Skessuhorn


Skessuhorn - 13.12.2017, Page 14

Skessuhorn - 13.12.2017, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 201714 Guðni Th Jóhannesson forseti Ís- lands kom í heimsókn í Dala- byggð í síðustu viku ásamt eigin- konu sinni Elizu Reid og fylgdar- liði. Vel var tekið á móti gestunum og lýsti forsetinn ánægju sinni með móttökurnar hvarvetna sem hann kom. Heimsóknin hófst með inn- liti á hjúkrunarheimilið Fellsenda í Miðdölum. Eftir það var komið við hjá Þorgrími, Helgu og fjölskyldu á Rjómabúinu á Erpsstöðum og boðið upp á skyr og mysudrykki. Þvínæst lá leiðin í Mjólkurstöðina í Búðar- dal þar sem ostagerðin var skoðuð. Í Leifsbúð í Búðardal var opinn fund- ur um framtíðaráform ferðaþjón- ustu í Dölum. Sveinn Pálsson sveit- arstjóri ávarpaði gestina, Rögnvald- ur Guðmundsson formaður Ólafs- dalsfélagsins sagði frá áformum í Ólafsdal og Svavar Gestsson kynnti Gyllta söguhringinn. Sigríður Mar- grét Guðmundsdóttir frá Land- námssetri Íslands sagði gestunum frá fyrirhuguðu Vínlandssetri sem stendur til að koma á fót í Leifs- búð. Að lokum voru kaffiveiting- ar og spjall við gestina. Dagskránni þennan fyrri dag forsetaheimsóknar í Dali lauk með heimsókn á Byggða- safnið að Laugum í Sælingsdal. Á fimmtudaginn hófst dagskrá með því að forsetinn og fylgdarlið hans óku um Skarðsströnd og Fells- strönd og heimsóttu fólk og komu við á nokkrum merkisstöðum beggja vegna Klofnings. Laust fyrir hádegi var heimsókn í Auðarskóla en for- setinn og föruneyti snæddi hádegis- mat með nemendum og starfsfólki. Eftir hádegi var brunað upp á Ei- ríksstaði í Haukadal þar sem Sigurð- ur á Vatni tók á móti gestum. Eftir það var komið við á Kvennabrekku þar sem skilti um Árna Magnússon fræðimann og handritasafnara var afhjúpað. Sauðfjárbúið á Kringlu var sótt heim og þvínæst komið við á Silfurtúni í Búðardal. Dagskrá lauk síðdegis á fimmtudaginn með fjöl- skylduskemmtun í Dalabúð. Boðið var upp á veitingar úr héraði og fjöl- breytt skemmtiatriði. sm Vel heppnuð opinber heimsókn forseta Íslands í Dalina Arnar Freyr er nýkrýndur Íslandsmeistari í rúningi og lá því vel við að sýna forsetanum hvernig menn bera sig að. Forsetinn færði Ólafsdalsfélaginu gamla ljósmynd að gjöf. Hér er meðal annarra Rögnvaldur Guðmundsson formaður Ólafsdalsfélagsins, forsetahjónin og Gunnar Geir Vigfússon ljósmyndari. Í ríflega sjötíu ára sögu lýðveldisins Íslands hafa tveir menn séð að mestu um myndatöku fyrir forsetaembættið og stjórnarráðið. Það eru feðgarnir Vigfús Sigurgeirsson og Gunnar Geir Vigfússon. Vigfús faðir Gunnars Geirs tók myndina sem forsetinn færði Ólafsdal að gjöf. Það voru einlægir ungir Dalamenn sem tóku á móti forsetahjón- unum í leiskólanum. Þessi kona er búsett á Fellsenda og málar af ástríðu. Hún bauð forsetahjónunum upp á sýningu í íbúð sinni. Vel var tekið á móti forsetahjónunum á Dvalarheimilinu Silfurtúni og átti fólk gott spjall. Á myndinni heilsar forseti Íslands Guðrúnu Jóhannesdóttur frá Rauðbarðaholti. Jóna Helga Magnúsdóttir, forstöðukona Hjúkrunarheimilisins á Fellsenda fór yfir sögu heimilisins. Svavar Gestsson og Rögnvaldur Guðmundsson rýna í Ólafsdals- myndina. Fjær stendur Ingveldur Guðmundsdóttir sem sæti á í sveitarstjórn Dalabyggðar og Ólafsdalsfélagsins og einnig glittir í kollinn á Höllu Steinólfsdóttur sem gegnir sömu embættum og Ingveldur. Heimasætan á Erpsstöðum, Hólmfríður Tania, færði forsetanum að gjöf höfuðfat eða „buff“ í safnið. Í heimsókninni minntist forsetinn sjálfstæðisbaráttu Finna og þess að þeir halda nú upp á 100 ára sjálf- stæði. „Þar sem forsetinn notar buff við ýmis tækifæri, fannst dóttur okkar tilvalið að færa honum buff og þar sem við áttum finnskt buff, var þetta einkar viðeigandi,“ sagði Þorgrímur á Erpsstöðum. Í Auðarskóla fengu nemendur það hlutverk að taka á móti forsetahjónunum. Í hádeginu sat nemendaráð Auðarskóla til borðs með forsetahjónunum og fór vel á með þeim. Á fimmtudaginn var afhjúpað að Kvennabrekku söguskilti um Árna Magnússon handritasafnara. Forsetahjónin skoða Mjólkursamsöluna í Búðardal. Sveinn Pálsson sveitarstjóri tók á móti gjöf frá forseta Íslands og konu hans, Elizu Reid. Gáfu þau myndir frá opinberri heimsókn forsetahjónanna Ólafs Ragnars Grímssonar og Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur árið 1997.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.