið samtal og skilning milli
samfélagsins og þjónustuaðila og
ferðaskipuleggjenda. Einnig þyrfti
að auka samtal og miðlun upplýs-
inga til ferðamanna varðandi sam-
félagið og lífið í landinu, hvernig
Ísland væri „raunverulega“ en ekki
á glansmynd og fræðslu til sam-
félagsins varðandi ferðaþjónustuna.
Þá var mikið rætt um mikilvægi
þess að koma á fót virkum vett-
vangi þar sem ferðaþjónustuaðilar
á Vesturlandi gætu starfað mark-
visst saman að vöruþróun, gæða-
starfi og markaðsmálum. Rætt var
um mikilvægi þess að öðlast meiri
þekkingu og skilning á eðli og um-
fangi ferðaþjónustunnar til að hægt
væri að mæta þörfum greinarinnar
og vinna samhent og í sátt að því
að byggja upp gæða ferðaþjónustu
á Íslandi.“
Tala þarf greinina upp
Þá segir Margrét Björk að síðast en
ekki síst hafi verið samhljómur um
að allir sem að þessari atvinnugrein
kæmu þyrftu að sýna ábyrgð í verki.
„Það væri ekki hægt að byggja upp
heilstæða atvinnugrein og stuðla að
gæðum hennar ef utanumhald og
umgjörð væri ekki í lagi. Stjórnvöld
yrðu að setja umgjörð og reglur sem
styddu við gæði og fagmennsku og
fylgja því eftir að allir störfuðu innan
rammans svo ekki skapaðist ójafn-
vægi á markaðnum. Atvinnugrein-
in þyrfti líka að hafa metnað til að
veita gæðaþjónustu og gera það vel.
Samfélagið þyrfti að gera sér grein
fyrir ávinningi sínum af ferðaþjón-
ustu og styðja við greinina með vel-
vild, tillitssemi og framboði á vöru
og stoðþjónustu sem efldi þessa at-
vinnugrein. Allir þyrftu svo að leggj-
ast á eitt um að tala greinina upp en
ekki niður.“
Margrét Björk segir það mjög
áhugavert að vinna áfram að þess-
ari gagnaöflun og greiningu varð-
andi áherslur í stefnumótun um
framþróun ferðamála á Vesturlandi.
„Nú eru fyrirhugaðir opnir fund-
ir á öllum svæðum í janúar þar sem
unnið verður að markmiðasetningu
til að undirbyggja aðgerðaráætlun
fyrir framþróun ferðamála á Vestur-
landi næstu þrjú ár. Vonandi verður
góð mæting á þá fundi, enda skiptir
ferðaþjónustan máli fyrir okkur öll.
segir Margrét Björk að endingu.
mm/ Ljósm. Markaðsstofa
Vesturlands.
Stefnumótun ferðamála á Vesturlandi
Markmið sett á fundum sem haldnir verða í upphafi næsta árs
Frá fundinum sem haldinn var fyrir Borgarbyggð og Skorradal.
Svipmynd frá fundi sem haldinn var á Snæfellsnesi.
Svipmynd af fundinum í Dalabyggð.
Á fundinum á Akranesi sem haldinn var á Safnasvæðinu.