Skessuhorn


Skessuhorn - 13.12.2017, Qupperneq 19

Skessuhorn - 13.12.2017, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2017 19 ORKA NÁTTÚRUNNAR Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is Allar fyrirspurnir vegna útboðs skal senda á utbod@or.is Útboð Óskað er eftir tilboðum í almenna þjónustu rafvirkja tengda viðhaldsþjónustu, endurnýjun og viðbótum á virkjunum og þjónustu rafvirkja á hlöðum á mismunandi stöðum á landinu. Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Nánar lýst í útboðsgögnum „ONRS-2017-18 Þjónusta rafvirkja“ Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu á vefsíðu OR https://www.or.is/utbod Tilboð verða opnuð hjá Orku náttúrunnar ohf. Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík, fimmtudaginn 11.01.2018 kl. 11:00. ONRS�2017�18/ 09.12.2017 Orka náttúrunnar ohf. óskar eftir tilboðum í: Þjónustu rafvirkja ORKA NÁTTÚRUNNAR Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is Allar fyrirspurnir vegna útboðs skal senda á utbod@or.is Útboð j l i , j í · í i · . .i ll i i l n.is Atvinna Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftirfarandi stöðu lausa til umsóknar: Við Fjölbrautaskóla Snæfellinga er laus til umsóknar tímabundin staða framhaldsskólakennara í dönsku á vor- og haustönn 2018. Um hálfa stöðu er að ræða. Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í viðkomandi námsgrein ásamt kennsluréttindum í framhaldsskóla. Umsókn með upplýsingum um menntun og starfsreynslu skal skila í tölvupósti til skólameistara á netfangið hrafnhildur@fsn.is eigi síðar en 2. janúar 2018. Helstu áherslupunktar í kennsluháttum skólans eru nýting upplýsingatækni í skólastarfi, fjölbreyttar verkefnamiðaðar kennsluaðferðir, vendinám og námsmat með sérstakri áherslu á leiðsagnarmat. Leitað er að kennurum sem hafa frumkvæði, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og hafa áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi. Ráðið verður í stöðuna frá 1. janúar 2018. Laun kennara eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og fjármálaráðuneytis. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið skal fram að skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða einstakling til starfa við framhaldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Sakavottorð fylgi umsókn. Nánari upplýsingar gefur undirrituð, í síma 430-8400 á skrifstofutíma. Netfang: hrafnhildur@fsn.is. Á heimasíðu skólans, www.fsn.is, er að finna ýmsar upplýsingar um skólann og starfsemi hans. Skólameistari SK ES SU H O R N 2 01 7 Knattspyrnufélag ÍA hefur gert samning við hinn unga og efnilega Bjarka Stein Bjarkason um að leika með liðinu næstu tvö árin, eða út leiktímabilið 2019. Bjarki er fædd- ur árið 2000 og er uppalinn hjá Aftureldingu í Mosfellsbæ. Hann spilaði tíu leiki með liðinu í 2. deild karla síðasta sumar og skor- aði í þeim tvö mörk. Hann á að baki þrjá landsleiki með U17 ára landsliði Íslands og tvo með U18 ára landsliðinu. Í tilkynningu á vef KFÍA er komu Bjarka til félagsins fagnað. „Það er mjög jákvætt að fá Bjarka Stein loksins til félagsins. Bjarki Steinn er ungur og efni- legur leikmaður sem styrkir okkur mikið. Hann er líka með mikinn metnað til að ná langt í fótbolta og það er það sem við leitum að í leikmönnum hér á Skaganum, svo hann á bara eftir að vaxa og dafna og gera frábæra hluti í framtíðinni. Hann á framtíðina fyrir sér,“ segir Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálf- ari ÍA. kgk ÍA semur við efnilegan leikmann Frá undirritun samningsins. F.v. Magnús Guðmundsson, formaður KFÍA, Bjarki Steinn Bjarkason, Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari mfl. karla og Hulda Birna Baldursdóttir, framkvæmdastjóri KFÍA. Ljósm. KFÍA. Með stækkun friðlands í Þjórs- árverum og stækkun Vatnajökul- sþjóðgarðs á árinu sem er að líða er búið að friðlýsa 21,6% af flat- armáli Íslands. Umhverfisstofnun hefur látið reikna út að raunheild- arflatarmál friðlýstra svæða hér sé 22.233,3 ferkílómetrar, en flatar- mál landsins alls er eins og kunn- ugt er 103.000 ferkílómetrar. Upphaf friðlýsinga á Íslandi má rekja til ársins 1928 þegar Þing- vellir voru friðlýstir. Nokkur tími leið uns næsta skref var stigið en árið 1940 var Eldey friðlýst. Fátt var að frétta næstu tuttugu árin uns stórt og mikilvægt skref var stigið árið 1968 með stofnun Skaftafells- þjóðgarðs. Áttundi áratugur síð- ustu aldar var drjúgur í friðlýs- ingum. 1973-1974 voru fjölmörg svæði friðlýst, svo sem Skútustaða- gígar, Hvannalindir, Hólmanes, Þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfrum, Bláfjöll, Steðji, Eldborg, Herðu- breiðarlindir, Húsafell, Mývatn og Laxá, Ingólfshöfði og Grótta. Næstu stökk eru þegar friðland að Fjallabaki var stofnað árið 1978 og Þjórsárver árið 1981. Árið 1984 var Skaftafellsþjóðgarður stækk- aður úr 500 km2 í 1700 km2. Árið 1995 var Breiðafjörður verndað- ur með sérlögum sem telst mjög stórt skref. Árið 2004 var Skafta- fellsþjóðgarður stækkaður aftur verulega. Ástæða dýfu sem sést á myndinni er að verndarsvæði Mý- vatns og Laxár var minnkað veru- lega, úr 4400 km2 í 152,89 km2. Síðasta stóra stökkið er árið 2008 þegar Vatnajökulsþjóðgarð- ur var stofnaður. Samhliða því að flatarmál jókst, fækkaði fjölda frið- lýstra svæða því með stofnun þjóð- garðsins urðu þegar friðlýst svæði hluti hans, þ.e. Skaftafellsþjóð- garður, Esjufjöll, Þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfrum og Askja. Hildur Vésteinsdóttir, teymisstjóri í frið- lýsingateymi Umhverfisstofnunar- segir, segir að flest stóru friðlýs- ingaskrefin sem hafi verið stigin á fyrri hluta tímabilsins séu í kring- um náttúruverndarþing. Þá hafi mikið kapp verið lagt á að ljúka við friðlýsingar fyrir þing og eftir þegar fram komu nýjar tillögur að friðlýstum svæðum. mm Meira en fimmtungur Íslands er friðlýstur Á teikningunni má sjá þróun friðlýsinga fram til dagsins í dag. Heimild: Um- hverfisstofnun. Árið 1995 var Breiðafjörður verndaður með sérlögum. Ljósm. úr safni: sá.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.