Skessuhorn


Skessuhorn - 25.04.2018, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 25.04.2018, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 25. ApRÍL 2018 19 hótelinu fór rafmagnið af um kvöld- ið. Sama gerðist á veitingastaðnum sem þeir borðuðu á. Litlir díselmót- orar voru á víð og dreif um borgir og bæi og knúðu litla drykkjarkæla. Flest hótelin voru svo með varaafls- töð. Fræðst um land og þjóð Á ferðalaginu var gert ráð fyrir því að fólk myndi vilja skoða eitthvað á leiðinni. Til dæmis var stoppað á safninu The Killing Fields, þar sem fjöldamorða Rauðu Khmeranna er minnst. „Maður gengur um og sér hauskúpur og aftökustaðinn. Mað- ur var bara alveg í sjokki eftir að sjá þetta. Gaurinn [pol pot] drap tæp- lega einn þriðja af sinni eigin þjóð!“ Kambódía er fræg fyrir fjöldamorð Rauðu Khmeranna á áttunda ára- tug síðustu aldar, en líka fyrir must- erin í Angkor Wat. Hallgrímur og félagar hans stoppuðu þar líka til að skoða. „Þessi þjóð er rík, þótt hún sé fátæk. Hún á þessi musteri inni í skóginum.“ Musterin eru talin vera þau mikilfenglegustu á jörðinni, með mörg hundruð mustera á sama stað, þar sem nú er nútímabærinn Siem Reap. „Við vorum þarna í heilan dag sem var tæplega lágmark. Sum- ir eru þarna í mánuði!“ Musterin eru byggð í kringum tólftu öld og til- heyrðu fyrst hindúatrú en breyttust svo í búddamusteri með tímanum og trúbreytingum í Kambódíu. Á ein- hverjum tímapunkti gleymdust þau og skógurinn endurheimti svæðið og musterin hurfu í gróður. Nú er unnið að því að hreinsa burt gróðurinn og það er blússandi ferðamannaiðnaður í kringum Angkor Wat núna. Aðal- musterið á þó að standa með gróðr- inum, enda er það ekki síður áhuga- vert fyrir ferðamenn að sjá mátt nátt- úrunnar í verki. Ný upplifun og önnur væntanleg Hallgrímur er ánægður með ferðina. Hún var góð og skemmtileg upplifun og í fyrsta sinn sem hann ferðast til Asíu. Félagarnir í klúbbnum eru þeg- ar byrjaðir að skipuleggja næstu ferð og hyggjast fara með sama fyrir- tæki í mótorhjólaferð um Laos eft- ir eitt og hálft ár. klj Skagabraut 6, Akranesi - sími: 431-5110/666-5110 www.smaprent.is - smaprent@smaprent.isSmáprent Bolir í mörgum litum Við hönnum, prentum og merkjum fyrir þig og þína Matur er ögn fjölbreyttari í Asíu en á Íslandi. Hallgrímgur veigraði ekki fyrir sér að smakka það sem á borð var borið; lirfur, engisprettur, krybbur og kunnuglegur kjúklingur. Musterin í Angkor Wat eru á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. Rætur trjánna hylja nær inngang að musteri og skapa ævintýralega sýn. Um alla Kambódíu mátti finna Búdda, hvort sem það var á hólum eða í görðum hjá fólki. Rauðu Khmerarnir drápu fjölmarga landa sína á áttunda áratug síðustu aldar. Fjöldamorðanna er minnst á safninu The Killing Fields í Kambódíu. Fjöldi barna vinnur við að betla. Þessi ungi piltur varð á vegi Hallgríms.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.